Ég ákvað að fara ekkert í bloggpásu. Ef einhverjum finnst bloggið mitt leiðinlegt þá getur sá hinn sami bara sleppt því að lesa það. Ég verð eins og lítill njálgur ef ég blogga ekki. Ég skal samt fara að setja hausinn í bleyti og reyna að gera það skemmtilegra. Verð líka að fara að ná í Poppa (já hann er ennþá hjá mömmu&pabba!) þá get ég farið að öppdeita ykkur um lífið á þeim bænum. Eða þeirri kúlu, held að hún sé of lítil til að teljast bær.
Humm, hvað er búið að gerast síðan síðast?
Held að ég sé hætt við að fara útúr bænum. Nenni engan veginn að fara að sofa í tjaldi í rigningu. Ætli ég endi ekki á að fara með tjald niðrí Laugardal og reyni að komast í útilegufíling þar. Eða verð bara heima, reyni að slappa af og ekkert djammstand núna! Ætla reyndar pínu útúr bænum. Ég og Solla ætlum að skella okkur á Selfoss á FM-hnakkasamkomu (þar sem ég hef verið tilnefnd sem yfirhnakki vegna tónlistarsemkks míns), neh djók. Við ætlum að fara að taka æfingu með Önnu Bellu, The fitness queen. Kæmi heldur ekki á óvart þó kíkt væri í Eden í leiðinni og fengið sér eins og einn ís:o)
En talandi um FM-hnakka, þá finnst mér ekkert athugavert við að uppháldslagið mitt núna sé nýja lagið með Britney Spears, ég er ástfangin af Blue og ég fíla ekki U2! Vó, þetta rímaði meirsegja! Og ef þetta gerir mig að yfirhnakka þá tek ég titlinum með bros á vör;o) Ekki samt byrja með einelti þó mér finnist þetta. Þetta breytist ekkert þrátt fyrir tilraunir "ýmissa" aðila til að hafa áhrif á mig(heyrirðu það Eva!) En ég er alveg opin fyrir ýmsum tónlistarstefnum en stundum verð ég suicidal við að hlusta á það sem mér finnst ógeðslegt. Eins og t.d Simply Red, ojjj ég kúgast við tilhugsunina. Mér verður í alvörunni svona líkamlega illt alls staðar þegar ég heyri lag með þeim! Og fullt í viðbót, man það bara ekki núna en ég skal skrifa það um leið og ég manða.
Er búin að vera gegt dugleg að æfa, skellti mér meirsegja á línuskauta í gær. Það var geggjað veður en ég sat í bílnum og ætlaði í brennslu INNI. Var að keyra á æf, en vissi af línuskautunum í skottinu og spelkunni í aftursætinu. Þannig að ég hafði nákvæmlega enga afsökun til að fara ekki að skeita. Skellti mér sem sagt niðrí Nauthólsvík, setti upp Nike útvarpið og sólbrillurnar og renndi mér af stað. Þetta var bara geðsjúkt. Var í hálftíma, var samt alveg í fíling fyrir meira en ég ákvað að skrúfa aðeins fyrir maníuna og byrja rólega þar sem t.d mjóbakið og sköflungarnir voru orðin soldið þreytt.
En ég skellti mér þá bara aðeins inn í æfingasalinn og tók hálftíma brennslu í viðbót.
Fór svo aftur í klukkutímabrennslu á fastandi í morgun. Er alveg að gera góða hluti í megruninni. Ég skil samt ekki eitt, ég held að ég sé að fitna:-/ Án djóks. Það er reyndar búið að skamma mig fyrir að tala um að ég sé feit en ég má alveg segja það sem mér finnst! Og núna held ég að ég sé að fitna og ég er ekki að gúddera það, slæææææææm þróun. Humm, er ég þá að gera góða hluti í megruninni?? oh well, ef ég held áfram að vera svona dugleg þá hlýt ég að fara að mjókka.
Ég og Hafrún skelltum okkur svo á lappaæfingu áðan í Gym80. Shit hvað mar tekur alltaf vel á því þar. Það er rosa skrýtið, það er svo mikill fílingur þar. Maggi Ver og Auðunn Jóns voru t.d á æfingu á sama tíma og það eru sko læti þegar stóru strákarnir eru að æfa! Þegar ég var að vinna niðrí Gym80 þá man ég eftir því að stundum duttu myndir af veggjunum af því að allt nötraði og skalf þegar lóðin skullu í gólfið! Svo eru öskur og pepp útí eitt. Þetta er hinn íslenski dýragarður, spurning hvort ferðaiðnaðurinn ætti ekki að stíla meira inn á vettvangsferðir þangað? En ég og Habba Kriss förum líklega fljótlega aftur af því að við ætlum að safna músklum í sumar:oD
Kræst, það er í fréttunum núna að það er breskur gaur að reyna að selja sveindóm sinn á netinu. Lágmarks upphæð er 820.000!! En hvernig í fjandanum ætlar hann að sanna að hann sé hreinn sveinn?! *pjuff* ég frussa nú bara á þetta. Trúi ekki að nokkur muni borga fyrir þetta. Mar getur nú bara farið down town Reykjavík um helgi og fengið svona frítt! ;o)
Það er allt að gerast á HM. Ég trúi ekki að Ítalía sé dottið út:o( Reyndar er ég ekkert svo svekkt af því að Totti fékk hvort sem er leikbann og hefði ekki verið með þannig að þá er orðið hálf tilgangslaust fyrir mig að horfa á Ítalska liðið. Ég vil samt ekki trúa því að úrslitin í Danmörk-Svíþjóð hafi verið e-ð fixuð. Held að alvöru íþróttamenn spili alltaf til að vinna. En ég er reyndar alltaf svo bláeygð að ég trúi alltaf að allir séu svo góðir og heiðarlegir. Æ, ég veit það ekki, ætla allavegna að trúa því að þetta hafi ekki verið "samsæri".
Dí, það er allt að gerast í Þýskaland-Tékkland, 2 geðveik mörk komin. Ætla að fara að horfa á leikinn og skella mér svo í bað, bara næs að vera með baðkar!
Er farin, bless á meðan.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli