laugardagur, janúar 01, 2011

gleðilegt nýtt ár og allt það :o)

Gleðilegt nýtt ár elsku fólk og takk fyrir það gamla! Ætli árið 2010 hafi ekki verið eitt viðburðaríkasta ár ævi minnar, en ég og Hugo áttum einmitt eins árs afmæli núna 1.janúar :-D Hittumst sem sagt rétt eftir miðnætti á gamlárs fyrir ári síðan og teljum síðan þá þar sem við urðum kærustupar nánast strax! Búin að nánast búa saman síðan á öðrum degi og svo flutti ég nottla til Englands til að geta verið með honum. Í tilefni afmælisins færði hann mér þennan forláta blómvönd (voða rómantískur allt í einu!)en þar sem eigum enga blómavasa þá þurftum við að láta hann í próteinblandarann okkar!! O_o

Við fórum í partý hjá vinkonu okkar á gamlárskvöld og skemmtum okkur ótrúlega vel, meira að segja svo vel að ég ældi í poka þegar við komum heim!! haha mjög töff og mjög góð byrjun á árinu! En við björguðum líka fólki í neyð, þegar við vorum að labba heim þá löbbuðum við fram á kunningja Hugos og foreldra hans þar sem þau voru að fara að sofa í bílnum sínum, þar sem kunninginn hafði læst þau úti! Foreldrar hans höfðu komið alla leið frá suður-afríku til að eyða jólunum með honum og voru skiljanlega ekki ánægð með að þurfa að eyða nýársnótt í litlum sendiferðabíl! Þannig að við buðum þeim að gista hjá okkur, foreldrar hans sváfu í gestaherberginu en litli fávitinn sem læsti þau úti, á sófanum í stofunni, með Einstein kúrandi hjá sér alla nóttina. Albert hins vegar varð skelfingu lostinn við allt þetta fólk og skellti sér út í 10 klukkutíma göngutúr (eða sennilega farið í felur einhvers staðar, efast um að hann myndi nenna að labba í 10 klukkustundir)!! Hann er mesti hræðslupúki í heiminum, er viss um að hann mun deyja úr hjartaáfalli fyrir 5 ára aldur, sambland af offitu og ofsahræðslu er sennilega ekki góð blanda..! En ég skelli hérna inn nokkrum myndum frá gamlárskvöldinu.

Á nýársdag var stefnan tekin á algjör leti og vorum við búin að byrgja okkur upp af helstu nauðsynjum, svo sem ís, nachos o.s.frv. Þannig að þegar svo letidagurinn rann upp, var að sjálfsögðu kokkað upp
nachos gums og haagendaz ísinn tekinn fram. Nema bara að skálin með nachosinu var á borðinu og kettirnir byrjuðu að skoða hvort þeir gætu nýtt sér það eitthvað, borðuðu eitthvað af kjúklingnum og svo allt í einu tekur Einstein eitt nachos upp og tók það með sér á gólfið. Ég hugsaði eitt andartak með mér hvort að hann væri í alvöru
skrýtnasti köttur í heiminum og myndi actually borða nachos, en þá byrjaði hann bara að sleikja það, og ég bara:"yes, hann er bara að sleikja draslið af flögunni". Já
nei, eftir að hann var búinn að sleikja draslið af, þá borðaði hann flöguna!! Við fórum svo út í smá göngutúr og þegar við komum aftur þá hafði greinilega verið flögupartý, fullt af mylsnum á gólfinu eftir að kvikindið hafði verið að gæða sér á þeim. Hann er formlega furðulegasti köttur í heiminum..! O_o


Annars er ég hætt að taka vaktir í gyminu, mun snúa mér alfarið að einkaþjálfuninni núna, þannig að allir að krossa fingur og vona það besta! Vona samt að ég muni halda áfram að kenna spinning, veit að fólk hefur allavega beðið um það þannig að það væri snilld. En þeir vilja helst láta fólk á vakt kenna þar sem þá þurfa þau að borga 4 sinnum minna. Við fáum sem sagt ekki borgað aukalega fyrir að kenna þegar við erum á vakt, og launin á vakt eru svo skammarlega lág að ég vil helst ekki skrifa það upphátt (6.73 pund (ca. 1200 kall))! En fáum 25 pund (ca. 4500.-) fyrir hvern tíma sem við kennum utan vaktar, þannig að það verður snilld ef ég fæ sem flesta tíma, og fá þá borgað fyrir að hreyfa á mér rassgatið :o)


vá ég hef ekkert meira að blogga um, nema að Óskar Dagur litli frændi minn, sem er ekkert svo lítill lengur, á afmæli í dag og er orðinn 11 ára!! Og fékk ekki afmælisgjöf af lakari endanum, heldur fékk hann HVOLP!!! Sennilega svalasta afmælisgjöf í heiminum!! Eða hann fær að eiga hann með foreldrum sínum, en ég öfunda hann samt geðveikt! :-þ

Jæja læt þetta duga í bili, later...

Engin ummæli: