Fyrst hélt ég með grikkjum af því að mér fannst þeir miklu sætari en svo þegar tékkarnir byrjuðu að svitna þá unnu þeir þvílíkt á og ég var eiginlega farin að halda með þeim undir lok fyrri hálfleiks. Snorrinn hennar Hafrúnar sagði að grikkirnir væru með huge nef en ég vildi nú ekki samþykkja það, til að byrja með. Svo þegar grísku goðin byrjuðu að svitna og hárið byrjaði að sleikjast niður þá komu stóru nefin betur í ljós og mér fannst þeir ekkert sætir lengur. En hins vegar tékkarnir og þá sérstaklega Baros, OH MY GOD! Það er allavegna e-r ástæða fyrir því að ég hékk í klukkutíma brennslu eftir æfingu til að horfa á leikinn;o) Ég hefði svo sem alveg verið til í að horfa á þá svitna aaaaaaðeins lengur!
En ég held með portúgölum í úrslitaleiknum, vona að ég sé ennþá happadýrið þeirra..!
Hehe, fékk mér baunaréttinn góða í kvöldmat og Svava ákvað að hrósa happi yfir að deila ekki með mér herbergi í nótt! hahaha, en ég mæli sko alveg með Lindu McCartneys réttunum, algjör snilld! Bragðgóðir og gegt hollir. Er alvarlega að spá í að verða grænmetisæta, eiginlega það eina sem ég þyrfti að klippa útúr fæðinu mínu væri kjúlli og hann er svo ógó dýr að ég yrði bara fegin að losna við þau fjárútlát. Ég ætla að spá í þessu yfir helgina, verð búin að ákveða mig á mánudag;o)
Er farin að lúllast, góða nótt...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli