Svo sem ekki mikið að frétta, en lífið hérna í Henley er ennþá mjög gott.
Fluttu 2 Íslendingar til Henley fyrir stuttu síðan, ég vissi það ekki fyrr en þau komu í gymið og sölumaðurinn kynnit mig fyrir þeim, fyrst fattaði ég ekki hvað hann sagði þannig að ég snéri mér að gaurnum og sagði:"hi, nice to meet you" og svaraði á móti:"þetta er allt í góðu, þú getur alveg tala íslensku" hahah ég er svo mikill lúði að það er ekki fyndið! En mér til varnar, hverjar eru líkurnar á að hitta Íslending í Henley!! En alltaf jafn fyndið að þegar maður hittir Íslendinga í útlöndum að það er eins og maður sé að rekast á gamla vini! Við spjölluðum í korter eða svo og tókum niður símanúmerin og svo er planið að hittast eitthvað á næstunni, og svo reyndar rekst ég reglulega á þau í gymminu, ótrúlega furðulegt að vera farin að tala íslensku aftur, mér finnst ég hljóma hálf kjánalega þegar ég svissa yfir! o_O

Svo eru nokkrir Íslendingar í Reading og það er verið að stefna á Íslendingapartý núna í lok nóvember, ætlum að borða SS pylsur og borða íslenskt nammi! Hlakka ekkert smá mikið til! haha litli nammigrísinn!! En síðan ég flutti þá hafði ég ENGAN áhuga á að leita uppi Íslendinga, en núna þegar maður er búinn að hitta þá þá er það ótrúlega gaman :o)
En svo á ég orðið nokkra töluvert góða vini hérna, og fólkið hérna er líka bara svo geðveikt elskulegt. Hérna er töluvert algengt að vera með svona sunday roast, þar sem öll fjölskyldan kemur saman í hádegismat og borðar saman. Og ég var eitthvað að djóka í gymminu um daginn og sagði að ég þyrfti að finna mér enska fjölskyldu svo að ég gæti farið í sunday roasts og núna eru tvær konur búnar að bjóða mér að koma til sín í mat! Er að fara til annarrar á morgun, maðurinn hennar er svooo hamingjusamur því hún sagði að hún væri búin að vera töluvert löt við þetta uppá síðkastið, þannig að hann er svo glaður að hún ákvað að leggja alla þessa fyrirhöfn á sig fyrir mig :-D Hlakka ekkert smá mikið til, ætla að borða á mig gat!! :-D
Annars er ég farin að hlakka ótrúlega mikið til að koma heim um jólin, kem heim í 10 daga. Annað dæmi um hvað fólk hérna er yndislegt, ég á eina mjög góða vinkona hérna Laura heitir hún, foreldrar hennar eru skilin en þau eru bæði búin bjóða mér að koma og vera með þeim um jólin, voru með áhyggjur af mér, ekkert smá yndisleg :o)Svo á ég aðra ágætis vini sem ég er búin að vera að spila skvass við og badminton, og mögulega að fara á snjóbretti næstu helgi o.fl. Þannig að mér líður alveg ótrúlega vel hérna...
En ég get ekki beðið eftir að hitta fjölskylduna mína aftur, og eyða tíma með þeim. Ég ætla að eyða öllu fríinu í náttfötunum heima hjá mömmu og pabba að borða á mig gat og svo í Sporthúsinu þess á milli! hahah ég verð heima frá 23.des-3.jan ef einhverjum langar að plana hitting með mér :o)
Einstein liggur hérna og malar í fanginu á mér, ekki eðlilega mikið krútt þessi köttur! Held reyndar að hann sé pínu einmana hérna þar sem við búum núna. Þar sem við bjuggum áður var fullt af fólki og öðrum köttum, en þetta hverfi er svoooooo rólegt, þannig að þegar ég kem heim þá er hann svo needy, vill bara vera í fanginu á mér non stop. Sem er samt mjög krúttlegt, og gott að við erum laus við eineltisköttinn þannig að hann er hættur að vera allur útataður í sárum! Albert er í góðu yfirlæti hjá fósturpabbanum, em reyndar fékk blóðtappa í lungun eða eitthvað, og er búinn að vera á sjúkrahúsi, þannig að ég hef verið að fara og gefa honum að borða og hleypa honum út og sonna, en það er bara gaman að fara og hitta litla feitalinginn minn aðeins :o)

(myndirnar af honum eru frá því að ég kom að honum liggjandi upp í rúmi undir sæng og með hausinn á koddanum og svo hin þegar hann var sofandi á bakinu! Ég er nokkuð viss um að það er ekki eðlilegt fyrir kött..! o_O
Jæja vá nóg af blaðri, haha hversu langt blogg er hægt að hafa um ekkert!! o_O
Allavegam farin að taka til eða gera eitthvað af viti..! later Xx
Engin ummæli:
Skrifa ummæli