Já þessi helgi byrjaði ekkert sérstaklega vel:-/ Ætlaði að bruna útúr bænum um 6-leytið á fös. en þar sem allt "holla" stöffið sem ég keypti er að ég held ekkert sérstaklega hollt í mallann! Fór að heiman og ætlaði að leggí'ann en rétt meikaði að komast uppá Hjaltó til mömmu og pabba (komst sem sagt úr kópavoginum í breiðholtið!) þá varð ég bara að stoppa, ég var orðin svo sárkvalin í maganum. Ég fór þar inn og tók e-r magatöflur sem ég átti og svo þurfti ég bara að liggja. Ég var svo þjáð að ég hef sjaldan upplifað annað eins. Var meirsegja í alvörunni að spá í að fara upp á spítala. Og yfirleitt er ég nokkuð hörð af mér (þ.e þegar kemur að líkamlegum sársauka, er algjör auli þegar kemur að andlegu hliðinni) Þar lá ég með krampa í maganum í tæpa 2 tíma, þá byrjaði ég aðeins að skána og ákvað að skella mér austur á ættarmótið sem var rétt hjá Skálholti. Var samt töluvert illt allann tímann og fór bara snemma að sofa. Tók að mér að svæfa litlu frændur mína 2 (Sindra og Andra) sem eru algjörara snúllur. En allir ættingjar mínir sem ég þekki ekki neitt halda eflaust að ég sé massa leiðinlegt merkikerti því ég var ekki mikið að mingla eða taka þátt í samræðum.
Vöknuðum svo snemma í morgun, tók smá fússara (fótbolta fyrir þá sem eru ekki sleipir í þýskunni;o)) með Sindra og svo var farið í sund upp úr hádegi. Þá tókst litlu greppitrýnunum að plata mig til að fara með sig í rennibrautina. Það þurfti reyndar ekkert að suða lengi. EN þetta er ábyggilega furðulegasta vatnsrennibraut sem ég hef prófað. Ég þurfti að ýta mér niður! Stoppaði bara alltaf (nei, ég fyllti ekki út í hana!) mar rann bara ekki neitt, ég setti meirsegja upp í rassinn og allt! En ég þurfti að láta mig hafa nokkrar ferðir fyrir litlu gerpin.
Fórum svo í Slakka sem er dýragarður með allskyns dýr en þó aðallega heimilisdýr. Þar var ég eiginlega allann tímann hjá hvolpunum og var bara að halda á þeim. Vá hvað ég þarf að fara að eignast hund! En ég gat samt ekkert rosalega mikið notið þess að vera þarna. Ég get svo svarið það að ég er nokkuð viss um að hvolpunum er gefið e-ð róandi! Það var endalaust hnoðast með þá og þeir voru bara sofandi og gegt dofnir allann tímann, lágu bara á jörðinni og sváfu svo í fanginu á manni þegar mar var með þá. Ekki mjög hvolpalegt! Svo ætlaði ég að setja einn niður og hann stóð ekki í lappirnar og lympaðist bara niður! Við vorum þarna í 1 og 1/2 tíma og það rann varla í þeim blóðið. Svo voru greyið kettlingarnir svo skíthræddir að þetta getur bara ekki verið gott fyrir geðheilsu þeirra til lengri tíma litið. Ég allavegna var með e-ð skrýtna tilfinningu yfir þessu öllu saman. Finnst að dýraeftirlitið ætti aðeins að tékka hvað er í gangi.
Brunaði svo í bæinn eftir kvöldmatinn á ættarmótinu, beint til Hafrúnar, í djammdressið, skellt í sig nokkrum pepsi max glösum og svo haldið á Hverfis. Fastir liðir as usual;o) Var að koma heim núna, edrú og fersk. Hlakka mjög mikið til að vakna líka fersk og skella mér í ræktina. En vá hvað djammið er alltaf eins. Mér finnst yndislegt að vera bara á bíl, kíkja aðeins en geta svo barasta sest upp í bíl og keyrt heim. Engin peningaeyðsla, engin leigubílaröð, engin þynnka, enginn mórall og síðast en ekki síst, engir kynsjúkdómar! ;o)
Þannig að nú ætlar litli englabossinn að hoppa upp í rúm, lúlla eins og hænuungi og vakna fersk til að fara á æfingu. Þá ætla ég sko að hía á alla sem verða þunnir:oD
Góða nótt....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli