föstudagur, júní 25, 2004

Ég ætti að fá örorkubætur!

Ef að krónískar harðsperrur teljast ekki fötlun þá er Tryggingastofnun vægast sagt á villigötum! Ég er samt alveg að verða pirruð á þessu! Harðsperrur nánast upp á dag í 4 ár er einum of mikið af hinu góða. Ég hef fengið þá greiningu að ég sé masókisti fyrst að ég láti mig nú samt hafa það að æfa svona. Ætli það sé ekki nærri lagi;o) Talaði reyndar einu sinni við næringarfræðing, en honum fannst þetta bara gott mál, ég hlyti bara að taka alltaf svona svakalega vel á því. Ég geri það nú oftast en stundum eruð sperrurnar í engu samræmi við átökin, ég er ekki að tala um smá strengi, ég er að tala um fötlun! Þannig að á hverri æfingu söngla ég: "let´s get retarded" og svo verð ég það bara daginn eftir. Hvað er samt annars með þennann texta, ef e-r getur útskýrt hann then please do! Mun aldrei skilja að einhver semji texta:"Verðum þroskaheft aha, verðum þroskaheft!" Mér finnst þetta ljótt af Black eyed peas að semja svona hræðilegan texta.

Jói sagði reyndar að ég ætti bara að láta yfirmenn Tryggingastofnunar lesa bloggið mitt og þá fengi ég bætur á grundvelli mjög bágrar geðheilsu! Skil ekki hvað hann er að tala um!

Ég er að krossa puttana og vona að Svava hendi mér ekki út, ég var næstum því búin að brenna húsið til kaldra kola í gær! Var að poppa en gleymdi því óvart í örbylgjunni og tíminn soldið of langur og poppið var orðið að ösku þegar ég mundi eftir því. Þvílíki reykjarmökkurinn sem kom þegar ég opnaði örbylgjuofninn. Lyktin í íbúðinni var eins og allt innbúið hefði brunnið. Ég get svo svarið að ég held ég hafi fengið snert af reykeitrun, varð gegt dösuð og sonna. Talaði við Svövu á msn-inu og hún var að spá í að hringja á sjúkrabíl, held samt að hún hafi verið að hæðast að mér. Sé samt alveg fyrir mér fyrirsögnina í blöðunum:"ung kona var flutt á sjúkrahús völdum reykeitrunar. Fór hún sér að voða við að poppa. Þessi unga kona mun aldrei ganga út því auðsjáanlega er hún vonlaus kokkur. For crying out loud, hún getur ekki einu sinni poppað án þess að klúðra því." Ok, blaðamaðurinn færi kannski ekki inn á það svið en þetta var alveg ekki það sem ég þurfti til að peppa upp sjálfstraustið í eldhúsinu!

Annars lítið að frétta, 23 dagar í að ég fari út (ekki það að ég sé að telja) og það verður rosa gaman, efast ekki um það. Ég + ca.40 stk. af 13-14 ára guttum og 3 aðrir fullvaxnir karlmenn (eins gott að ég kann karate! Veit reyndar ekkert hvað það kemur málinu við en mér finnst bara gaman að segja frá því að ég kunni það! Var meirsegja komin með rauða beltið, ekki djók!). Vonandi fáum við gott veður, þeir eru nebblega að fara að keppa á fótboltamóti.

Ég vil nota tækifærið og óska Evu, uppáhalds nemandanum mínum, til hamingju með frábæran árangur. Það var mæling í morgun og stelpan er sko alveg að standa sig! Þú ert algjör hetja Eva mín, congrats;o*

P.s hérna er fyrir Boga beibí
B=blandari
O=ostra
G=gnitaheiði
I=innlegg

Engin ummæli: