Úps meira en vika liðin síðan ég bloggaði síðast! Biðst innilegrar afsökunar..!
Annars er fullt að frétta núna, Gunna Dís vinkona kom í heimsókn um helgina. Ákvað það síðasta sunnudag og var komin á miðvikudagskvöldið. Ótrúlega gaman að fá hana í heimsókn og við brölluðum ýmislegt saman, út að borða, kíktum í mollið í Reading og svo var kíkt út á næturlífið, eða ég tók nú frekar takmarkaðan þátt í því en fínt að fara út af og til að sjá að ég er ekki að missa af neinu! :o)
(mamma og pabbi hættið að lesa núna!) Ég er að fara á handboltaæfingu á morgun! Hlakka ekkert smá mikið til, verður spennandi að sjá hvernig enskur handbolti gengur fyrir sig! Og þar sem ég geri ráð fyrir að mamma og pabbi hafi ekki hætt að lesa þá lofa ég að fara varlega og reyna að meiða mig ekki..! :o)
Annars ákvað ég að byrja að hlaupa úti, ný áskorun! Hef reyndar oft farið út að hlaupa en mig langar að gera það markvisst núna, verst að hnéð mitt er ekki alveg í standi fyrir mikil hlaup en allavega ætla ég að reyna að byggja mig upp fyrir þetta smátt og smátt. Ég fór og keypti Runners World til að hvetja mig áfram í þessu, því ég vil ekki fara út að hlaupa með öðrum þannig að ég þarf að veraótrúlega dugleg í að hvetja sjálfa mig áfram :o) Allavega í dag var fyrsti hlaupadagurinn minn og ég eyddi klukkutíma í að finna afsakanir til að fara ekki! "oh það er ábyggilega of kalt", "ah sennilega ekki sniðugt að fara daginn fyrir handboltaæfingu ef mér skyldi verða illt í hnénu" "oh hef ég tíma til að fara að hlaupa og fara í sturtu áður en fyrsti kúnninn kemur" og svo auðvitað mótrökin "Bjarnadóttir, viltu hætta þessu væli og drulla þér út!" Og svo uppörvandi frasar eins og "every journey begins with the first step", þannig að lokum var ég að labba út úr dyrunum og sá þá að ipodin minn var að verða batterýslaus og maður getur sko ekki farið út að hlaupa með engan ipod!! Þannig að ég þurfti nottla að setja hann í hleðslu, en engar áhyggjur, kellan lét þetta ekki stöðva sig! Á meðan ipodinn var í hleðslu þá hoppaði ég á trampólíninu mínu til að hita upp og koma hausnum í gír áður en ég myndi leggja í hann. Markmiðið í dag var bara lítið og krúttlegt, skokkaði í 25 mínútur, náði vonandi að dekka allavega 3 kílómetra (ef einhverjum langar að gefa mér Garmin græju í ammælisgjöf þá þætti mér það geðveikt gaman! :-þ, annars vantar mig úlpu...) Hnéð er ekkert í geðveikt góðu skapi en betra en það hefur verið hingað til eftir hlaup, þannig að ef ég er dugleg að gera sjúkraþjálfunaræfingarnar mínar þá er ég bjartsýn á að ég verði farin að hlaupa eins og vindurinn innan skamms! (ég var meira svona eins og hæg gola í dag). En tilfinningin eftir útihlaup er besta tilfinning í heiminum, ekkert sem jafnast á við það.
Annars er Hugo veikur, hann er með karlmannsflensu! Það er sko versta veiki í heiminnum! Lætur hluti eins og svínaflensu blikna í samanburðinum..! O_o
Hann er reyndar aðeins að braggast, sennilega útaf þessari framúrskarandi heimahjúkrun sem hann hefur verið að fá :o)
Hey já, Albert er að grennast! Hann er búinn að missa 300 gr., úr 6,3 kg niður í 6,0. Hann veiddi meira að segja fugl um daginn! Reyndar unga sem hann hefur sennilega stolið úr hreiðrinu sínu, en eins og ég sagði hérna áðan:"every journey begins with the first step" Hann verður farinn að veiða fullvaxna fugla innan skamms! Ekki það að ég sé eitthvað æst í að hann sé að veiða fugla og koma með þá hérna inn, þá er ég samt innst inni pínu stolt af honum. Það var samt soldið fyndið að fylgjast með honum, hann hefur greinilega veiðieðlið í sér en ég held að hann skilji ekki alveg hvað sé að gerast! Hann er t.d alltaf að veiða lappirnar á mér! Felur sig bakvið sófann og stekkur svo á mig þegar ég labba framhjá, og hleypur svo í burtu lafhræddur. Við vorum einmitt að fylgjast með honum með fuglinn hérna fyrir utan og hann var ekkert smá lélegur í þessu, held að hann hafi ekki einu sinni haft vit á að borða hann, allavega ekki til að byrja með, en svo fann ég hálfétið hræið hérna inni, mér til mikillar ánægju.
Einstein greyið hefur ekki vott af veiðieðli í sér, enda held ég að hann gæti ekki veitt mikið með þessari einu löpp sinni! Reyndar eitt soldið skrýtið með hann, ég held að hausinn á honum sé of lítill. Eitt sinn spurði ég dýralækninn hvort Albert væri ekki of feitur og hún sagði:"jú, þú verður að passa hann, hann er nefnilega með svo lítinn haus að ef hann verður mikið feitari þá verður hann svo asnalegur!" (og ég vil nottla ekki eiga asnalegan kött!) En nú finnst mér hausinn á Einstein engan veginn í samræmi við búkinn en hann er samt ekki búinn að fitna, er ennþá 4,3 kg (þeir eru sko mjög stórir kettir, háfættir, stórbeinóttir og massaðir, ekki feitir..!) En kannski er hausinn á honum í beinu samræmi við heilastærð, ekki mjög mikið að gerast bakvið augun á honum, en hann er eftir sem áður mesti dúllurass í heiminum, dýrka hann! Ekki misskilja, ég elska þá samt báða alveg jafnt! Kannski Einstein aaaaaaðeins jafnara ;-þ
Vá alltof langt blogg, later...
2 ummæli:
Vil bara benda þér á að meðalkötturinn á að vera 4 kg þannig að þessi 6 kg er greinilega mjög "massaður" hjá þér. Brandur var 3,9 kg þegar við fengum hann en er kominn upp í 4,1 kg núna og við erum sko að passa að missa hann ekki í spik núna. Regluleg vigtun og alles. Hins vegar eru eigendurnir að hlaupa í spik en YÖK segir að það sé alfarið á þína ábyrgð því þú hafir flúið úr landi og skilið hann eftir bjargarlausan....fórnarlamb.is. Knús ALE og YÖK og að sjálfsögðu Brandur
Sko, áður en ég fékk mér Garmin og var skokkandi hér um götur Tokyo borgar þá notaði ég google earth til að sjá hversu langt ég skokkaði. Þú slærð bara inn adressunni þar og færð þá upp mynd (vonandi af byrjunarstaðnum) og svo notarðu mælistikuna þarna uppi, merkir við path og voila, ekkert mál að sjá hversu langt þú fórst.
Hins vegar er allta annað mál að ég var komin með algert ógeð á að gera þetta undir það síðasta (eftir ca 8 mánuði) og var því ákaflega hamingjusöm þegar ég fékk Garmin loksins. Verð að viðurkenna að það varð miklu skemmtilegra að hlaupa eftir að ég fékk hann. M.a.s. Lindi, sem fannst þetta ALGER vitleysa því hann var sko í neinni keppni, finnst þetta snilld núna, notar hann alltaf þegar hann fer út.
Kannast samt við það að vera ekkert alltaf mótiveraður að fara einn út að skokka. Sérstaklega núna þegar það er skítakuldi og svartamyrkur þegar ég fer. En þá hugsa ég alltaf "langar þig að vera feit??" og þar sem svarið er alltaf hið sama þá hunskast undan heitri sænginni og hendi mér út! :)
Ooooog lengsta komment í sögu bloggsins á.... :)
Skrifa ummæli