








Fyndið hvað maður getur verið kvíðinn og áhyggjufullur eina stundina og svo búinn að sigra heiminn þá næstu! Ég er sem sagt komin með vinnu :-D
Var farin að vera ansi kvíðin yfir að fá ekki vinnu. En ég var búin að minnast á það við eina stelpu hérna í LA fitness að ég væri að leita fyrir mér sem þjálfari, hún sagðist ætla að hafa það bakvið eyrað þar sem alltaf væri eftirspurn eftir kvenþjálfurum. Svo til að gera langa sögu enn lengri, þá var að byrja nýr yfirþjálfari hér í gær. Ég kom hingað til fá mér hádegismat, leita að vinnu á netinu (erum ekki komin með netið heim þannig að við notum netið á kaffihúsinu hérna á líkamsræktarstöðinni) og svo á æfingu, en þá var yfirþjálfarinn að taka viðtal við einhverja starfsmenn. Stelpan sem ég hafði talað við sá mig koma inn og sagði honum frá mér og hann vildi tala við mig, spurði hvort ég hefði 10 mínútur aflögu og að 10 mínútum liðnum labbaði ég út með vinnu :-D O hann kallaði mig meira að segja gullnámu með alla þessa reynslu mína! ;-þ Eins gott að standa undir væntingum..! O_o
Þannig að það var sem sagt bara misskilningur að ég ÞYRFTI þetta einkaþjálfarapróf þar sem íþróttafræðigráðan mín er meira en nóg :o) Og núna fyrst að vinnan er í höfn þá hefur áhuginn líka risið og ég hlakka þvílíkt mikið til að byrja. Ég byrja á að fara á buisness námskeið í næstu viku, þri og mið, og byrja svo að þjálfa á fimmtudag, eða kem mér í gang hér og fæ vonandi kúnna sem fyrst :o) Kerfið hérna er ótrúlega flott, gólfgjaldið reyndar dýrt eftir því, en það sem ég fæ í staðinn er að stöðin hjálpar mér að fá einhverja kúnna, ég verð hluti af vefsíðu þar sem hægt er að bóka hjá mér online, og borga með kreditkortum online, og feedback frá kúnnum. Þannig að fólk sem er að leita sér að einkaþjálfara getur þá séð hvað aðrir kúnnar hafa að segja um mann. Svo er ég líka tryggð hjá stöðinni, sem sagt ef að einhver kúnni meiðist hjá mér og ákveður að fara í mál við mig þá er ég tryggð fyrir því, þarf þá sem sagt ekki að borga skaðabæturnar úr eigin vasa. En að sjálfsögðu stefni ég að því að enginn meiðist hjá mér!!









Hugo ákvað að klára endurskoðandanámið sitt, það mun taka hann um ár ca. en hann ákvað að drífa það af fyrst hann getur ekki spilað rugby neitt á næstunni, en svo tekur það hann önnur tvö ár að verða löggiltur og svo getum við farið að græða einhverja peninga..! ;-þ
Þannig að útlitið er orðið ótrúlega bjart, ég var farin að hafa áhyggjur af því hvort ég hefði gert mistök með að hætta í vinnunum heima þar sem ég var loksins að byrja að hafa það ágætt í lífinu, var að vinna með öllum snillingunum í Sporthúsinu og með frábæra vinnu með frábæru fólki í Flensborg, en þá hefði ég þurft að fórna Hugo í staðinn, og ég satt að segja hreinlega tímdi því ekki! Og núna er ég nottla ótrúlega fegin að hafa tekið þessa sénsinn, þar sem ég get fengið bæði, vinnuna sem ég vildi OG Hugo :-D



Ég er reyndar í smá vandræðum hérna, varðandi nafnið mitt! Englendingar eiga í stökustu vandræðum með að segja Bjarney þannig að mig vantar eitthvað gælunafn sem ég get notað hérna, hef fengið tillögur um Bee, Bee bee, Barney og fleira, en mér finnst Barney eitthvað gúbbalegt, kannski ég noti bara Bee, nema nottla ef þið hafið einhverjar aðrar tillögur??
Jæja ætla að láta þetta duga að sinni, henti inn nokkrum myndum af íbúðinni okkar, stelpu- og strákaketti og svo þessari landbúnaðarsýningu, af mér að knúsa kálf og mörð og einhverjum sætum dýrum og Hugo með beljuna sem hann vann handa mér! Sem er forljót en er af einhverjum ástæðum geymd inní stofunni okkar! Sennilega af því að Hux var svooooo stoltur af sér að vinna kvikindið..!
Anyways, later......
7 ummæli:
Til hamingju með nýju vinnuna, þú verður komin með langann biðlista af kúnnum innan skamms.
Ég get sko gefið þér topp meðmæli, var annars að vona að þú værir bara að koma aftur svo að þú gætir haldið áfram að þjálfa mig :) en ég samgleðst þér innilega.
Þú mátt alveg fá mitt útlenska gælunafn lánað, það er Börny
(ég fann sko ekki upp á því) en það er voða þægilegt hehe.
kveðja Bjarney
Hehe Fannar kallar mig Burney og vill að ég haldi mig við það, hljómar eins :-)
En takk fyrir meðmælin, þú færð líka topp meðmæli frá mér sem eðal kúnni ;-)
P.s þú getur alltaf komið til mín í þjálfun, geri samning vid Icelandair og flýgur út 3x í viku..! :-þ
Til hamingju ;)
Alltaf gaman þegar hlutirnir ganga upp - og oft gera þeir það þegar maður er farinn að búast við hinu versta.
Njóttu lífsins, með mann, vinnu og áhugamál ;)
Ég vill meina að það hafi verið samið um þetta sem ensku útgáfuna af "Bjarney" fyrir löngu síðan :)
Nokkuð einhliða samningur vil ég meina..!
Frábært að heyra hvað allt gengur vel hjá ykkur! kv. ALE og YÖK
Hey ég er til, fer í það að semja við Icelandair :)
Kv. Bjarney
Skrifa ummæli