þriðjudagur, júní 01, 2004

Skelfileg lífsreynsla:-/

Ojbara! Minn skellti sér á æfingu áðan. Ætlaði bara í brennslu og skellti mér aðeins á færibandið. Kom svo e-r dúddi við hliðina á mér og byrjaði að skokka. Allt í einu gossaði upp þessi líka viðbjóðslegi fnykur! Svo loksins þegar ég náði andanum aftur þá *púff* aftur bomba! Ég get svo svarið fyrir það að það hefur e-ð skriðið upp í rassinn á honum, dáið og verið langt komið í rotnunarferlinu! Ég byrjaði að kúgast nett og svo bara fór ég, lét 10 mín. á brettinu duga. Skellti mér bara á hjólið og einbeitti mér að því að ná eðlilegri öndun aftur. Úff mar, þvílíka myglan.
En annars var ég bara rosa dugleg í fíling í Rocky outfittinu mínu. Eftir æfingu lenti ég svo í rökræðum við sjálfa mig um hvort og af hverju ég ætti ekki að fá mér nammi! Hitti svo Magga Sam og sagði honum frá þessarri innri baráttu minni. Hann kom með svarið:" Bjarney, auðvitað færðu þér ekki nammi. Það sest allt á rassinn á þér!" Og þannig lauk þessarri baráttu...

Ég vil líka koma því á framfæri að ég er nú pínu svekkt sko. Það hefur enginn sótt um inngöngu í heiminn minn til að nudda á mér axlirnar og tásurnar:-/ Miðað við hvað ég æfi mikið þá finnst mér ég bara alveg eiga skilið nudd af og til! Og þó að ég væri ekki að æfa þá finnst mér ég bara samt eiga það skilið. En enn og aftur telst ég kannski hlutdræg. Þetta er jú ég sem við erum að tala um og mér þykir rosalega vænt um sjálfa mig (stundum einum of!) Anyways, allt nudd er mjöööög vinsælt í mínum heimi;o)

Og talandi um minn heim, allir hobbitabrandarar eru hér með bannaðir. Sumir virðast taka þá e-ð nærri sér og ég tek ekki sénsinn á að láta stríða mér á móti. Ég er með einstaklega lítið hjarta. Margir hafa einmitt minnst á þetta ósamræmi, þ.e hvernig svona stór búkur getur verið með svona lítið hjarta. Ég allavegna skilettiggi..

Er farin að sofa, er í fýlu yfir nammileysi en rúmið mitt reddar ábyggilega skapvonskunni. Allavegna þangað til á morgun.
Ég er samt ekkert í alvörunni fýlu, bara svona eins og 5 ára krakkar fara í þegar þeir fá ekki það sem þeir vilja. Í mínu tilviki nammi og nudd. Ég læt mig bara dreyma um það þá, góða nótt...


Engin ummæli: