Nú finnst mér að allir mínir dyggu lesendur ættu að taka sig saman og setja saman undirskriftalista til að fara fram á bætur handa mér! Ég er strax komin með sperrur eftir brjóstaæfinguna í morgun! Dísús kræst mar, eiginlega ekki neitt pirrandi! Ef það væri ekki óviðeigandi þá myndi ég biðja um sjálfboðaliðaliða til að nudda aumu vöðvana mína en vegna staðsetningar brjóstvöðvanna þá fer ég í verkið sjálf! Í staðinn myndi ég þiggja að þið legðuð inn orð fyrir mig hjá tryggingastofnun. 1-2 milljónir finnst mér ca. sanngjarnt fyrir þær þjáningar sem harðsperrurnar valda mér. Ætla samt ekki að minnka lyftingarnar sko, vil frekar peningana takk;o)
P.s ég fór ekki að kjósa:-/ Nennti því barasta ekki, er bara pirruð á þessum skrípalátum. Nota skattpeninga til að borga starfsfólkinu sem sér um þessar óþörfu kosningar! pirr, jæja minn orðinn sybbinn. Búin að vinna rosa mikið og ætla að fara í lúllinn. Góða skemmtun allir sem fóru á tjúttið og til hamingju með ammælið minn ástkæri litli bróðir;o* dí mar, hann fer alveg að ná mér! Orðin 24 vetra drengurinn og vel tenntur. Ef einhver vill kaupa þennan gæðing þá get ég látið ykkur hafa reikn.nr mitt og skiptin geta farið fram á næstunni. Kræst, það mætti halda að ég væri blönk! Reyna að væla út örorkubætur og selja bróðir minn!!
Góða nótt, er hætt þessu rugli í bili...
Engin ummæli:
Skrifa ummæli