Það datt yfir mig einhver bloggandi þannig að ég ákvað bara að láta vaða ;) Oh ég get ekki beðið eftir að jólafríið detti í hús! Ætla að taka líka frí frá þjálfun milli jóla og nýárs þannig að þetta verður mjöööög notalegt, sérstaklega þar sem ég er búin að "öllu" fyrir jólin :) Tek reyndar ekki þátt í neinu rugli, gef bara nánustu fjölskyldunni gjafir og svo ætla ég ekki að senda nein jólakort þetta árið, ætla frekar að nota samsvarandi upphæð í góðgerðamál (sannargjafir.is) en þá velur maður hvað maður vill gefa, ég ætla að gefa námsgögn, varnarpakka gegn ebólu og bólusetningar fyrir ungabörn. Þó að maður geti ekki bjargað heiminum þá getur maður allavega lagt sitt af mörkunum og ég ákvað að nota peningana frekar í þetta, ég er hvort sem er svo virk á facebook að það sjá allir nóg af myndum af barninu mínu hvort sem er ;) En svo er ég búin að pakka inn öllum jólagjöfunum, hef gert það í rólegheitunum hérna á kvöldin og svo verða þetta bara almenn þrif. Er reyndar búin að fara í gegnum fataskápana og er fara með úlpur og föt sem ég er hætt að nota í Hjálpræðisherinn, og föt af Bjarna Lár í Hjálparstofnun kirkjunnar. Ömurlegt að vita af einhverjum þarna úti í kuldanum þegar ég er með úlpu og hlýjar peysur inn í skáp sem eru ekki í notkun :-/ En að öðru leyti verða jólin bara notuð í að æfa, slaka á og eyða tíma með fjölskyldunni, og þá sérstaklega litla rassálfinum mínum :)
Talandi um rassálfinn, ég held að ég verði seint valin "móðir ársins", sérstaklega ekki af starfsfólkinu á deildinni hans Bjarna Lárs eftir að við fengum hann Lappa í heimsókn til okkar! Þetta er í fyrsta sinn sem Bjarni Lár fær eitthvað svona dýr með sér heim þannig að mér fannst þetta ákveðinn áfangi en eitthvað var erfinginn minna spenntur! Hér á eftir er sagan sem fylgir Lappa tilbaka í leikskólann (það er svona sem þetta gerðist en ég hefði kannski átt að hugsa þetta eitthvað aðeins betur áður en ég actually skrifaði hana..!):
"Lappi kom heim með Bjarna Lár í dag. Því miður var engin skemmtidagskrá plönuð fyrir Lappa og satt að segja fékk hann heldur óblíðar móttökur! Bjarni Lár var að klæða sig úr útifötunum og ætlaði svo að klæða Lappa úr. Þar sem ekkert er hægt að taka húfuna af Lappa þá fór Bjarni Lár í fýlu og henti honum í gólfið! Hann jafnaði sig þó að lokum og leyfði Lappa að hanga með sér á meðan hann lék inn í herbergi og svo horfðu þeir saman á "finger family" á iPadinum. Lappi verður ábyggilega feginn þegar honum verður skilað á morgun"
En jæja svo ákvað ég að fá mér loksins ljósleiðara og með því fylgja nokkrar sjónvarpstöðvar. Ég hálfvorkenndi gaurnum sem var að leggja leiðarann þegar við vorum að ræða hvernig ég hef búið s.l. ár, s.s einstæð með tvo ketti og bara Rúv og Omega! Enda hef ég aldrei séð neinn vinna svona hratt, hefur sennilega viljað komað sér héðan hið snarasta, ég meina maður veit aldrei hvað svona klikkaðar kattakellingar taka uppá..! o.O
Oh dísús hvað ég get stundum orðið pirruð á samlöndum mínum, og þá sérstaklega í umferðinni! Ég var t.d að keyra Lækjarsmárann um daginn, gatan sem liggur að Sporthúsinu, liggur um íbúðahverfi og 2 leikskólar þarna við götuna. Þannig að það er 30 km hámarkshraði þarna og alveg af góðri ástæðu, enda legg ég fram við að halda mig á/innan þess hraða. Eitt sinn þegar ég var að fara að þjálfa þá lá einum greinilega svona SVAKALEGA mikið á að hann lá í rassgatinu á mér, svo þegar ég stoppaði við gangbraut til að hleypa konu yfir þá ætlaði fíflið að taka fram úr mér! Konugreyinu brá og hrökk alveg tilbaka en sem betur áttaði fíflið sig og stoppaði í tæka tíð (afsakið orðbragðið en ég verð ennþá BRJÁLUÐ þegar ég hugsa um þetta!) jæja svo kom að því að ég beygði niður að Sporthúsinu en þá gat hann ekki beðið með að ég kláraði beygjuna heldur gaf í og spændi yfir á hina akreinina og sparaði sér þarna sennilega alveg 3-4 sekúndur...
