fimmtudagur, mars 10, 2011

enn eitt bloggið


Ákvað að koma með annað myndablogg, Hugo átti sem sagt afmæli síðastliðin þriðjudag og ég gaf honum honum viðbjóðslega væminn bolla og sérútbúið kort, fór á heimasíðu sem heitir moonpig.com og gat búið til eitthvað svona persónulegt þannig að ég ákvað að vera væmin þetta árið, auk þess sem ég gaf honum náttföt. Læt fylgja myndir hérna af þessu :o) Ég vakti hann um morguninn og var búin að setja kökur og kaffi á borðið og svo héldum við uppá daginn með því að fara í ræktina og fórum svo út að borða um kvöldið, mjög næs. Förum svo út að borða með fjölskyldunni hans næsta laugardag á uppáhalds veitingastaðinn hans Hugo, Tailormade steaks er það kall, kokkurinn kemur fram með kjöt og hníf og þú segir honum bara hversu stóra steik þú vilt, engin furða að Hugo elskar þennan stað..!

Annars er þjálfunin að ganga nokkuð vel, er að fá kúnna á hinum staðnum líka, man ekki hvort ég bloggaði um að ég ætlaði ekki að færa mig yfir, en get gert bæði. Það verður fínt, þeir redda kúnnum og svona fyrir mig þar og ég þarf ekki að gera annað en að koma og þjálfa :o) Ég er búin að vera með nokkara kvenkynskúnna í þjálfun núna sem eru að ná frábærum árangri, þannig að fólk er virkilega að taka eftir því og oft eru þær ekki að breyta neinu nema að byrja styrktarþjálfun sem þær hafa aldrei gert áður. Að sjálfsögðu hafa þær líka tekið til í mataræðinu en mér finnst ég ekki vera að gera neitt annað en að útskýra, aðallega fyrir kvenfólki, að þær endi ekki eins og karlmenn þó að þær lyfti þungt! Ég hef heyrt konur halda því fram að þær tútni svo svakalega út eða léttist ekki þegar þær lyfta þungt, sannleikurinn er hins vegar sá, að því gefnu að viðkomandi hafi töluvert að missa, að ef þær eru ekki að léttast, þá er mataræðið í ruglinu! Þegar ég var 15 kílóum þyngri en ég er í dag þá heyrði ég stundum fólk segja að ég væri orðin of mössuð, en ég var bara ekkert svo mössuð, ég var bara aðallega feit!! o_O Allavega er ég mun sterkari í dag OG 15 kílóum léttari, og ef ég hreinsa aðeins betur til í mataræðinu þá get ég nokkuð auðveldlega misst nokkur kíló í viðbót og haldið áfram að lyfta 65 kíló í bekk, 115 kíló í réttstöðulyftu og gert 25 upphífingar með eigin líkamsþyngd (reyndar með sveiflu, en ég hef ekki ennþá sé konu hérna úti geta gert svo mikið sem eina upphífu án aðstoðar), ekki það að ég sé að monta mig, er bara að reyna að sýna fram á það er óhætt fyrir konur að lyfta þungt þrátt fyrir að þær séu að reyna að léttast, og ef þær eru ekki að léttast þá ættu þær frekar að skoða mataræðið hjá sér heldur en að kenna lyftinginum um. Jæja er hætt að tuða um, ætla að enda tuðið mitt á uppáhalds "kvótinu" mínu þessa dagana:"You can´t outtrain bad diet..."






Annars er orðið töluvert langt síðan ég bloggaði um kettina mína! Held það sé kominn tími á það :o) Ég veit að oft hefur hallað á Albert í samanburði við Einstein, en Albert er algjör kúrimús, hann liggur t.d í fanginu á mér núna :o) Hann hefur líka grennst helling og er orðinn eiginlega bara venjulegur! Ætla að henda inn nokkrum myndum af strákunum mínum og láta þetta duga í bili, bleh bleh humm jæja ég virðist ekki geta sett fleiri myndir inní þetta blogg, set inn aðra færslu bara með myndum :o)

2 ummæli:

Inga Lilý sagði...

Vá hvað ég er sammála með mataræðið. Ég tók geðsýkishreyfingu í febrúar út af Lífshlaupinu en spáði EKKERT í hvað ég át. Niðurstaðan var mínus ca 800 grömm allan febrúar.
Er búin að vera geggjað dugleg í mataræðinu í mars og niðurstaðan - mínus rúmlega 2 kg á 11 dögum!!!

Alveg kreisí og sýnir mér amk ansi vel hvað mataræðið skiptir svakalega miklu máli.

Og já ég vildi að ég gæti lyft almennilega en þar sem ég kemst ekkert í rækt úti þá verð ég að láta 6 kg handlóð og eigin líkamsþyngd duga. Það er eina ástæðan fyrir því að ég hlakka til að flytja heim að lokum, það er að komast aftur í ræktina og fara að lyfta almennilega. :)

Bjarney sagði...

já nákvæmlega, það snýst allt um þetta helv.... mataræði!! hehe sökkar en satt..! o_O