mánudagur, febrúar 13, 2017

Að vera samkvæmur sjálfum sér

Mér finnst ótrúlega gott að eldast, síðustu árin hef ég vandað mig við að taka ákvarðanir í lífinu og eftir því sem meira jafnvægi kemst á hausinn og tilfinningarnar þeim mun betri verður ákvarðanatakan.
Ég átti samtal í gær þar sem ég var að tala um að það er samt pottþétt einhver þarna úti sem finnst maður vera fífl, og þegar ég var yngri þá var ég vissulega oft fífl. En það er hægt að ákveða að vera ekki fífl og ég tók ákvörðun um það fyrir ansi mörgum árum að reyna að vera ekki fífl. Hefur gengið misvel en ég vona svo innilega að flestir sem umgangist mig í dag finnist ég ekki vera fífl. Ég er vissulega skoðanaglöð og hef sterkar skoðanir og ríka þörf til að tjá skoðanir mínar, en hef æft mig í að setja þær fram á málefnalegan hátt. Þó að það færist hiti í rökræðurnar að halda sig við málefnið, að fara ekki í manninn no matter what. Auðvitað hefur maður sagt eitthvað sem maður hefði ekki átt að segja en þá þarf maður bara að taka á honum stóra sínum og biðjast afsökunar, annars er maður algjört fífl.


Ég held persónulega að þetta sé allt spurning um ákvörðun, að þó að maður sé pirraður eða illa upplagður að láta það ekki bitna á öðrum, að leyfa sér ekki að vera dónalegur við afgreiðslufólkið í búðinni o.s.frv,sem sagt að leggja sig fram við að koma vel fram við alla, alltaf. Því miður bitnar pirringur of oft á þeim sem standa manni næst en það er þá val að segja ekki eitthvað sem særir. Og enn og aftur að kunna að biðja afsökunar. Og passa sig svo á að borða reglulega ;)



En já, þegar maður er að reyna að vera ekki fífl, jafnvel bara svolítið almennilega manneskja, þá er samt ótrúlega erfitt að vera samkvæmur sjálfum sér! Ég er til dæmis að reyna að vera dugleg að flokka en ég veit til dæmis ekkert hvar ég á setja álpappír! (ef einhver veit það þá má sá hinn sami segja mér það!) Ég vil ekki kaupa vörur af Ali express vegna þess að þar er stuðst við barna- og vinnuþrælkun, en svo versla ég í H&M og geng í Nike sem eru ekki barnanna best í þessu! En það er til listi yfir framleiðendur sem neita að taka þátt í þessu, til dæmis Adidas og Under Armour svo dæmi séu nefnd af íþróttavörumerkjum. Framleiðendur sem hlíta lögum um lágmarkslaun, aldur starfsmanna og hvíldarákvæði þannig að ég mun í auknum mæli beina viðskiptum mínum þangað í framtíðinni.

Það sem fer bara rosalega mikið í taugarnar á mér er að þessi risa fyrirtæki sem velta milljón, trilljón, billjónum, geti ekki séð sóma sinn í að koma vel fram við fólk! Að þeim finnist í lagi að misnota sér neyð annara með því að láta börn vinna við framleiðsluna, að fólk vinni myrkranna á milli, fái ekki einu sinni lágmarkslaun, ef þau fá þá laun yfir höfuð!

Maður er svo vanmáttugur eitthvað einn í sínu horni að reyna að bjarga heiminum á meðan fólk og fyrirtæki sem gætu raunverulega breytt svo miklu, fyrir svo marga , velur að gera það ekki! Eykur jafnvel á eymd þeirra ef eitthvað er :-/

Jæja nóg af tuði bili, ætla að fara að knúsa barnið mitt fyrir svefninn og þakka fyrir að við fæddumsst á Íslandi en ekki á einhverjum ruslahaug í Indlandi. Later...

Engin ummæli: