"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
sunnudagur, desember 15, 2013
Desember blogg...
Fékk allt í einu einhverja þörf til að henda í pistil! Var líka svolítið spurning um að leyfa þessu bara að deyja út eða aðeins að kynda í glæðunum, og ég tími bara hreinlega ekki að láta bloggið mitt deyja drottni sínum! Hver sem hann nú er...
Ég geri ráð fyrir að það sé ennþá sama böggið með greinaskilin þannig að ég held bara áfram að nota myndir sem greinaskil, enda hata ég nú ekki beint að pósta myndum syninum..! :-þ Annars er nú ansi margt búið að gerast síðan síðast! Við erum flutt í eigin íbúð, eða s.s bara leigja, en fengum æðislega íbúð í Grafarvoginum með geggjuðu útsýni (sjá mynd :)) og það gengur eins og í sögu. Ég var pínu stressuð að fara úr foreldrahúsum þar sem ég fékk nottla svo miklar aðstoð þar en mér finnst þetta bara breyting til batnaðar, þ.e.a.s ég á miklu fleiri quality stundir með Bjarna Lár og við höfum orðið miklu nánari fyrir vikið (þó að við höfum verið náin frá upphafi). Það eina sem er hausverkur er að hann er á leikskólanum Lundi, sem er niður við Klepp á Sæbrautinni, þannig að á hverjum morgni þá keyri ég úr Grafarvoginum og niður að Kleppi og svo aftur upp í Grafarvog! Hann kemst sennilega ekki inn á almennan leikskóla fyrr en næsta haust þannig að ég tek þennan rúnt þangað til. En satt að segja tel ég það ekki eftir mér þvi hann er svo ótrúlega ánægður þarna, hann má varla vera að því að fara úr úlpunni í fataklefanum hann er svo spenntur að komast inn! Svo er bara hlaupið í fangið á næsta starfsmanni og vinkað mér bless! En svo er hann líka alltaf hoppandi kátur þegar ég kem og sæki hann, þannig að ég eiginlega hálf kvíði því að hann þurfi að hætta á Lundi en það mun verða mjög hentugt þar sem leikskólinn sem ég sótti um er í bakgarðinum hjá okkur :)
Vinnan gengur sömuleiðis vel, ég elska að vera kennari :) Suma daga elska ég það meira og suma daga elska ég það minna, og það hafa komið tímar þar sem ég spyr mig hvort það sé þess virði þar sem alltof stór hluti starfsins fer í eitthvað annað en að sinna kennslu (agamál, foreldrasamskipti o.fl) svo að ég tali nú ekki um launin, en góðu dagarnir eru sem betur fer miklu fleiri en erfiðu dagarnir, og að vinna með börnum og unglingum er oftast nær mjög gefandi og skemmtilegt. Og á meðan svo er þá held ég að ég sé á réttri hillu :)
(Ég set hérna inn nokkrar myndir úr myndatöku sem við fórum inn í daginn, var hugsað sem jólakortamyndir en svo notaði ég enga í jólakortin þar sem hann var með jólasveinahúfuna, en valdi 3 aðrar, sem var samt ekkert auðvelt þar sem mér fannst þær hver annarri flottari! Ég skil ekki hvernig ég gat búið til svona lítinn, fullkominn einstakling! (enn og aftur, ég gef "pabbanum" ekkert kredit sko.! :-þ))
Hann er búinn að vera nokkuð góður í haust veikindalega séð eftir að hafa tekið eyrnatörn í vor, hefur eiginlega ekkert verið veikur síðan í júlí, en tókst að næla sér í lungnabólgu í síðustu viku :-( Ég var með hann heima í nokkra daga en setti hann svo á leikskólann á fös (hefði viljað halda honum lengur heima en var komin með bullandi samviskubit gagnvart vinnunni) en þá vildi ekki betur til en mér sýnist hann vera kominn með eyrnabólgu núna! Fór upp í 39 stiga hita í gær og er búinn að vera frekar slappur. Það var reyndar mjöööög fyndið í gær, hann vaknaði hundslappur, fékk stíl og ca. hálftíma síðar þá var hann í ÞVÍLÍKU stuði! Ég var farin að hallast að því að ég hefði gefið honum einhvers konar amfetamínstíl! Hef aldrei séð hann svona ofvirkan! Í einn og hálfan tíma ca.þá var hann í því að klifra upp á stofuborðið, henda hlutum niður, klifra svo niður og sækja þá, bara til að endurtaka allt aftur! Ég var orðið þreytt bara á að horfa á hann..! o.O
Annars hef ég nú minnst á það áður að mér hefur aldrei liðið eins og einstæðri móðir, er með svo ótrúlega öflugt stuðningsnet í kringum mig og ég finn það ekki síst þegar aðstæður eins og núna koma upp, þ.e. að hann er veikur í svona marga daga. Pabbi tók t.d einn frídag í síðustu viku til að vera heima með hann og svo ætlar bróðir minn og mágkona að vera heima með hann á morgun og hinn. Algjörlega ómetanlegt þegar fjölskyldan tekur svona mikinn þátt í uppeldi barnsins manns, mamma búin að passa hann 3-5x í viku síðan hann fæddist, enda er heimilið þeirra bara eins og heimilið hans (eðlilega, bara tæpir 2 mánuðir síðan við fluttum þaðan! hehe). En já, það má eiginlega segja að það heilt þorp að ala barnið mitt upp :) Bjarni Lár er reyndar pínu ringlaður í ríminu, hann er búinn að læra "mamma", og svo koma "amma" en hann er ekki alveg viss hvernig á að skilgreina "afi" þannig að það er ýmist "ammi" eða "mammi", frekar krúttlegt. En annars er að aukast hratt við orðaforðann hans, ég áttaði mig á því hvað ég segi oft "jæja" þegar það var u.þ.b. sjötta orðið sem hann lærði! En það er mjög sætt þegar hann labbar um "jæja". Svo kann hann fullt annað, er náttúrulega svo ÓTRÚLEGA vel gefinn! Enda eingetinn ;)
Annars get ég ekki beðið eftir að fara í jólafrí eftir viku, vera í fríi með litla apanum og eiga quality tíma með fjölskyldunni, borða á mig gat og taka vel á því í ræktinni, það er uppskrift af fullkomnu fríi í mínum heimi :) Nenni ekki að blogga meira í bili, kem kannski aftur soon. Ef ekki þá bara gleðileg jóla og hafið það endalaust gott <3
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)






Engin ummæli:
Skrifa ummæli