"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
þriðjudagur, júlí 10, 2012
komin heim (fyrir löngu!)
Jæja þá er kellan komin heim (fyrir 2 vikum! haha) og búið að vera BRJÁLAÐ að gera! Ég var að vinna eins og geðsjúklingur úti alltaf með það bakvið eyrað að ég væri aaaaaalveg að fara að komast heim, en svo kom ég heim og strax á dagsrká var fimmtudagsafmæli og brúðkaup, auk þess sem ég hef verið að hitta fólk í hádegismat, kvöldmat og saumklúbb nánast á hverjum degi síðan ég kom heim! Sem er reyndar bara gaman, væri sennilega pínu svekkjandi ef öllum væri alveg sama um að ég væri komin heim! En mér er samt farið að líða pínu óléttri núna, ekkert rosa bara svona finnst gott að geta fengið mér lúr á daginn og fer snemma að sofa, bara svona eins og það sé að fara meiri orka í barnið, sem er reyndar ekkert ólíklegt, fór í þrívíddarsónar um daginn og þvílíkar bollukinnar á barninu..! Vá hvað ég hlakka til að hitta hann í eigin persónu, svona 3D myndir eru alltaf pínu krípí, en það var samt æði að sjá hann, vona að hann verði krútt, langar soldið að eiga krúttlegt barn :o)
Annars síðan síðast þá fór ég til Spánar að hitta Ingunni vinkonu og hennar fjölskyldu, það var mjög næs. Var samt mjög fyndið, var nottla nýkomin frá UK þar sem ég var vön að keyra vinstra megin svo vorum við að keyra og heilinn í mér hrökk greinilega í UK gírinn í smástund þegar við vorum að fara inní hringtorg, og ég byrja að "öskra" á greyið Krissa sem var að keyra:"Það er hringtorg framundan, Það Er Hringtorg Framundan, ÞAÐ ER HRINGTORG FRAMUNDAN!" Og hann bara leit á mig:"ég veit það" ég bara:"OMG mér fannst eins og við værum að fara öfugt inní hringtorgið!" Algjör sauður..! o_O
En talandi um umferðar"menningu", ég er búin að vera hérna núna í 2 vikur og guð minn almáttugur hvað umferðarómenningin hérna er slæm! Næstum því ástæða til að flytja aftur úr landi! Vá hvað ég er búin að vera að missa geðheilsuna hérna! Jæja *happy thoughts* mér er sagt að það sé gott að ala upp börn á Íslandi, verð bara að halda í þá hugsun..!
Annars er búið að vera æði að vera komin heim og hitta vini og ættingja, litlu gerpin eru nottla fullkomin, var t.d viðstöðð þegar Þórey María litla frænka mín lærði að hjóla, pabbi var búinn að vera úti með henni töluvert að æfa sig en þurfti svo að fara, þannig að ég tók við og á þeim tíma sem ég var með henni þá náði hún tökum á þessu. Svo heyrði ég hana segja við mömmu sína:"já Bjarney kenndi mér að hjóla" haha ég ákvað að taka bara heiðurinn af því..! ;-þ En vá ég hef aldrei séð neinn jafn ákveðinn í að ná þessu! Hún datt af hjólinu reglulega en klifraði á bak aftur, leit á mig og sagði:"ég veit alveg að ég get þetta! Þegar ég verð 5 ára þá kann ég að hjóla" (afmælið hennar var daginn eftir!) svo benti ég henni á að fara kannski bara pínu hraðar og þá kom þetta hjá henni, svo fannst mér hún aðeins ofmetnast þannig að ég stakk uppá að við myndum næst æfa okkur í að bremsa! En hún er farin að hjóla eins og vindurinn, magnað að verða vitni að því þegar þau ná tökum á þessu, fyrst eru þau út um allt, ansi skrykkjótt svo allt í einu bara kemur þetta og þá er þetta bara komið!
Hún er líka búin að vera algjört krútt þegar kemur að bumbunni, alltaf að knúsa hana og strjúka og er voða áhugasöm um þetta allt saman. Svo vorum við að spjalla um daginn og þá kemur:
ÞM:"ég elska litla barnið í bumbunni"
Ég:"æi það er nú fallegt"
ÞM:"en hérna, hvernig kemst barnið eiginlega inní bumbuna?"
Ég (veit ekki af hverju ég taldi þetta vera heppilegasta svarið!) "mamman og pabbinn búa til barnið"
ÞM:"Hvernig?" (hvernig gat ég ekki séð þetta fyrir??")
Ég:"fyrst er barnið bara svona oggulítið, æi talaðu bara við mömmu þína.." (fjúkk slapp fyrir horn!)
Svo fannst henni reyndar soldið skrýtið að litli strákurinn ætli að búa hjá ömmu og afa, veit ekki hversu mikið hún á eftir að elska litla barnið eftir að það kemur úr bumbunni, þetta eru sko HENNAR amma og afi, er ekki alveg viss um að hún sé tilbúin að deila þeim svo glatt! o_O
Var að þvo fyrsta skammtinn af barnafötum, þetta er að verða ansi raunverulegt núna! En er svo líka komin inní enskuna í HÍ, þannig að þetta verður eitthvað fróðlegur vetur, eeeen ætti að hafast með góðri skipulagninu, í versta falli gengur það ekki upp að samtvinna þetta en ég reyndi þá allavega :o)
Annars er ég byrjuð að þjálfa í Sporthúsinu, miðað við hvernig mér líður þá á ég alveg góðar 4 vikur inni spræk (en læt kúnnana borga eftir á þannig að það er engin áhætta, ef e-ð kemur uppá þá verður eingöngu borgað fyrir þá tíma sem búið er að koma í, eðlilega! hehe), þannig að ef einhverjum vantar smá spark í rassinn þá er ég til þjónustu reiðubúin ;o) Er með mailið bjarney06@ru.is og nýja símanúmerið mitt er 779-1090
Læt þetta duga í bili, hendi nokkrum myndum inn, frá Spáni, 3D og 34 vikna bumba :o)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)


Engin ummæli:
Skrifa ummæli