sunnudagur, júní 20, 2004

Andinn mættur:oD

Vaknaði ógisslega mygluð upp úr hádegi og var ekki að nenna neinu. Minn áskæri bróðir hringdi og spurði hvort ég nennti á æf. með sér. Sagði fyrst já en skipti svo um skoðun og ákvað að nenna ekki. Lagðist í staðinn upp í rúm í grumpi. Skipti svo enn einu sinni um skoðun (hljómar kunnuglega!) og ákvað að drulla mér á æf. Sveinn Ingi var svo elskulegur að bíða eftir stóru sys. Lyftum brjóst og svo fór ég í 45 mín. brennslu eftir það. Ég var í geðveikum ham og endaði rennsveitt og eldrauð í framan. Sjitt hvað þetta var gott! Langt síðan ég hef tekið svona góða æfingu. Loksins loksins komin í fíling aftur.

Er komin í djammpásu. Fannst ekkert voða gaman í gær og ákvað að helgunum væri betur varið í eitthvað annað. Ég ætla að skella mér í útilegu næstu helgi og allavegna Jói og vonandi Habba Kriss og Snorri koma með. Allir velkomnir með sem vilja;o) Er samt ekki búin að ákveða hvert en mjög líklega verður sólin elt. Þetta blessaða djamm skilur voða lítið eftir sig. Mjög gaman að fara öðru hvoru en þetta er komið fínt í bili.

Ég var búin að skrifa einhvern grump pistil í morgun en delete-aði honum af því að ég varð þunglynd við að lesa hann! Ég þoli ekki þegar ég skrifa leiðinleg blogg:-/ En núna er ég kátur skáti, ógisslega fersk eftir æfinguna, er að borða heilsurétt frá Nings og er að spá í að fara að nýta aðeins sólina:oD

Bleh bleh

Engin ummæli: