seinna júlíbloggið :o)
oh ætlaði að ná einu bloggi enn í júlí og var byrjuð að skrifa það, en datt bara einhvern veginn ekki í gírinn, en ætla að reyna að klára það núna!!
Það sem er kannski helst að frétta er að mamma og pabbi komu í heimsókn. Það var ekkert smá gaman að fá þau hingað og geta sýnt þeim litla sæta bæinn minn, sem ég held að þeim hafi litist vel á. Fórum svo til London einn dag, sem var mjög gaman en það er alltaf jafn gott að komast aftur heim! Það er bara of mikið af fólki þar! Og allir á hraðferð, sennilega án þess að vita af hverju það er að flýta sér svona mikið..! En við fórum í London eye, sem var sérstaklega mikið afrek fyrir mömmu þar sem hún þjáist af slæmri lofthræðslu! En það var gaman og geðveikt útsýni, sérstaklega þar sem veðrið var ótrúlega gott. Við versluðum nottla aðeins líka og sonna þetta helsta :o)
Fórum svo til Winchester og hittum foreldra Hugos, og það var ótrúlega gaman. Byrjuðum á að fara út að borða á föstudagskvöldinu og eyddum svo laugardeginum í að skoða Winchester sem er ótrúlega falleg borg. Fórum meðal annars í Cathedral, veit ekki alveg hvað það myndi kallast á íslensku af því að þetta er ekki hefbundin kirkja, Dómkirkja sennilega. En já hún var ótrúlega falleg og ég held að mömmu hafi fundist það besti parturinn af ferðinni. Vorum líka heppin með veður og það er alltaf ótrúlega stór kostur! En já ég held að ferðin hafi bara verið ótrúlega vel heppnuð ferð í alla staði, gott líka fyrir okkur að fá þau í heimsókn því heimilið var tekið í gegn! Pabbi handlagni lagaði það sem þurfti að laga og mamma þvoði þvott fyrir allt árið! Og kenndi mér ýmis húsráð sem eiga eftir að gagnast mér vel í framtíðinni(já mamma ég lofa að setja þvottavélina reglulega á suðu og hreinsa hárin úr sturtubotninum o.s.frv..!) hehe
humm hvað meira, já ég á iphone :-D Elsk´ann!! Hugo fékk uppfærslu á sinni og fékk sér iPhone4 og ég arfleiddi iPhone3 símann hans (símar eru innifaldir í samningunum hérna). Og mér er alveg sama þó að ég sé með iPhone3, finnst hann æði. Og svo fæ ég vonandi iPhone5 á næsta ári :-D Humm já góð saga Bjarney...
Vá annars átti ég stórleik fyrir um 2 vikum eða svo! Var lasin þarna einhvern tímann fyrir löngu síðan, en er búin að vera með hósta sem sem er kallaður 100 daga hósti! Og hann var mjög slæmur á tímabili, svo slæmur að ég átti erfitt með að anda og kúgaðist og kúgaðist. Svo einu sinni þá hreinlega ældi ég! Sat í stofunni og byrjaði að hósta og svo kúgast og ældi svo í lófana á mér! Hljóp inní eldhús og ældi aðeins meira í vaskinn. Jafnaði mig svo og ákvað að fara upp og sækja safauppskriftabókina mína af því að ég hafi nýlega keypt mér safapressu. Á leiðinni niður var ég svona aðeins að glugga í bókina og hreinlega gleymdi síðustu 2 þrepunum og flaug niður beint á rassinn! Var samt ekkert vont, bara aulalegt. Jæja ákvað svo að búa til eins og einn safa, geri allt klárt og byrja að pressa, nema að ég gleymi að setja glasið undir stútinn og allur safinn fór beint á eldhúsborðið! Fattaði það samt fljótlega og setti glasið undir og náði að gæða mér á dýrindis safa, en ákvað svo að þetta væri nóg af hrakföllum á einum degi og drullaði mér í bælið...
Annars er veðrið hérna geðveikt þessa stundina, 25-30 stiga hiti og sól, er alveg að elska það! Þórunn, Sindri og Óskar Dagur að koma út á föstudaginn eftir viku, hlakka ekkert smá mikið til!! Verður ótrúlega gaman að hafa þau hérna, það verður sumarfríið mitt þannig að við ætlum að bralla ýmislegt, fara til London, tívolí o.fl. Er með fiðrildi í maganum ég hlakka svo til! :-D
Held það sé ekkert mikið meira að frétta, gómaði Albert við að gúffa í sig kartöflumús í gær, ég er nokkuð viss um að það er ekki eðlilegt fyrir kött!! Algjör! Og svo er Einstein orðinn nokkurs konar hundur! Þegar hann sé að ég er að fara út þá hleypur hann að hurðinni go bíður eftir að ég opni fyrir honum (þrátt fyrir að hann sé með kattaflipa á bakdyrahurðinni!) svo þegar hann er búinn að fá nóg þá stendur hann fyrir utan og mjálmar þar til við hlepum honum inn. Ég veit ég á ekki að opna fyrir honum, mér finnst þetta bara svo geðveikt fyndið að ég læt það eftir honum :-þ
0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home