sunnudagur, júní 06, 2004

Mitt litla hjarta...

...tók heljarstökk af gleði í dag!!! Ég komst að því að það er til sykurlaust Fanta! :oD Vá hvað það er mikil gleði ríkjandi núna, þetta er bara snilldin ein.

Fórum ekki á Esjuna í dag þar sem það byrjaði að rigna, eða það byrjaði eiginlega ekki að rigna, það kom hellidemba! Samt svona útlandarigning, beint niður. Það hefði verið hægt að vera með regnhlíf, sem er mjög sjaldgæft á Íslandi. Ég held að þetta sé útaf gróðurhúsaáhrifunum! En það gæti reyndar verið að ég sé undir of miklum áhrifum frá myndinni í gær.

Kíkti aðeins á lífið áðan. Arna og Hera vinkonur mínar voru að halda uppá afmælið sitt og ég nottla mætti á staðinn. En merkilegt nokk, minn edrú og kominn heim á kristinlegum tíma. Og að sjálfsögðu beint í bloggið! ;o)

En ætla að skoppa í háttinn, verða að mæta fersk í ræktina í fyrramálið. Góða nótt...

Engin ummæli: