fimmtudagur, júní 24, 2004

túddúrú

Er bara niðrí Sporthúsi að láta mér leiðast á milli kúnna, ákvað bara að bögga ykkur á meðan;o)

Tók e-ð próf á síðunni hennar Fíupíu
og það koma svona út:
BBashful
JJuicy
AAmbitious
RResponsible
NNaughty
EEccentric
YYum

Name / Username:


Name Acronym Generator
From Go-Quiz.com

Þið getið líka skrifað nöfnin ykkar í commentadálkinn og ég get fundið e-ð út úr þessu, mitt kæmi t.d svona út:
B=Borgarnes
J=jakkaföt
A=akkeri
R=risastór
N=neftóbak
E=eyrnanepill
Y=yfir og út

Þannig að ef þið viljið láta mig lesa úr nöfnunum ykkar þá er það no prob;o)

Er að spá í að skella mér í fallhlífarstökk í sumar. Allir velkomnir með, láta vita sem fyrst svo að ég geti pantað A.S.A.P. Er búið að langa það lengi, alveg síðan ég fór í teygjustökkið '95. Ætla að láta verða af því í sumar.

Ég fíla ekki Lenny Kravitz, get samt ekki útskýrt af hverju. Get ekkert að þessu gert.
Man ekki fleiri í augnablikinu.
Er samt farin að fíla Aliciu Keys (veitiggi alveg hvernig það er skrifað en þið náið þessu vonandi;o)) Úff, nenniggi að skrifa meira um tónlist, fæ hausverk af því! Ætla bara að halda mínu striki sem yfirhnakki...

Svo er ég ekki að fíla þessa þróun, brjóstin á mér eru að stækka! Held að það sé bein afleiðing þess að ég sé að fitna. Samt er ég ekkert svo viss um að ég sé að fitna en þá get ég heldur ekki útskýrt af hverju brjóstin eru að stækka! Ef fram heldur sem horfir þá neyðist ég til að fara að nota viðbjóð sem kallaður er brjóstahaldari! Femínistar ættu að snúa sér að því að berjast gegn tilvist þeirra, þetta er bara eitt mesta pyntingartæki 21.aldarinnar! Ég hef ekki notað solleis í ábyggilega 7-8 ár og það eru alltaf enhverjar stelpur að "hræða" mig: "Sko, Bjarney. Ef þú notar ekki brj.haldara þá eig abrjóstin eftir að síga gegt!" Þá svara ég að bragði:"Það er alveg frábært, þá er ég nebblega komin með efni í nýjan brandara!" "Vitiði hvað er á milli brjóstanna á mér? NAFLINN!" Jájá, mar er alltaf jafn fyndinn! ;o) En ég ætla að vona að þessi þróun hætti núna, nenniggi að þurfa að þjást við að nota haldara, ullabjakk:Þ

Jói var að biðja mig um að lesa í nafnið sitt. Reyndar bað hann ekkert um það, hann er niðrí sal að þjálfa í sakleysi sínu en ég ætla bara samt að geraða! Hér kemur það:
J=Júmbó
Ó=ólsen ólsen
H=hundakúkur
A=amen
N=ninja
N=nánös
(ekkert persónulegt sko, ég ræð ekki hvað kemur. Það er spádómsgáfan!)

I=imbakassi
N=naglbítur
G=gróðurhús
I=indverji

Oó, hann er kominn! Gotta go...

Engin ummæli: