"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
mánudagur, júlí 15, 2013
júní-júlí blogg :o)
Vá hvað er orðið langt síðan ég bloggaði! Og ansi margt búið að gerast síðan síðast! Ætla að stikla á stóru :o)
Bjarni Lár fékk rör í eyrun í lok maí en viku seinna var hann kominn með heiftarlega eyrnabólgu aftur og þurfti að fara upp á barnaspítala og fá sýklalyf sprautað í vöðva. Þá var hann s.s með pneumókokkasýkingu sem venjuleg sýklalyf virka ekki á. Hann þurfti tvö skipti og þá var hann laus við það, og svo var 12 mánaða bólusetningunni flýtt um 2 mánuði (það er s.s byrjað að bólusetja gegn þessari tegund eyrnabólgu, og eftir að hafa horft á BL kljást við hana þá skil ég það mjög vel!) þannig að nú er þetta vonandi búið! Allavega þvílíkur munur á krakkanum, allt í einu erum við farin að sofa á næturnar! :-D Hjálpar pottþétt líka til að hann ákvað að hætta á brjósti þegar við vorum úti og fær núna þurrmjólk fyrir svefninn þannig að hann er farinn að sofa meira og minna alla nóttina, sem var mjöööööög kærkomið! :o) (set hérna mynd af honum þar sem hann er mjög steinsofandi! hehe)
Já svo er reyndar gaman að segja frá því að mér var boðin áframhaldandi vinna í Rimaskóla (man ekki hvort ég var búin að blogga um það!) en ég verð s.s umsjónakennari í 5.bekk á næsta ári, 5.BB :o) Er mjög ánægð með það þar sem ég var jú bara ráðin inn í afleysingu tímabundið. En so far þá þá finnst mér þetta allavega ótrúlega skemmtilegt, var með frábæra nemendur og fékk ótrúlega sæta kveðjugjafir og kort frá þeim, varð nú bara ansi klökk þegar ég las kortin.
Um miðjan júní fórum við mæðginin svo til Bretlands, byrjuðum á að fara í 4 daga til Skotlands og svo til Henley on Thames, þar sem ég bjó, og það var BRJÁLAÐ að gera, vægast sagt! Vorum fullbókuð alla daga við að hitta fólk, sem var bara æði. Fór líka aðeins að versla (en ekki hvað! :P) og veðrið var mjög fínt, 20 stiga hiti og sól mest allan tímann. Vorum bara úti á röltinu allan daginn alla daga. Bjarni Lár þroskaðist mjög mikið úti, hætti á brjósti af sjálfsdáðum en lærði að drekka úr röri :o) Hann var algjör draumur, bæði í öllum flugunum og eins heillaði hann alla upp úr skónnum, var síbrosandi og endlaust duglegur. Komum svo heim í eina viku og þá bauðst mér að skjótast aftur til Skotlands (datt s.s niður á ódýrt flugfar og þegar maður er með fría gistingu þá er þetta ekki mjög kostnaðarsamt). Bjarni Lár fór með mér og fengum við þarna 3 daga af sól sem var mjög kærkomið svona miðað við hvernig sumarið er að spilast hérna heima! En ég byrja ekki að vinna aftur fyrr en eftir verslunarmannahelgi þannig að ég vona svo innilega að það rætost aðeins úr veðrinu þannig að maður getir farið að njóta þess aðeins að vera í fríi!
Annars er ég bara endalaust stolt af litla gerpinu mínu sem er 11 mánaða í dag, og tók 6 skref áðan. Held samt að hann sé ekkert að fara að labba neitt á fullu alveg strax, hann yfirleitt tekur sér tíma í að æfa hlutina. Hann er orðinn rosa klár í að gera allskyns trix, sýna hvað hann er stór, taka í höndina, high five o.fl. Endalaust gaman að fylgjast með þeim þroskast og dafna. Ég er sennilega að gera alla gráhærða með myndum af honum, eeeeeen fólk verður þá bara að blokka mig :o)
Ég er sennilega að gleyma einhverju en ég nenni bara hreinlega ekki að blogga meira, læt þetta duga. Hendi inn hérna nokkrum myndum í staðinn. Later :o)
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)








Engin ummæli:
Skrifa ummæli