Annars var ég orðin svaka spennt yfir að Bjarni Lár fengi í skóinn, en ég hætti því snarlega eftir nokkur svona samtöl:"
Ég:"Eigum við að fara að athuga hvort jólasveinninn hafi komið?"
BL:"Nei"
Ég:"Eigum við ekki að athuga hvort það sé eitthvað dót í skónum þínum?"
BL:"Nei"
Gaman að segja frá því að hann fékk bara í skóinn í 3 daga og gæti ekki verið meira sama, prófum aftur á næsta ári :) Annað sem er að frétta er að hann fór í jólaklippingu, frekar sætur! Þannig að mig langaði auðvitað að sýna klippinguna og bað hann að brosa í myndavélina, þetta er svipurinn sem ég fékk
Spurning hvort hann hafi lært af kisunni, eða kisan af honum??
Það eru þónokkuð margir búnir að spyrja mig hvort eitthvað sé að frétta af faðernismálinu, en eftir að dómurinn var þýddur og sendur út þá hef ég ekkert frétt, sendi línu á lögfræðinginn minn en þau hafa ekkert heyrt þannig að ég geri bara ráð fyrir að þetta sé í einhverju ferli þarna úti, er ekki mikið að stressa mig á þessu, þetta hlýtur að klárast að lokum :)
En í kjölfarið á þessari spurningu eitt skiptið þá spunnust upp umræður um þessar aðstæður og hvað þetta er í raun algengt. Ég persónulega tók strax þann pólinn í hæðina að gleðjast yfir tilvonandi barni og hugsa minna um þær óblíðu viðtökur sem fréttirnar fengu hjá barnsföður mínum. Ég gerði honum það ljóst að ef hann hefði áhuga á að taka þátt í lífi barnsins þá væri það alltaf velkomið en ákvað jafnframt með sjálfri mér að láta hann bara eiga sig að öðru leyti, enda hef ég ekki áhuga á að þröngva barninu mínu upp á mann sem vill ekkert með það hafa, auk þess sem mér var ráðlagt það af löggunni, en það er önnur saga ;) En já, það sem ég hef verið að hugsa upp á síðkastið eru viðbrögð fólks í kringum konur í þessum aðstæðum, oft heyrir maður "hann á að taka þátt", "hann á að taka ábyrgð og borga hitt og þetta" o.s.frv. En sannleikurinn er sá að fyrir utan meðlag, fermingarkostnað og tannréttingar þá EIGA þeir ekki að gera neitt, allavega ekki lagalega séð, og svo er siðferðiskennd fólks misjöfn, og við þurfum að átta okkur á því þegar við ákveðum að halda áfram með meðgönguna og eiga barnið. Ef þeir eru búnir að gera það skýrt að þeir vilji ekki taka þátt þá þarf maður svolítið að "virða" það og vera tilbúinn að bera hitann og þungann af þessu sjálfur, svo að maður sé ekki að eyða endalausum tíma, orku og særindum í að verða fyrir vonbrigðum yfir því að hann sé ekki að taka þátt eða borga eitthvað á móti manni (þó að ég beri enga virðingu fyrir mönnum sem hafa ekki samband við barnið sitt/börnin sín, og ég myndi aldrei líta við þannig gaur, mér finnst það algjörlega óskiljanlegt og bera vott um skítlegan persónuleika, en það er allt annað mál :) pointið er að þeir vildu ekki barnið en við höfðum valið). Ég skil samt alveg rökin að "menn eigi að bera ábyrgð" og ég er ekkert að fría þá undan þeirri ábyrgð (og mér finnst ákvörðun þeirra óskiljanleg), þeir hljóta að átta sig á því hvernig börnin verða til (reyndar heyrist ansi oft frá þeim að við höfum verið að reyna að verða ófrískar (þá sennilega til að halda í þessa gullkálfa sem þeir eru?), að við höfum logið að við værum á getnaðarvörn, o.fl., maður er búinn að heyra sömu rulluna ansi oft frá ansi mörgum konum í þessum aðstæðum ;)) Ég las eitt sinn viðtal við sem sagði að besta ráð sem hann hefði fengið hefði verið frá Simon Cowell, og það var:"ekki sofa hjá konu nema þú sért tilbúinn að eignast barn með henni", og þetta er satt að segja eitthvað sem karlmenn ættu að hafa bakvið eyrað ;)
En já, fólk í kringum mann er svolítið líka að segja manni reynslusögur af mönnum sem höfðu verið með yfirlýsingar um að ætla sko ekkert með barnið að hafa en svo þegar það fæddist og þeir hittu það hafi þeir breyst o.s.fr.v o.s.frv. Hluti af manni vonaðist auðvitað eftir því, að barnið manns fengi að eiga pabba, og ef ég á að vera hreinskilin þá var ég sennilega sannfærð um að hann myndi róast og linast í afstöðu sinni og vilja taka þátt í lífi sonar síns. Þess vegna var það líklega það besta sem kom fyrir mig var þegar ég var að spjalla við kunningja minn og talið barst að þessu og ég sagði eitthvað:"já svo kannski breytist þetta þegar barnið fæðist", þá sagði hann, og vá hvað var ekki gott að heyra þetta á þessum tíma en eftir á að hyggja er ég mjög þakklát honum, en hann sagði:"Það er ekkert víst, það er ekkert víst að honum snúist hugur. Það eru menn þarna úti sem vilja bara ekkert með börnin sín hafa þannig að ég myndi ekkert vera að búast við því." Og eftir á að hyggja er þetta ábyggilega það besta sem kom fyrir mig á meðgöngunni, engar vonir eða væntingar um þátttöku föðurins og þar af leiðandi engin vonbrigði :) Ég hef þó sent honum póst eftir að hann fæddist og ítrekað það að hann væri alltaf velkominn inn í líf hans og einnig sendi ég ömmu Bjarna Lárs póst og sagði það sama, að dyrnar yrðu alltaf opnar. Ég fékk svo sem engin svör en boltinn er hjá þeim og þau þurfa að lifa með sér og missa af því að kynnast þessum snillingi, á meðan er ég að njóta þess í botn að vera mamma hans, se er alveg klárlega besta hlutverk í heimi :-D Vá þvílík langloka! haha en þetta er allavega komið úr hausnum á mér og ég geri mér alveg grein fyrir að mögulega eru einhverjir ósammála mér en ég er alls ekki að gera lítið úr því að konur verði sárar og bitrar yfir þessari framkomu barnsfeðra þeirra, þær tilfinningar eru algjörlega skiljanlegar og réttmætar, en sjálfrar mín vegna þá fannst mér allavega gott að minna mig á að ég valdi að eiga barnið og ber þ.a.l. ábyrgðina á því og geri bara það sem þarf að gera án þess að vera pirruð yfir að það sé ekki einhver annar að gera það á móti mér (vona að þetta skiljist!) En ekki má gleyma að ég er nottla með mjög gott bakland og yndislega fjölskyldu á bakvið mig, og þá sérstaklega foreldrar mínir sem hafa alltaf verið boðin og búin að aðstoða mig, ég geri mér alveg grein fyrir því að það er ekki sjálfgefið...
Ég ætla að enda þetta á skemmtilegri nótum, svona ef einhver er ennþá að lesa! Litla gerpið er nottla með töluvert mikla orku og er mikið í því að hoppa í sófum og rúmum og svona alls staðar sem hann á ekki að vera að hoppa og ég hef bara verið að bíða eftir slysó ferð til að sauma gat á hausnum! En svo sá ég að vinkona mín í útlöndum keypti trampólin fyrir dóttir sína og ég ákvað að spyrjast fyrir um það á facebook, og það klikkaði ekki (ég elska facebook!) að yndisleg vinkona mín hafði samband og sagði mér að þau væru að losa sig við trampólín sem dóttir þeirra ætti og Bjarni Lár mætti fá það! Algjörir öðlingar! Enda hefur hann varla farið af því í dag! En það var einhver voða púki í honum þegar hann átti að fara að sofa, kannski af því að hann fór ekki á leikskólann, svaf út í morgun og fór frekar seint í lúrinn sinn, en hann var sko ekki í stuði til að fara að sof aum kl.20:30! Við lásum auðvitað en svo bara hann að skríða yfir mig skellihlæjandi, svo sneri ég baki í hann og þóttist vera sofandi þegar ég heyri eitthvað brölt, þá er dýrið komið upp í gluggakistu! Jæja ég næ honum niður en þá segist hann vera svangur og vilja borða, og auðvitað vil ég ekki að barnið fari svangt í háttinn þannig að ég féll fyrir þessu, en litla gerpið hljóp beint á trampólínið og fór að hoppa! Hann var sem sagt bara að ljúga og var ekkert svangur! Gaman að segja frá því að hann sofnaði ekki fyrr en rúmlega 22..!
Ætla að enda þessa færslu á nokkrum myndum, meðal annars þar sem hann var á leið á jólaball á leikskólanum, endalaust sætur! Og þar sem hann var að hjálpa mér að pakka inn gjöfum o.fl. En ég á pottþétt ekki eftir að blogga aftur fyrir jól þannig að ég óska ykkur öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Ást á ykkur öll <3










Engin ummæli:
Skrifa ummæli