Gummi sem sagt hringdi í mig áðan til að óska mér til hamingju með að vera komin með rugluna aftur! Ég ákvað að líta á það sem hrós:oD En ég gerði mér samt aldrei grein fyrir því að hún væri farin, finnst ég alltaf jafn rugluð! En ég hef svo sem aldrei verið þekkt fyrir að sjá sjálfa mig í réttu ljósi. Mér finnst ég alltaf jafn mjó, sæt og skemmtileg;o) *hóst*
En annars átti Heiður vinkona mín ammæli í gær (til hamingju með það sætust;o*) og hún ætlar að halda uppá það á morgun. Það verður ábyggilega mikil gleði í bænum annað kvöld þannig að ég býst fastlega við því að e-ð verði kíkt út á lífið:o)
Annars er bara óskaplega lítið að frétta, er ekki í standi til að hugsa núna. Tók líka út hux fyrir vikuna í gær og fyrrakvöld. Þannig að ég er búin að vera geðveikt heimsk í dag. Hlýtur að vera fyrst að ég missti hæfileikann til að hugsa en annars held ég að ég viti það ekki ef ég heimskast skyndilega. En ekki segja mér það ef ég er heimskari en vanalega, ég er nebblega með svo lítið hjarta að ég myndi ekki meika það. Færi ábyggilega bara að gráta. Við viljum það nú ekki.
Er farin að lúlla, góða nótt.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli