mánudagur, júní 21, 2004

Það var nú meiri ferskleikinn!!!

Hahaha, hversu mikill lúði er hægt að vera! Eftir bloggið mikla í gær um allann ferskleikann þá ætlaði ég út á svalir í sólbað og lesa í leiðinni. En nei, auðvitað skín sólin ekki á svalirnar í Lómó! Nema kannski á kvöldin. Ayways, ég ákváð þá bara að nenna ekki út í sólina og fór upp í rúm með bókina góðu. Allt í einu varð ég þetta litla þreytt og lét það bara eftir mér að fara að lúlla. Sem væri hið besta mál, en for crying out loud, klukkan var 19:50!! Og minn svaf bara eins og hænuungi til kl.5:30 í morgun. Hef greinilega verið orðin alveg batteríslaus.
Vaknaði nokkuð spræk og úthvíld, þjálfaði einn kúnna og var svo í smá pásu. Minn skellti sér bara í 25 mín. brennslu og svo í sólbað í disknum í Laugard.lauginni. Náði hálftíma sólbaði og svei mér þá ef ég fékk ekki smá lit:oD Þannig að ferskleikinn er allavegna allsráðandi í dag;o)
Er núna að bíða eftir Hafrúnu og við ætlum að massa bak saman. Mar verður nú að vera kominn í hlýrabolsformið þegar mar fer til Köben!!
Gotta go, heyrumst later...

Engin ummæli: