föstudagur, júní 18, 2004

Það var nú meiri kokkurinn

Jæja, þá er ferlinum lokið. Er opinberlega hætt að kynna mig sem kokk. Bauð Lilju í mat og fór bara á American style og keypti kjúklingasalat handa okkur:oD Einstaklega þægilegt! En það er samt vibba gott og við áttum mjög þægilegt föstudaskvöld. Ég meiraðsegja horfði á sjónvarpið og allt.

En talandi um sjónvarp, ég fór á æfingu áðan og í eftir-á-brennslunni minni var Dr.Doolittle í imbanum og í 1.lagi þá elska ég dýr, í 2.lagi þá dýrka ég kaldhæðni og aulahúmor og í 3.lagi þá var ég með massívan svefngalsa. Reyndi samt að fela þetta mjög vel, ég t.d lá fram á stýrið og beit í vörina og hélt fyrir andlitið. Reyndi sem sagt allt til að fela hláturköstin en ég held að það hafi ekki tekist mjög vel. Ég verð svo geðveikt einhverf þegar ég æfi! En ég skemmti mér allavegna konunglega:oD

Og nú er ég sybbin og farin í háttin. góða nótt...

Engin ummæli: