mánudagur, júní 07, 2004

Er komin með svarið!

Ég veit af hverju ég á ekki kærasta! Ég er bara held ég of steikt fyrir hinn almenna borgara! (voru einhverjir fleiri en ég sem fóru að hugsa um grillaðan hamborgara við að lesa síðustu setningu?!) Anyways, í verslunarferðinni í gær þá vorum við að kaupa inn fyrir grillveisluna miklu og svo vantaði mig cheerios og Gumma líka þannig að það voru 2 cheeros pakkar í kerrunni. Svo hitti ég í Nóatúni gaur sem er soldið sætur og hann kastaði á mig kveðju, leit í körfuna og spurði hvort ég væri að fara að grilla. Ég svara játandi og segist vera að fara að grilla CHEERIOS! "Já er það" segir hann "ég hef einmitt frétt að það sé rosa gott!" (hvað átti greyið maðurinn að segja?!)
GRILLA CHEERIOS!! Gott Bjarney! *klapp á öxlina*

En annars hef ég ekkert meira að segja, nema að ég vaknaði óvenju hamingjusöm í morgun. Veit ekki hvort það spili e-ð inní að hafa hangið edrú alla helgina? En ég er allavegna með bros í hjarta og sól á vör í dag :oD

Þar til næst, over and out...

Engin ummæli: