miðvikudagur, júlí 09, 2014

júlí blogg

Það er bara alveg fullt að frétta frá því síðast! Í fyrsta lagi þá fengum við okkur annan kött! Það voru svo sem einhverjir búnir að spá því en það er ekki bara útaf því að ég er crazy cat lady, heldur var málið það að Pjakkur minn var svo einmana :( Ég heyrði alltaf í honum vælandi inni þegar ég var að koma heim, og þar sem ég er svo að fara til UK í næstu viku þá fannst mér ömurlegt að skilja hann eftir einan meira og minna. Og þar sem ég hef reynslu af því að eiga tvo ketti og vissi að það væri ekkert meira mál þá ákvað ég að fá kisuvin fyrir hann :) Þannig að ég fór aftur upp í Kattholt og litla ljónastelpan mín hún Nala varð fyrir valinu. Hún var nefnd Perla upp í Kattholti en mér finnst hún ekkert Perlu-leg þannig að ég ákvað að breyta nafninu í Nala þar sem mér finnst hún svolítið ljónsleg í útliti :) En hún var nefnd Perla af því að hún fannst við Perluna, er ein af þeim kisum sem hafa verið skildar eftir á víðavangi. Mér finnst alveg óþolandi að fólk láti ekki gelda og örmerkja kettina sína, og enn ömurlega þegar þeim er svo alveg sama um líf kattana að þeim er bara hent einhvers staðar út á víðavangi!

Nala er alveg yndisleg, allt öðruvísi en Pjakkur, þ.e.a.s ekki alveg jafn umburðarlynd fyrir Bjarna-ást en hún höndlar hana í litlum skömmtun og mér finnst hún vera aðeins að linast gagnvart honum. Hún hins vegar eltir mig eins og skugginn og ef ég sest einhvers staðar niður þá hlammar hún sér í fangið á mér og malar eins og traktor. Hún og Pjakkur slógust töluvert fyrsta daginn en þá um kvöldið lágum við 3 hérna í rólegheitunum og þá náðu þau að bonda og hafa verið óskiljanleg síðan :) Krúttskalinn er frekar hár hérna á heimilinu ef ég á að segja eins og er! Er alveg að elska þetta :) Hún varð reyndar lasin fyrir helgi og ég fór með hana upp á spítala og hún fékk nánast dauðadóm! Læknirinn sem talaði við mig sagði að þau væru nokkuð viss um að þetta væri banvænn, tærandi sjúkdómur sem hún væri með, ég var send heim með lyf og sagt að koma aftur á mánudag. Þegar ég mætti á mánudeginum þá gerði ég ráð fyrir að ég væri að fara að láta svæfa hana og var búin að undirbúa mig fyrir að vera að fara að missa kisu þann daginn. En svo var litla ljónynjan hitalaus, og læknirinn bara:"humm já, þetta hefur bara verið einhver vírus". Eftir á að hyggja þá skil ég ekki hvað læknirinn var að spá, af hverju sagði hún mér ekki bara að gefa henni lyfin sín og koma aftur á mánudag og sjá hvernig hún væri! Ég var hálf miður mín alla helgina yfir þessu, og svo fékk ég svo litlar upplýsingar frá henni nema að Pjakkur væri þá pottþétt smitaður líka og eitthvað, og ég var hálf ónýt yfir að vera mögulega að fara að missa báðar kisurnar mínar! En svo bara ekkert, orðin stálhress litla dýrið, þvílíkur léttir! :)

Hins vegar þurfti ég að fara með Pjakk í gær þar sem hann var kominn með augnsýkingu en hann fékk bara dropa með heim og er að braggast, en ég var að hlæja að því um daginn að um leið og Bjarni Lár er hættur með eyrnavesen (reyndar komið ár síðan 7-9-13) þá fæ ég mér kisur svo að ég þurfi nú örugglega að vera að eyða tíma og peningum í lækniskostnað..!

Svo erum við að fara til Skotlands á sunnudag, og ætlum að kíkja eina helgi niður til Henley (þar sem ég bjó). Verður alveg 3 vikna frí, og miðað við hvernig sumarið hér hefur spilast veðurfarslega þá er ég mjööööög fegin að hafa tekið þessa ákvörðun! Get ekki beðið! :-D (myndin er af Bjarna Lár og Nölu, hún höndlar hann í litlum skömmtum ;))

Annars er smá update frá faðernismálinu, svona fyrst að ég byrjaði að tjá mig um það hérna um daginn en það virðist vera að það sé milliríkjasamningur sem gerir það kleift að framfylgja dóminum á milli landa og er það komið í ferli. Ég las grein um daginn eftir konu sem fékk aldrei að vita hver faðir sinn var og eftir að hafa lesið þá grein þá er ég enn vissari um að ég sé að gera rétt, ég vil hafa þetta staðfest fyrir BL þegar hann verður orðinn nógu stór til að spyrja spurninga. Magnað hvað hann ætlar að gera þetta erfitt fyrir, það er ekki eins og ég hafi farið fram á eitt né neitt frá honum nema bara að barnið verði feðrað. En það er líka alveg morgunljóst að síðasta fíflið er ekki fætt :)


Eins og ég hef samt margoft sagt þá er missirinn algjörlega hans, þvílíkt eintak sem ég á! Ég veit að ég er augljóslega hlutdræg og öllum finnst barnið sitt best, sem er bara hið besta mál, öll börn eiga skilið að eiga allavega einn grjótharðan aðdáanda! Reyndar er nánast í hvert sinn sem ég sæki hann á leikskólann:"hann datt þegar hann var að klifra þarna", "hann sprengdi vörina aðeins", svo í gær þá var mér sagt að hann hefði skollið með hnakkann á hillu, þá voru þeir tveir að knúsast og duttu á hilluna! Ég sagði við leikskólakennarann að það væri hægt að meiðast við verri hluti en það! En sem mamma hans þá þarf ég bara að venjast þessu, hann er ótrúlega frakkur og þá fylgir bara að maður meiði sig! Og hann fær þetta beint frá mér, þannig að ég get ekkert sagt! Ég var víst algjör "martröð" þegar ég var krakki, hangandi á borðbrúnum, klifrandi upp á svalahandrið og handleggsbrotnaði rúmlega 2 ára við að klifra upp á eldhúsinnréttinguna! En já, mér finnst hann endalaust duglegur og klár, er svaka duglegur á hlaupahjólinu sínu, farinn að sofa í sínu eigin rúmi, hlýðir orðið mjög vel þegar ég banna honum eitthvað og elskar Do-Do-Dóru útaf lífinu! Eins og maður er nú oft stressaður yfir að maður sé ekki nógu mikið svona og hitt, eða of mikið svona og hinsegin, þá er ég mjög ánægð með hvernig þetta er allt að takast til hjá mér :) Vonum svo bara að það haldist..!

Jæja vá þetta fer að verða komið gott, er við það að láta lífið úr þreytu! Til hamingju ef þið nenntuð að lesa þetta allt :)

Og að lokum kannski bara að minna á að ég var að skrá mig á hlaupastyrkur.is og ég hleyp alltaf fyrir SKB í minningu Andra. Ótrúlegt að hugsa til þess að það séu komin 6 ár síðan hann dó, en manni finnst alltaf eins og það sé nýskeð. Hann hefði orðið 13 ára núna í nóvember. Ég sá komment frá einni konu við frétt um aðra konu sem hafði misst barnið sitt, og ég er svo innilega sammála því hún sagði:"Það á að vera bannað að missa barnið sitt." En svona held ég minningu hans á lofti og get vonandi látið eitthvað gott af mér leiða í leiðinni <3
http://www.hlaupastyrkur.is/einstaklingar/keppandi?cid=20261

Later...





Engin ummæli: