fimmtudagur, febrúar 03, 2011

fullt af misskemmtilegu...

jájá kellan bara í ham og bloggar í annað skiptið á innan við viku!! :-þ

Það sem er að frétta síðan síðast er að ég mun fá 5 reglulega spinningtíma á viku, sem er fínt, voða gaman :o)

Bíllinn okkar dó sem er minna gaman:o( Sem sleppur að því leyti að allt hér í bænum er í göngufæri, en hins vegar missti ég af handboltaæfingu í gær :-( Hélt að ég yrði því ekki í hóp í leiknum á sunnudag en ég er í hóp og þjálfarinn bauðst til að koma að sækja mig ef ég væri ennþá í bílavandræðum. Þannig að ég ætla að túlka það þannig að hún vilji endilega hafa mig þarna :o) Geri reyndar ekki ráð fyrir að byrja inná, eða jafnvel fái að spila mjög mikið svona til að byrja með, en ég vona það. Þurfum að keyra í rúma 2 tíma (samt er leikurinn í London, bara hinum endanum, rugl stór borg..! O_o) og ég nenni eiginlega ekki að keyra svona lengi til að sitja svo bara á bekknum...

oh dísús kræst þessi þrífætti, þroskahamlaði köttur er algjört skaðræði!! Ég er búin að horfa á hann kúka í garði nágrannana (mér fannst það geðveikt fyndið, en ég veit að fólk sem á ekki ketti og jafnvel hatar þá er ekki ánægt með að fá ketti sem kúka í garðinn þeirra, þannig að ég er að reyna að finnast það ekki fyndið!), svo í gær þá sá ég hann vera að róta í blómabeðinu þeirra og gott ef hann skildi ekki eftir sig einn lolla líka... Svo áðan kom kona og bankaði hérna uppá. Hún sagði okkur að hún byggi neðar í götunni og myndi vinna hjá kattaverndarsamtökum (og ég sagði, án þess að hugsa nottla:"sjúkk, ég er þá ekki eina klikkaða kattakellingin í götunni!! O_o Allavega, hún var að spyrja hvort við lokuðum kettina okkar úti á nóttunni, við bara:"uh nei þeir eru með kattaflipa þannig að þeir fara inn og út að vild. Hún:"já vildi bara athuga af því að þessi þrífætti kemur reglulega inn til okkar að borða!" og hún á s.s 3 ketti, sem horfa á hann og urra, en leyfa honum samt að borða matinn sinn! Já þá hélt hún kannski að við lokuðum þá úti á nóttunni og hann neyddist til að fara á stjá og leita að fæði! Held reyndar að þeir séu í uppreisn núna, finnst fóðrið sem þeir eru á ekki alveg nógu gott, ætli ég skipti ekki aftur yfir í IAMS, vil ekki að þeir séu brjótast inn til nágrannana til að borða! Ekki það, hann gerði þetta líka heima á Íslandi, fór reglulega inn til kisunnar á efri hæðinni og fékk sér í gogginn, ég held að hann sé bara almennt gráðugur! (og nógu illa gefinn til að vera ekki hræddur við kisurnar sem eiga matinn sem hann er að gæða sér á..!)

Hulda sys og fjölla komin með hundinn í hendurnar, omg hafiði séð fallegra kvikindi?? (vona að ég sé ekki að brjóta lög um höfundarrétt, en myndin er tekin af stúdíó Linnet :o))


Talandi um kvikindi, ég sé að rottu-mars er að fá heilmiklar athygli heima, man nú ekki betur en að ég hafi stofnað rottu-apríl í fyrra, ég ætti mögulega að kæra þau fyrir hugmyndastuld? (þó að það megi rökræða um hversu góð hugmynd þetta er!! ;-þ) En reyndar var mér hent útaf facebook fyrir það, vona að rottan fái að lifa lengur í ár :o)

Jæja nenniggi meir, later..

3 ummæli:

Hulda sagði...

hehehehe...jæja loksins að kíkja á bloggið hjá skvísunni. Fer svo óreglulega inn á FB líka. En ég get sagt þér að við erum ekki í betri málum hérna með piss og kúk uppeldið ... ;/ Má ekki pissa þarna og alls ekki í þessum garði! Og heldur ekki inni! Arg...þannig að þetta þarfnast MIKILLAR þolinmæði...svo sannarlega. En hann veit allavega hvar matarskálin er! Heyrumst brátt. Það er svo mikill snjór og nú þarft maður að hóa í mannskapinn til að koma inn í mat o.s.frv. Krakkarnir duglegir í brekkunni og að byggja hús úti í garði o.sfrv. Knús í hús. sis

Bjarney sagði...

oh ég væri alveg til í að vera heima í snjónum núna!! Bið að heilsa öllum *kossar og knús*

Kiddý sagði...

Var einmitt að hugsa þetta með rottu mars og alla athyglina sem þessi stelpa fær út á þessa hugmynd sem jú hún á einmitt ekki upprunalega. Fyndið líka að þér hafi verið hent út af fb fyrir þetta en þetta ratar í öll blöð og fær þvílíku jákvæðu athyglina, merkilegt :)