laugardagur, ágúst 21, 2010

bleh

Jæja þá er það staðfest að skógardýrið er með slitið krossband og þar með er tímabilið búið hjá honum :-( Og auðvitað setur þetta allt í uppnám hjá okkur, eeeeeeen hlutirnir hafa tilhneigingu til að reddast :o) Hann fer ekki í aðgerðina fyrr en eftir 8-10 vikur þar sem liðböndin sködduðust það mikið að læknirinn vill láta þau jafna sig áður en hann gerir við krossbandið, þannig að hann er frá allavega næstu 8-10 (jafnvel 12) mánuði.

Hann fór samt með liðinu til Wales í dag þar sem þeir voru að spila æfingaleik, og þjálfarinn hringdi í hann til að segja honum að þeir hefðu pantað fyrir hann hótelherbergi og vildu endilega fá hann með. Þannig að ég er þvílíkt ánægð með hversu vel þeir eru að styðja við hann, og ég er mjög fegin að við erum að flytja uppeftir eftir rúma viku þannig að hann getur þá "tekið þátt" í tímabilinu með liðinu, fær kannski að vera vatnsberinn þeirra eða eitthvað ;o)

Á meðan er ég bara geðveikt vanrækt hérna heima, af honum sko, ég er í mjög góðu yfirlæti hjá foreldrum hans. Fór m.a með þeim útað borða áðan þar sem þau sögðu mér sögur af honum frá því að hann var lítill, það var mjög hressandi :-þ og svo er önnur kisan búin að vera að kúra með mér í dag, stelpukisa. Hún er mjög fyndin, soldið taugaveikluð af því að bróðir hennar leggur hana í einelti, þannig að hún á mjög erfitt með að treysta lífverum, en hún er samt mjög needy, þannig að þetta er soldið twisted blanda. En já, það var voða gott að kúra með henni af því að hún er geðveikt mjúk, eini gallinn við hana er að þegar hann líður vel þá slefar hún! Það er mjög furðulegt að sjá kisu sem lítur út eins og tígrisdýr, með vígtennur og allt, slefa eins og lítill retharður! En ég fyrirgef henni samt af því að hún er svo mjúk :o)

Úff vá, ég hef EKKERT að segja, til hamingju allir sem hlupu í Reykjavíkurmaraþoninu, er sérstaklega stolt af henni ástkæru systur minni, sem kláraði 10 km með stæl :-D

En ég ætla að fara að henda mér í háttinn eða eitthvað, og vonast til að fá slefukisukúr svo að ég þurfi ekki að lúlla ein. Later....

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Knús frá okkur hérna í sumarbústaðnum. Erum búin að vera að hugsa til ykkar. Kv. ALE og YÖK

Bjarney sagði...

Takk fyrir það og knús til baka, skógardýrið biður að heilsa :o)

Hulda sagði...

Já takk sis. Ég fer eiginlega fram á það að vera sett undir dálkinn "Líkamsræktarlúllar" núna. Myndi vera flott sem Hulda hetja við hliðiná mössunum og bóndunum!!

Bjarney sagði...

hahaha byrjaðu að blogga og ég þig klárlega í þann dálk..! ;o)