laugardagur, júní 05, 2004

Bloggfíknin allsráðandi

Allt í einu stóð ég mig að því að geta ekki farið í lúllinn án þess að blogga pínu fyrst. Finnst nebblega svo langt síðan ég bloggaði síðast!

Fór í bíó áðan á The day after tomorrow. Ætlaði ekki alveg að nenna, fór á æfingu og svo í eftir-á-brennslunni minni þá hittist akkúrat á að lokaþátturinn af Friends var í tellíinu og ég bara varð að sjá hvort Rachel og Ross myndu enda saman! Þannig að brennslan varð aðeins lengri en ég var búin að ákveða þannig að það fór ákveðið stress í gang til að ná bíóinu. Gummi kom og sótti litla grump monsterið (a.k.a ég) sem var í fýlu af því að það var ekki búið að borða neitt eftir æf! En ég fékk mér próteinsstöng og diet coke þannig að fýlan rann af mér eftir smá stund.
Anyways, myndin var töluvert netri en ég hafði búist við. Langar yfirleitt ekki að horfa á svona science fiction e-ð krapp. En þetta var nú samt ótrúlega raunverulegt miðað við hvað þetta var ótrúlegt! Æ þið gettið the point.
Skammaðist mín nú samt smá undir lokin þegar Gummi byrjaði að grenja. Og við erum ekki að tala um e-ð kellingasnökt sko. Það voru ekkasog og allur pakkinn! Ég sótti tissjú handa honum til að þurrka tárin og snýta sér, færði mig svo 2 sætaröðum fyrir ofan hann. Það lúkkar samt hálf illa að vera einn í bíó en believe you me, á þessu andartaki var það töluvert betri kostur!

Á morgun er svo stefna sett á að klífa Esjuna ef veður leyfir. Held samt að maður geti alveg labbað en ég er að spá í að fara í broddaskónna og taka með mér íshamar og gera þetta almennilega. Æ, ég sé til á morgun. Kannski er ég ennþá bara undir of miklum áhrifum frá bíóinu áðan. Enda líklegast á að skokka bara upp í Asics hlaupaskónum mínum, reyndar held ég að ég rölti bara. Jæja, ég sef á þessu og tek svo ákvörðun í fyrramálið.

Ég er orðin rosa sybbin. Best að fara í háttinn.
Og já, þetta með að Gummi hafi farið að grenja var eiginlega sko bara lygi. Algjör uppspuni frá rótum. Það hefði samt verið fyndið ef það hefði gerst;o)
Góða nótt...

Engin ummæli: