Hlauptu hlunkur

þriðjudagur, maí 03, 2011

Ætli það sé ekki kominn tími á blogg, búin að vera heima í næstum viku! Allavega þá var Íslandsferðin ÆÐI! Fyrir utan veðrið reyndar, þar sem það var hitabylgja hér á meðan ég var heima í snjó, slyddu, rigningu og alls kyns ógeði! Vá hvað ég sakna ekki veðurlagsins þarna! En það var samt alveg þess virði þar sem ég fékk að hitta allt fólkið mitt :o) Hitti næstum því alla sem mig langaði að hitta, en verð að reyna að hitta á restina næst!! Fór Í Sporthúsið nánast daglega, og hitti þar fullt af snillingum og svo voru nokkrir planaðir hittingar. Æði að hitta litlu frændsystkinin (sem stækka þó eins og óð fluga!!) og eyða tíma með fjöllunni, og ég held að þetta hafi verið erfiðasta skiptið að yfirgefa Íslands.

Þegar ég flutti fyrir tæpu ári síðan þá var ég svo geðveikt spennt yfir því að flytja að ég bara svona:"ok bæ" og var geðveikt ánægð yfir að vera að fara, með komin með svo algjörlega nóg af Íslandi! Þegar ég kom svo í október þá var ég ekki búin að vera í burtu nógu lengi fannst mér, saknaði auðvitað fjölskyldunnar en eins og ég segi, ég var komin með svo mikið ógeð af Íslandi þegar ég flutti að ég vildi bara komast aftur út sem fyrst! O_o En núna hins vegar, ekki það ég algjörlega HATA veðrið heima, og hef ENGAN áhuga á að flytja aftur heim í bráðina, þá fannst mér ótrúlega erfitt að kveðja fólkið mitt og fór að hágrenja í bílnum eftir að hafa kvatt mömmu mína, eða reyndar ekki að hágrenja, en svona töluvert mikið grenj. En já, mér fannst allavega erfitt að fara í þetta skiptið, og hlakka til að koma aftur, en mér fannst líka ótrúlega gott að koma heim. Saknaði Hugos geðveikt mikið og svo er veðrið hérna búið að vera geggjað! Lífið verður bara miklu betra í sól..! :-D

Íslendingar misstu ekki af konungsbrúðkaupinu sá ég. Eftir að hafa búið hérna þá er mér farið að þykja vænt um konungsfjölskylduna og mér fannst brúðkaupið æði. Það var götupartý hérna í götunni okkar, við reyndar tókum ekki mjög virkan þátt í því en Einstein lét sig ekki vanta í stuðið!! Kom ein kona og skilaði honum hérna við dyrnar eftir að hann hafði gert sig einum of heimakominn uppá matarborðinu! Hann er svooooo óskammfeilinn þetta kvikindi, en einhvern veginn þá hefur honum tekist að fá alla í götunni til að elska sig!! Hann fer inn til þeirra flestra held ég, að t.d fólkið hérna við hliðiná á ekki kött en hefur bara gaman af því þegar hann kíkir í heimsókn, hann sé svo yndislegur!! Albert er hins vegar meira bara hérna heima, er reyndar t0luvert úti að leika, er búinn að missa tæpt kíló og farinn að líta út eins og venjulegur köttur, ekki offitusjúklingur. En hann er algjör mömmu-og pabbastrákur, og hann er eiginlega uppáhalds kötturinn minn núna. Ekki það að ég geri eitthvað uppá milli þeirra, en mér fannst Albert ekkert spes fyrst þegar ég átti þá og dýrkaði Einstein (sem ég geri ennþá), en eftir að ég fór að vera meira heima og kynnast Alberti betur þá sá ég að hann er ekki leiðindafýlupúki, heldur feiminn hræðslupúki sem elskar að kúra með mömmu sinni :o) Vá klikkuð kattakelling! haha

Hey jei, við erum komin með bíl!! Gáfumst upp á að bíða eftir að gert yrði við hinn og rákumst á notaðan Passat, sem við fengum á góðum bíl og úr góðum höndum. Bifvélavirki sem mamma Hugos þekkir búinn að sjá um bílinn frá fæðingu og sagði að hann ætti töluvert marga kílómetra eftir í sér. Þannig að við ákváðum að skella okkur á þennan og selja hinn bara í brotajárn, þessi er líka miklu flottari! hehe Ætla að enda færsluna með myndum af gripnum, og bílnum ;-þ