laugardagur, júní 26, 2004

Langur laugardagur...

Solla var mætt fyrir utan lómó 9 o´clock í morgun. Við brunuðum yfir Hellisheiðina til að taka æfingu með Önnu Bellu í Styrk á Selfossi. Mössuðum brjóstið þar saman en mösuðum vel á milli setta;o) Fórum svo í "mat" heim til Önnu (próteinshake og hafragraut, hún er að kötta fyrir heimsmeistarmótið í haust þannið að við vorum allar voða healthy) þegar ég kom aftur í bæinn þá ætlaði ég að fá litla Liverpool united aðdáandann lánaðann til að fara að gera e-ð skemmtilegt en þá var hann í Grindavík með múttu. Minns hoppaði bara út í bíl og brunaði til grindó og hitti familíuna. Alla litlu uppáhalds gemlingana mína. Ogloksins er það orðið innprentað í Óskar Dag að ég er með stærri kúlu (þá erum við að tala um bicepinn) en pabbi hans og Sveinn Ingi (bróðir minn) en hann þvertekur samt ennþá fyrir að kúlan mín sé stærri en á íþróttaálfinum:-/ Oh well, gef honum sleikjó eða e-ð og þá verður kúlan mín orðin töluvert stærri í hans huga, auðvelt að kaupa litlar sálir;o) Var í mat í sveitinni og hélt svo af stað í bæinn, ákvað á leiðinni að skella mér bara á æfingu og fór bara beint í ræktina og passaði svona akkúrat að horfa á seinni hálfleik Sví-Hol í brennslunni. Var rúman klukkutíma í brennslu og var gegt spennt yfir leiknum. Vissi samt ekki alveg með hvoru liðinu ég hélt þannig að þetta var soldil dilemma, sérstaklega í vítaspyrnukeppninni. Vissi aldrei hvort ég átti að fagna eða fara að gráta þegar það var skorað/klikkað. En þar sem Nistelroy og Jaap Stam eiga sérstakan ManU stað í hjarta mínu þá var ég voða ánægð með að þeir komust áfram:oD En vá hvað Henrik Larsson er sætur og Ljungberg líka reyndar, langaði soldið að halda með Sverige þess vegna. En ég lét skynsemina ráða og ákvað að vera sátt við úrslitin.

Svo er fitness Svava að halda innflutningspartý núna en ég er nettur félagsskítur og mætti ekki:o( Er reyndar með hausverk frá helvíti (held að ég sé bara búin að vera að spá of mikið upp á síðkastið!) og mjólkuróþolið að gera vart við sig eftir að ég svindlaði í gær og fékk mér ís:-/ þannig að ég er ekki sú heisluhraustasta núna. Þurfti líka aðeins að vinna og það er einmitt það sem ég er að gera núna, vinna í bókhaldinu mínu. Mjööööög gaman, eða ekki! Ætla líka á æfingu í fyrramálið til að stöðva útbreiðsluna á mér. Og ég er komin með ógeð á frasanum: "bara meira af mér að elska" Er búin að reyna að sannfæra sjálfa mig um það of lengi! hehe, jamm brennsla á fastandi er það eina sem dugir núna.

Jæja, ætla að halda áfram að vinna. Later...

Æjá, Svava mín vildi fá spádóm fyrir sig.
Þrátt fyrir spádómshausverk þá ætla ég nú samt að gera það fyrir litluna mína;o)

S=spékoppar
V=varasalvi
A=apaheili
V=vélstjóri
A=agúrka


ok bæ...

Engin ummæli: