föstudagur, september 17, 2010

komin með netið heim :-D

Ætli það sé ekki kominn tími á blogg fyrst við erum loksins komin með netið heim!

Ég er byrjuð að "vinna", byrjaði á því að fara á tveggja buisness námskeið á þriðjudag og miðvikudag í London. Ég þurfti að ferðast þangað alein með lest (frá Henley til London) og svo neðanjarðarlestunum (inní London), og ég var svoooooo stressuð þegar ég loksins komst á áfangastað (á réttum tíma og án þess að villast :-D) að ég hætti ekki að titra fyrr en um hádegi! En það sem situr samt eftir er neðanjarðarlestin heim! Allir ógeðslega sveittir eftir eftir vinnudaginn, og andfýlan eftir allt sem fólk hafði borðað yfir daginn og svo tróðst maður inní lestinni eins og síld í tunnu. Meiriháttar skemmtilegt þegar ég þurfti að standa í handakrikanum á einum gaur sem ákvað að haldaí handfangið fyrir ofan hausinn á mér!! O_o
Allavega var það fyrsta sem ég gerði þegar ég kom heim var að henda mér í sturtu, svitnaði meira eftir ferðalög í neðanjarðarlestunum heldur en spinningtíma..!

Svo byrjaði ég að þjálfa í morgun, er með "gervi"kúnna :-þ Er að þjálfa eina vinkonu mína hérna, eða reyndar einu vinkonu mína, en ég bauð henni allavega að ég myndi þjálfa hana þar sem það er mjög mikilvægt að fólk sjái mann þjálfa. Þannig að nú verð ég bara að vona að boltinn fari að rúlla, er mögulega að fá einn kúnna í næstu viku, en ég þori ekki að treysta á það fyrr en peningurinn er kominn inná bankabókina mína. En það sem ég hef lært nú þegar er að ég á ekki að telja á íslensku! Það er allt í lagi frá 1-5, en þegar kemur að 6 þá horfir fólk skringilega á mig! Enda er það ekkert skrýtið, það væri eflaust starað á mann heima ef maður væri að þjálfa og myndi svo allt í einu æpa "kynlíf" svona uppúr þurru..!

En hérna er linkurinn á online profílinn minn ef ykkur langar að skoða (verðið að copy/paste-a linkinn)
http://www.club-training.com/find/find-a-trainer-detail.aspx?uid=18849


Sveinki bró kom í dag, ég var búin að minnast á það að þau myndu kannski senda mér smá nammi í leiðinni. Well þeir sem þekkja mömmu mína vita að það er ekkert til neitt sem heitir "smá" þegar kemur að því að gefa gjafir, hérna er góssið sem þau sendu okkur!


Ég er mjööööög feginn að Sveinn Ingi var ekki stoppaður í tollinum, er ekki viss um hvernig hann hefði átt að útskýra allan þennan lakkrís!!!! Hehe hvernig er ekki hægt að elska hana mömmu mína..! Og pabba nottla, sem er líka bestur í heimi :o)

Við erum búinn að fá nýtt gæludýr, stærstu könguló heiminum!!!

Þarna er hún bara að tjilla í rólegheitum á veggnum okkar, ég var ekkert æst í að knúsa hana þannig að Hugo sá um að koma henni útfyrir. Hvernig er samt hægt að vera svona stór könguló!! O_o

Jæja ætla að fara að horfa á dvd með strákunum, bless í bili...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Flottur prófíll, iss þú átt eftir að hafa kúnnana í röðum in no time. Kveðja frá YÖK og ALE.

Nafnlaus sagði...

ERTU AÐ GRÍNAST MEÐ NAMMIÐ???!!!! Úfff......

Njóttu :)

kv/Soffía