fimmtudagur, júní 24, 2004

undur og stórmerki...

Minn skellti sér á tónleika!! Jói var svo yndislegur að bjóða mér á tónleikana með Djúp fjólubláum;o) Ég hef oft heyrt um þessa hljómsveit en samt hafði ég eiginlega ekki hugmynd um á hvaða hljómsveit ég var að fara að sjá! Sá reyndar óskaplega lítið, er með nettann hálsríg eftir að reyna að teygja hálsinn ca. hálfan meter uppí loftið en mér tókst að sjá smá glitta í alla hljómsveitarmeðlimina:oD Eyddi reyndar fyrsta hálftímanum í massívri fýlu:-/ Var nebblega með Hafrúnu í beinu sms sambandi útaf leiknum. Þannig að þegar ég frétti að England hefði tapað þá varð ég sko grumpster dauðans í smástund! En tónlistin hjá köllunum var nokkuð góð og ég komst aftur í gott skap, kannaðist samt ekki við neitt lag. Ég er algjör menningaróviti:o(
Ég hef alltaf haft svona thing gagnvart eldri mönnum og jú það var sko krökkt af eldri mönnum þarna en ekki alveg mínar týpur! Margir voru hálfgerð tímakekkja og hafa eflaust haldið að þeir væru ennþá á tónleikunum sem voru fyrir 33 árum! En það var ógisslega fyndið að horfa á hausana á fólkinu, allir að mini-slamma. Það var reyndar gaur fyrir framan mig sem var svo loðinn á hálsinum að ég gat ekki hætt að horfa (jújú, ég fylgdist alveg pínu með tónleikununm líka!) en hann var sko rosa loðinn.

Hitti svo fyrrverandi mágkonu mína. Talandi um tilviljanir. Hún er með gat í efri vörinni, fékk sér fyrir ca.6 vikum og svo fyrir 2 dögum fékk hún sér tattú á innanverðann vinstri framhandlegg! Þetta var scary shit mar, þvílík tilviljun! Hringdi nottla strax í brósa og spurði hvort hann hefði hætt með henni af því að við værum svo líkar (þ.e í hugsun o.s.frv, við erum ekkert líkar í útliti) Þá sagði hann:"nei reyndar ekki, en það er ekki séns að ég komi nálægt henni núna!"
hehe

En ég þarf að gera einn nafnalestur fyrir svefninn:

S=salerni
O=ommeletta
F=flaggskip
F=freðinn
Í=ísbjörn
A=andfýla

P=pappírspési
Í=íþróttanörd
A=afturendi


Þar hefurðu það Soffía mín;o)

Og nú ætla ég opinberlega að hætta að lesa í nöfn.
Er farin að lúlla...

Engin ummæli: