föstudagur, júní 11, 2004

JEEEEI!!!

Fékk miða á Rómeó&Júlíu:oD Það voru lausir 2 miðar klukkan 3 á morgun(!) Ég og Heiður ætlum að skella okkur saman. Vá hvað ég hlakka til! Líka ógisslega langt síðan ég hef farið i leikhús, alveg kominn tími á verða soldill menningarviti.
Annars hef ég ekkert meira að segja, vildi bara deila þessum gleðifregnum með ykkur;o)

Lít reyndar út eins og holdveikisjúklingur út af brúnkukreminu sem er að fara, skrúbbaði mig nebblega í morgun en ástæðan fyrir því að ég er flekkótt er sú að olían sem var borin á okkur í gær leysti soldið upp litinn. Þannig að ef þið hittið mig, ekki panikka, ég er ekki með smitandi banvænan sjúkdóm.

Well, gotta go, don´t miss me to much;o)
GREAT! Bjarney dottin í egóflipp, enda er að koma helgi og mín í föstudagsskapinu sínu. Ætla samt eiginlega bara að nota helgina í að slappa af og dekra við egóið mitt, ekki veitir af! ;o)

Engin ummæli: