Ég hef verið að hugsa um það upp á síðkastið hvað ég sakna þess að blogga, sakna þess að skrifa og koma frá mér hlutunum. Ég nenni eiginlega ekki lengur að henda í langa facebook statusa (þó að ég geri það nú alveg af og til!) en langar samt oft að skrifa um eitthvað sem ég er pæla, þannig að ég ákvað að gera tilraun með að endurvekja bloggið mitt, veit samt ekkert hversu langlíft það verður en það kemur bara í ljós, er á meðan er :)
Vá hvað tíminn er samt fljótur að líða, hef ekki bloggað síðan 2017, finnst eins og það sé styttra síðan ég henti í færslu! En síðan þá hefur ýmislegt gerst, ég flutti í Borgarnes, keypti hús, gifti mig, fékk mér hund og kött og byrjaði að kenna í Grunnskólanum í Borgarnesi. Þetta er útsýnið frá húsinu okkar, ég er þakklát fyrir það á hverjum degi!
Meðgangan sjálf var líka frekar erfið, ég var mjög þreytt og þjáðist af mikilli ógleði þannig að æfingar og önnur hreyfing hafa ekki verið í forgangi og vá hvað ég er í vondu ásigkomulagi núna! Man ekki eftir því að hafa nokkurn tímann verið í svona vondu standi! En ljósi punkturinn er sá að núna liggur leiðin bara upp á við! En já, það er líka eitt af því sem ég er spennt fyrir að blogga um, að vinna sig upp úr algjöru þroti!
Annars er aldrei að vita í hvaða átt bloggið mun stefna, verður sennilega bara geðþóttaákvörðun hverju sinni, mér finnst oft mjög fyndið að lesa gamlar færslur, þvílíka grillveislan sem var oft í gangi! En nú er ég orðin eldri og mögulega aðeins vitrari! Við sjáum hvernig þetta fer 😂
Ooooog af engu tilefni þá ætla ég að enda færsluna á hundinum mínum honum Rökkva 💓
Þar til næst...


Engin ummæli:
Skrifa ummæli