blah
Jæja ætli það sé ekki kominn tími til að henda í blogg...
Ætla að byrja á að óska ástkærri systur minni, Huldu, til hamingju með afmælið *smooch*, vona að þú hafir átt ánægjulegan afmælisdag :o)
Ætli það merkilegast sé ekki að Hugo er byrjaður að spila rugby aftur!! Spilaði með b-liðinu síðustu helgi og stóð sig svo vel að þeir vilja hafa hann á bekknum hjá aðalliðinu næstu helgi, og eftir það verður hann vonandi í byrjunarliðinu! :-þ
Batinn hjá honum er búinn að vera ótrúlegur! Akkúrat 5 mánuðir í dag síðan hann fór í aðgerðina og það er í raun fáránlegt að hann sé byrjaður spila miðað við hversu illa hann meiddist! En hann er búinn að vera ótrúlega duglegur að æfa og vinna að því að koma tilbaka. Þannig að ég verð víst að girða mig í brók og byrja að mæta á leiki aftur, sem er reyndar allt í lagi þar sem veðrið hérna er búið að vera ÆÐI! Í dag var 20 stiga hiti og sól, og ég sat í garðinum í dag í pásunni minni með bók að wörka tanið (með sólarvörn þó, vil ekki fá hrukkur og húðkrabbamein!) en ég set hérna inn myndir frá mars-apríl, meðal annars frá deginum í dag (gætuð þurft að copy/paste-a, eða bara fara inná facebook síðuna mína)
http://www.facebook.com/album.php?aid=351323&id=579915040&saved
Ég varð fyrir líkamsárás um daginn!! Af páfagauk..! o_O Svona risatórum fallegum, en hann réðst samt á mig á góðan hátt! Ég var s.s að labba framhjá hárgreiðslustofu hérna í bænum þegar ég sé mann sem ég þekki með risapáfagauk á arminum (ég var búin að blogga um hversu umburðarlyndir Bretar eru gagnvart gæludýrum!)og ég fer inn til að tala við gauksa. Maðurinn vara mig við að gauksi er frekar fúllyndur og fer í manngreinaálit og á það til að bíta. Nema að þegar ég kem nær þá lyftir gauksi annarri löppinni og gefur til kynna að hann vilji koma til mín. Ég nottla í skýjunum yfir að gauksi hafi viljað koma til mín og gaurinn sem var með hann hélt ekki vatni yfir þessu, sagði að páfsi væri til sölu og hann hefði valið mig! Hann kostar ekki nema 950 pund!! (um 180 þúsund), en á eftir að lifa í ca. 70 ár í viðbót! Nema að þegar ég ætlaði að halda för minni áfram og maðurinn að taka hann af mér þá beit heilhveitis kvikindið mig í handlegginn! Þetta gerðist þrisvar sinnum, í hvert sinn sem maðurinn reyndi að fá hann af mér þá beit hann MIG! Hann s.s beit MIG af því að hann vildi ekki fara af mér! Svo loksins kom þarna stelpa sem er að vinna þarna og greinilega vön að höndla fuglinn og tók hann í burtu, og ég er sko með sár og marin eftir hann! En í mínum augum er það ástríðuummerki, ég mein páfagaukurinn valdi mig..! ;-þ
Tvær vikur í að ég komi til Íslands, hlakka ekkert smá mikið til!! Vona að ég fái tækifæri til að hitta sem flesta, en ég verð að fara að lúlla (erum komin klukkutíma á undan). Later....

1 Comments:
smooch...! takk sí jú sún
By
Hulda, at 7/4/11 22:43
Sendu inn athugasemd
<< Home