miðvikudagur, júní 30, 2004

Loksins búin að finna mitt lið!

Ákvað í upphafi leiksins áðan að halda með Portúgal. Og svei mér þá ef ég er ekki nokkurs konar lukkudýr, mínir menn unnu nottla:oD Skoruðu öll mörkin í leiknum, unnu 2-1. Ákvörðun mín um að halda með portúgal byggðist samt eingöngu á því að mér þótti Portúgal yfir heildina litið með fallegra lið! ;o) Ok, Edgar Davids er að vísu mjööööög vel skapaður en portúgalirnir voru með fleiri frambærilega. Eða eiginlega voru bara allir gorgeous! Ég veit ekki hvort fótboltahæfileikarnir spili e-ð inní en skyndilega fannst mér Luis Figo ómótstæðilegur! Hefur aldrei þótt hann neitt sérstaklega sætur. Eða kannski spilar of löng einhleypingstíð meira inní þetta, mar er bara orðinn sveltur hérna meginn. Þá er nú líka eins gott að hugsa sér gott til glóðarinnar við að horfa á EM! Gott Bjarney, mjöööög raunhæft markmið *klapp á öxlina* Jæja, mar má nú láta sig dreyma;o)

Var rosa dugleg á æfingu, fór nebblega í brennslu og horfði á leikinn. Var sem sagt í 80 mín. í brennslu og þá nennti ég ekki meir og horfði á restina frammi á sjónvarpinu þar. Nennti sko ekki meir af því að ég var búin að lyfta líka, bara konulyftingar samt. Eða reyndar var karlahandboltalandsliðið að lyfta við hliðina á mér þannig að þetta voru svona semi-konulyftur, þurfti nottla aðeins að rembast! En samt framför hjá minni:o) Ég gat samt ekkert verið að rembast of mikið, ég borðaði nebblega einhvern baunarétt í hádeginu þannig að ef ég hefði rembst of mikið þá hefði ég líklegast byrjað að ulla á liðið (og þá erum við ekki að tala um með tungunni)og það er nú ekki gott fyrir reputationið!
Eins framleiðir maður óheyrilegt magn af eiturgufum við svona baunaát en ætli ég sé ekki nú þegar komin með too much info þannig að ég læt þetta gott heita í prumpfréttum.

Og nú hef ég ekkert meira að blogga um, ætla að skunda í háttinn. Þarf að vakna snemma as usual, er að melta það hvort ég eigi að fara í brennslu á fastandi en ég er komin með nýjan uppáhalds morgunmat sem ég hlakka svo til að borða að ég er að spá í að sleppa brennslunni svo að ég geti borðað nýja uppáhalds morgunmatinn minn:oD Finnst ykkur ég tala í hringi?! Júbb, það er hér með ákveðið, ég ætla ekki í brennslu á fastandi, er í pásu um 8:30, fer bara þá. Fer svo reyndar líka í slendertone (a.k.a trimmform) kl.12 og svo æfing seinnipartinn. Kræst Bjarney, viltu fara að eignast líf!!! Ég er að reyna, en samt langar mig svo að geta verið í hlýrabol ef það verður gott veður í Köben og það eru bara rúmar 2 vikur þar til ég fer. Jæja, 2 vikna manía og svo fer ég að slaka á, LOFA! ;o)

Góða nótt...

Engin ummæli: