sunnudagur, ágúst 29, 2010

Einhverjar pælingar fóru í gang um hvort ég deili of miklu á blogginu (bloggið fer líka inná facebook og þar áttu umræðurnar sér stað) en "blúbb" sagan er sennilega "grófasta" færslan sem ég hef póstað hingað til, held ég! En ég spurði Hugo hvort ég mætti skrifa að ég hefði verið á þessum tíma mánaðar, ef hann skildi vera viðkvæmur með að ég deildi þeim upplýsingum, en honum fannst það bara fyndið, eftir að hafa ranghvolft augunum yfir mér, en ég held að hann sé að venjast mér. Veit samt ekki hversu vel er hægt að venjast mér, honum finnst það ennþá geðveikt fyndið hvað ég er klaufsk og ólipur, hann sagði að ég væri álíka þokkafull og fíll í dag þegar ég var að reyna að sýna honum einhverjar balletlistir! :-/ En ætli það sé samt ekki einn að þeim eiginleikum sem makanum finnst geðveikt fyndnir og krúttlegir til að byrja með en svo verður það einn af hlutunum sem viðkomandi þolir ekki! En ef yfirleitt bitnar þetta á sjálfri mér, er að sparka í þröskulda, rek tærnar undir teppin á gólfunum og dett næstum því, og stundum missi ég jafnvægið bara upp úr þurru, mjög töff alltaf hreint! En vonandi heldur honum bara áfram að finnast það fyndið...

Var að taka til á tenglalistanum, eyddi út nánast öllum tenglunum enda flestir hættir að blogga. En ef þið eruð með virka bloggsíðu þá megiði endilega kommenta og ég set link, vil endilega hafa sem flest blogg sem ég get lesið :o)


Hey já ef einhver er á leið til London (Heathrow) dagana 16.-20.október og væri til í að leyfa kisunum mínum að vera yfirvigtin sín (ég borga að sjálfsögðu yfigvigtina og redda skutli fyrir kisurnar uppá völl og sæki kisurnar á Heathrow) þá yrði ég ótrúlega þakklát. Annars þarf ég að senda þá með fragt sem er miklu dýrara :-/ Nú og ef einhver er ekki á leiðinni en vantar afsökun fyrir því að koma þá er þetta nottla kjörin afsökun, frí gisting í boði og sonna ;o)

Og svo að lokum, vitiði hvað Bretar kalla mótorhjólafólk?? Líffæragjafa..! Og þetta er ekki brandari sko, bara mjöööög svartur húmor! O_o Þegar Hugo var að fara í hjartaaðgerðina sína þá sögðu læknarnir að best væri að gera hana á mánudegi þar sem svo margir mótorhjólamenn deyja í umferðarslysum hérna um helgar! En svo reyndar endaði hann á að fá hjartaloku úr belju (sem dó samt ekki í mótorhjólaslysi)...

Jæja best að halda áfram með flutningana, stóri dagurinn á morgun :-D Later...

7 ummæli:

Sol i Hjarta sagði...

Ha ha ha

Láttu bara vaða! Svona piss og kúkabrandarar eru fyndnir þegar fólk er komið á minn aldur ;)

Og ef karlinum finnst eitthvað þá getur þú spurt hann hvort tilfinningar hans komi frá honum eða beljunni... haha Já, ég er með álíka aulahúmor!

Haltu áfram að deila með þér úr viskubrunni þínum ;)

Bjarney sagði...

Já ég baula stundum á hann ef ég þarf að þagga niður í honum! ;-þ

Nafnlaus sagði...

Ég elska það hvað þú ert opin og lætur allt flakka, ekki hætta því.
Ef einhver er viðkvæmur þá er bara best að sleppa því að lesa :)
Annars fannst mér kominn tími á að kvitta svo að ég geti skammað þig ef þú ert ekki dugleg hehe.

Bestu kveðjur
hin Bjarney

Bjarney sagði...

Ég var næstum því búin að skamma þig fyrir að vera ekki nógu dugleg að kvitta..! ;o)

Inga Lilý sagði...

Heh, ég gæti ALDREI sagt að einhver annar sé of opinn, meina hefurðu séð FB hjá mér?? :)

Og þetta með blúbbhljóðin, mér finnst að allar þjóðir ættu að taka upp japönsk klósett, þau spila ýmist lög eða "flushing sound" (flush í vinnunni minni) sem yfirgnæfa piss og blúbb hljóðin svo maður getur alltaf látið vaða án þess að hafa áhyggjur af því hvað konan í næsta bás/við vaskinn hugsi :)

Takk fyrir linkinn á bloggið okkar, gaman að vita að þú kíkir þar við! :)

Nafnlaus sagði...

Hahaha... mér fannst blúbbsagan bara fyndin og alls ekki "too much"!!

Elska bloggið þitt :)

Knús og kossar
Soffía

Nafnlaus sagði...

Isss ef fólk er eitthvað viðkvæmt getur það bara lesið moggann. Þetta er jú þitt blogg og mátt segja það sem þú vilt. Mér finnst langskemmtilegast að lesa þar sem allt er látið flakka og þmt. hér ;)

Knús í hús
Kiddý