Allavega hvar var ég, ah já ég trúi ekki að ég hafi gleymt að blogga um eitt sem ég varð vitni að!!! Ég ætla að byrja á að útskýra, lágstéttin í UK er endaþarmur mannskyns, það er bara þannig! Það er fólki sem þið lesið um í fréttunum heima sem eignast 11 börn með 13 mönnum, hugsa ekkert um þau, nema þá bara til að berja þau í hakk, þau eru með gríðarlega andfélagslega hegðun gagnvart öllu, lifa á bótum og finnst þau eiga allt skilið frá ríkisstjórninni og nenna engan veginn að vinna, ganga um með hnífa á sér og krakkar allt niður í 10-12 ára eru stingandi hvert annað, og jafnvel drepin! Þau eru s.s sannkallað "white trash". Það er frekar auðvelt að þekkja þessa svokölluðu "pikeys" úr fjöldanum, konur með bleikt hár, í magabolum og almennt ógeðslegar. Kallarnir í "tracksuits" o.fl. Lágstéttin er ástæða þess að fólk er sannfært um að bretar séu ein ófríðasta þjóð í heimi, en mín reynslu er sú að bretar eru alls ekki ófríðir. Breskir karlmenn eru t.d mjöööög myndarlegir (mun myndarlegri en íslenskir karlmenn að mínu mati (fyrir utan nottla vini mína og ættingja, þið eruð gordjöss! ;o)) og ég þekki bara alveg hreint fullt af mjög myndarlegum konum. Allavega, bærinn sem ég bý í er mjög indæll bær og maður verður ekki var við þetta endaþarmsógeð hérna fyrir utan einstaka sinnum, og auðvitað var það undirrituð sem lenti í atviki með það! O_o
Ég var s.s að labba í vinnuna einn daginn þegar ég sé tvo "pikeys" standa fyrir utan að tala við starfsmann á bensínstöðinni, svo í þann mund sem ég labba framhjá þá byrjar annað ógeðið að berja starfsmanninn! Og ég stoppa og reyni að átta mig á hvað ég á að gera, af því að mér finnst ekkert sorglegra heldur en þegar fólk labbar bara framhjá fólki í neyð, þannig að ég byrja að labba í áttina að þeim, án þess að hafa nokkurt plan!! Sé þá karlmann koma hlaupandi útaf bensínstöðinni og grípur í starfsmanninn til að reyna að bjarga honum og hitt viðrinið (sem var ekki að berja hann) reynir að draga vin sinn í burtu. Nema að mannlegi úrgangurinn hélt ennþá svona einhvern veginn um andlitið á starfsmanninum þannig að ég reif í hendina á honum og öskraði á hann að sleppa (brjáluð hetja! Starfsmaðurinn fór inn með manninum og viðrinin tvö löbbuðu í burtu og ég hélt mína leið í vinnuna, með hjartað á milljón og kúkinn í buxunum því ég var svo hrædd um að þeir kæmu á eftir mér, þar sem að það að berja stelpur er ekki issue í þeirra huga!
En ég komst óhult í vinnuna og Hugo ekki par ánægður með mig að skipta mér af þar sem hann fór að ímynda sér að þeir myndu stinga mig til bana, en hann var samt jafnframt sammála mér að ég gæti illa lifað með sjálfri mér ef ég myndi bara labba framhjá einhverjum í vanda án þess að reyna að hjálpa. Og nú hef ég allavega eina "near-death-experience" til að deila með fólki..! ;-þ
Annars vorum við að fá þær fréttir að bíllinn okkar er dáinn :-( Vélin farin, þannig að við erum að melta næstu skref. Ekki alveg það sem við þurftum á að halda núna, að kaupa nýjan bíl! Vonandi getum við keypt nýja vél á einhverri skransölu eða eitthvað, en þannig séð þurfum við ekki bíl hér, nema að ég kemst ekki á handboltaæfingar. Eða ég kæmist með mikilli fyrirhöfn og einhverjum fjárútlátum en ég er ekki það metnaðarfull að ég nenni eða tími að leggja það á mig, þannig að ég þarf aðeins að bíða með það í bili, og svo er reyndar svolítið pirrandi að vera ekki með bíl ef maður þarf að versla eða ef mig langar til Reading á uppáhalds veitingastaðinn minn..! ;-þ
Ég hélt uppá afmælið mitt síðustu helgi, heppnaðist mjög vel og var mjög gaman. Það sem var fyndnast er að ég er greinilega orðin þekkt sem klikkuð kattakelling hér líka þar sem öll kortin nema tvö, voru með kattamyndum á! O_o

Og Einstein er líka byrjaður að vekja mikla lukku hérna, það kom ein 4 ára í afmælið mitt (sjá mynd) og lék við hann non stop í 3 klukkutíma (hann er svo þolinmóður að það er magnað!), og grét svo alla leiðina heim af því að hún saknaði hans svo mikið! Svo hef ég hef tvisvar verið stoppuð útá götu og verið spurð hvort ég eigi þrífætta köttinn, hann sé svoooo yndislegur! Hann er reyndar ekki allur þar sem hann er séður! Hann á nýja uppáhalds leikfangamús, hann bara fær ekki nóg af henni, en málið er að hvorki ég né Hugo könnumst nokkuð við að hafa nokkurn tímann keypt hana! Þannig að litla kvikindið hefur greinilega stolið henni einhvers staðar!!
Albert lét sig að sjálfsögðu hverfa þegar afmælið var í gangi en hann er að breytast í heljarinnar kelirófu, við erum með system, ég sit í sófanum, hann hoppar uppí, ég lyfti upp hendinn, hann leggst á kjöltuna mín og ég set hendina yfir hann og hann malar í kjöltunni á mér á meðan ég stússast í tölvunni eða horfi á sjónvarpið. Dýrka þetta gerpi, litli misskildi offitusjúklingur minn <3
Annars fékk ég ótrúlega góðar gjafir, sú besta klárlega frá fjöllunni en þau gáfu mér flugmiða heim til Íslands :-D Kem heim um páskana, hlakka ekkert smá mikið til! Hitta vini og vandamenn, knúsa litu gerpin mín og éta íslenskt nammi í heila viku!!!! :-þ
humm já, svo eru reyndar einar fréttir líka, eða eru kannski ekki ennþá orðnar fréttir en einkaþjálfunin hjá mér er allt í einu byrjuð að ganga bara nokkuð vel, og meira að segja það vel að það er annað gym hérna í bænum að reyna að headhunta mig yfir til þeirra! Er að fara á fund með þeim á morgun og sjá hvað þeir hafa að bjóða mér. Það er lítið einkarekið gym, og gólfgjaldið yrði mun lægra, en ég þarf að sjá hvernig landið liggur með að fá kúnna og svona, þó að ég viti að einhverjir af kúnnunum mínum kæmu með mér, enda er ekki það langt á milli. ca. 2 mínútur á bíl, en ég vil ekki þurfa að byrja aftur á núlli með að byggja upp kúnnahóp. En já, allavega sama hvernig það fer þá er gaman að vita að fólk er greinilega að tala um mig á jákvæðum nótum hérna í bænum :o)
En vá, sennilega lengsta blogg í sögu veraldara! Later.....
Engin ummæli:
Skrifa ummæli