Hlauptu hlunkur

fimmtudagur, október 20, 2011

önnur færsla :o)


Kellan komin í bloggham..!

Það sem er kannski helst að frétta er að síðustu helgi þá fékk ég símtal, klukkan var rétt að verða 5 á laugardeginum. Það var ótrúlega gott veður þannig að ég ákvað að kíkja í bæinn og var bara eitthvað á vappinu þegar síminn hringir, samtalið var svohljóðandi:

maður: "Er þetta B?"
ég: já
maður: ég er búin að heyra að þú sért mjög góður þjálfari og mig vantar einmitt einn slíkan
ég: oh en gaman að heyra
maður: ertu eitthvað við?
ég: hvenær?
maður: núna
ég: núna?? Gymið er að fara að loka eftir klukkutíma og ég er stödd niðrí miðbæ, hef því miður ekki tök á að koma.
maður: ok ekkert mál, ákvað bara að tékka á þér, ég hringi í þig næst þegar ég er í bænum
ég: ok, já gerðu það, bæjó

Svo átta ég mig á því hvað gerðist, lít á Laura vinkonu mína og segi: "Ég held að Orlando Bloom hafi verið að hringja í mig, rétt í þessu. Og ég sagði nei, AFTUR!!" (hann kynnir sig aldrei með nafni, sennilega af því að fólk verður eitthvað asnalegt)

Þannig að ég hringdi tilbaka og sagði honum að ég gæti hitt hann á sunnudeginum ef hann vildi koma inn þá, hann sagði að hann ætlaði að reyna að troða inn æfingu núna en ef hann næði því ekki þá myndi hann hringja aftur. Ég heyrði svo ekkert frá honum en fór svo í gymmið á sunnudagsmorgninum kl.8:15, áður en ég kenndi spinning og strákarnir í afgreiðslunni sögðu mér að Orlando væri inni. Þannig að ég labbaði bara beint upp að honum (gerði bara ráð fyrir því að þetta hefði verið hann daginn áður haha, en ég vissi að hann hefði komið í gymið seint á laugardeginum þannig að líkurnar voru með mér!) og baðst afsökunar á að hafa ekki haft tök á að hitta hann daginn áður, þá sagði hann:
"ah Bee, so nice to finally meet you! Ekki hafa áhyggjur" svo kynnti hann mig fyrir vini sínum og sagði honum að Catherine (vinkona hans) hefði mælt svo mikið með mér. Hann sagði jafnframt að hann væri að fara í burtu í töluverðan tíma núna en myndi pottþétt hringja í mig þegar hann kæmi tilbaka. Ég sagði að það væri hið besta mál, en bað hann um að hringja með aðeins meiri fyrirvara næst! Hann fór bara að hlæja og lofaði því.

Þannig að núna er ég þekkt sem stelpan sem sagði nei við Orlando Bloom TVISVAR, og lét hann svo heyra það varðandi það að hringja ekki með meiri fyrirvara! haha jæja, en það hefði í raun verið mjög óprofessional að hlaupa uppí gym í gallabuxum eins og slefandi hvolpur bara af því að þetta var hann...

Annars er ég vonandi að fara að kaupa mér bíl um helgina, bara gamlan Peugot til að skottast á milli. Er búin að vera að hjóla á milli en er orðin ansi þreytt á því, finnst ég alltaf sveitt og illa lyktandi og svo er pirrandi að fara hjólandi að versla o.fl. Gæti sennilega komist af án bíls en það er lúxus sem mér finnst ég bráðnauðsynlega vanta!! Sakna pabba míns reyndar ógurlega á svona stundum til að koma með mér og kíkja á bílinn og ganga úr skugga um að það sé óhætt að kaupa hann, en ég á ágætis kunningja sem er klár á bíla og ætlar að koma með mér. Ég elska Henley, fólkið hérna er svooooo yndislegt, það eru allir búnir að vera svo boðnir og búnir til að hjálpa mér við flutningana og annað. Ég hreinlega elska að vera hérna ef ég á að segja eins og er. Er líka að verða brjálað að gera hjá mér í þjálfun, er að vona að þetta sé það sem koma skal! Get þá mögulega farið að hafa það ágætt svona í nánustu framtíð..!

Ég veit að það er alltaf verið að segja að grasið er ekki grænna hinum megin, vandamálin elta þig o.s.frv. En ég get sagt fyrir mína parta að grasið er miklu grænna hérna megin! Ég sakna vina og fjölskyldu mjög mikið, en ég sakna sko ekki veðursins og andrúmsloftsins! Og svo eru fullt af hlutum hérna sem ég ELSKA! T.d Boots og H&M :-D Kannski á mig einhvern tímann eftir að langa aftur heim, en eins og staðan er núna þá fæ ég klígju við tilhugsunina :-/

Ætla að fara að lúlla, alveg búin á því, fyrsti kúnni kl.6 í morgun og kláraði svo ekki fyrr en 20:30. Einstein liggur hérna og kúrir hjá mér, hann er ekki eðlilega mikið yndi, vill alltaf bara liggja í fanginu á mér, sem getur verið pirrandi því hann malar svo hátt að það er eins og það sé einhver hrjótandi við hliðiná manni!! En ég dýrka þetta litla gerpi, get ekki annað en brosað upphátt alltaf þegar ég horfi á litla reharðinn minn :o) myndin er af honum að tjilla uppá sófanum, áhyggulausasti köttur í heimi...


Albert er að pluma sig ágætlega á hinum staðnum, nema að það er einhver ógeðisköttur sem leggur hann í einelti! Er að spá í að fara og sparka geðveikt fast uppí rassinn á honum og nota hann sem inniskó! (hehe munið ekki eftir dýrainniskónnum,ok glataður brandari) en greyið Albert er víst allur útí sárum. Virðist samt alltaf vera til í að fara út og er dekraður alveg í spað hjá fósturpabbanum :o)

Jæja farin að lúlla, later...

4 Comments:

  • Þú BÝRÐ til tíma fyrir Orlando Bloom og lokar gymminu SEINNA! Djöfulsins fokking amatör ertu maður!

    By Blogger Egill, at 21/10/11 21:31  

  • hahaha verandi karlmaður sjálfur þá áttu að skilja að eftir að hafa fengið tvöfalda höfnun þá mun hann þrá ekkert heitar en að fá mig sem þjálfara!! Hver er amatörinn núna huh?!?

    By Anonymous Bjarney, at 21/10/11 21:33  

  • SNILLINGUR!!

    By Anonymous Nafnlaus, at 21/10/11 23:38  

  • Gaman að geta fylgst aftur með þér. Við hittumst nú kannski um jólin.
    kv Díana

    By Anonymous Nafnlaus, at 27/10/11 12:15  

Sendu inn athugasemd

<< Home