miðvikudagur, júní 09, 2004

Af gefnu tilefni...

..vil ég taka fram að það er enginn strákur í spilinu! Það voru víst einhverjar vangaveltur um að það hlyti að vera fyrst að ég vakna með fiðrildi í mallanum á hverjum morgni! Nei, ég er bara hamingjusöm með lífið og tilveruna og er aðallega hamingjusöm yfir að þurfa ekki að treysta á annann aðila til að gera mig hamingjusama!
Er að sækja um skóla sem ég vona innilega að ég komist í og svo er stefnan sett á að læra sjúkraþjálfun. Ætli það sé ekki bara það besta í þessu öllu saman að vera komin með nokkuð á hreint hvað mann langar að gera við líf sitt. Ef einhver strákur mun einhvern tímann flækjast í líf mitt þá lít ég bara á það sem bónus;o)

Ooh, þarf að drullast í brennslu. Nenni því samt eiginlega ekki. Er að reyna að réttlæta fyrir sjálfri mér að það sé mjööööög góð hugmynd að fara BARA í gufu! hehe, en nei. Ég verð víst ekki mjó af því. Er farin á færibandið, bless á meðan...

Engin ummæli: