Hlauptu hlunkur

fimmtudagur, október 13, 2011

komin aftur :-D

Vá ég held það hafi aldrei liðið svona langur tími á milli blogga síðan ég byrjaði að blogga í janúar 2004! Vá hvað er orðið langt síðan! Segir okkur bara eitt, ég er gígantískur lúði!!

En ástæðan fyrir því að ég hef ekki bloggað svona lengi er af því að það hafa átt sér stað ansi miklar breytingar, ætla svo sem ekkert að fara ítarlega í það, en flestir sem lesa bloggið mitt vita það hvort sem er, og aðrir verða þá bara að lesa í gegnum línurnar :o)

Ég og Einstein erum flutt í litla íbúð í litlu þorpi sem tilheyrir Henley og heitr Shiplake, yndislegt þorp. Aðeins fyrir utan Henley þannig að ég hef verið að hjóla á milli, eða taka lestina (tekur mig 7 mín að hjóla í vinnuna)en ætla reyna að kaupa bíl núna í nóvember, lítinn, gamlan Peugot. Albert býr á fósturheimili, ætla að reyna að koma mér fyrir í stærri íbúð þegar þessi leigusamningur rennur út (eftir 9 mánuði) þar sem ég get haft þá báða (upphaflega mátti ég ekki hafa dýr hérna, en leigusalinn vorkenndi svo þessum þrífætta þannig að þau ákváðu að gefa honum 2 vikna reynslutíma, sem hann stóðst með prýði, þannig að hann fær að búa hjá mér, sem er æði. Albert er í mjög góðu yfirlæti þar sem hann býr, og satt að segja þá virðast þeir betri án hvor annars, þannig að ég veit ekki alveg hvernig þetta fer. Ég fer og heimsæki Albert reglulega, en ef hann og fósturpabbinn verða orðnir bestu vinir að 9 mánuðum liðnum, þá hef ég sennilega ekki hjarta í mér til að taka hann aftur, en jæja við sjáum hvernig þetta fer :o)

Þrátt fyrir breyttar aðstæður þá er planið ekki að koma heim, mig langar það EKKERT. Mér líður ótrúlega vel hérna, elska England og er búin að eignast töluvert af vinum og kunningjum. Er líka á æðislegu svæði, og svo væri líka hálf sorglegt að vera búin að eyða heilu ári, sem innhélt andvökunættur, stressköst, grátköst og almennt vonleysi, í að byggja upp kúnnahópinn minn, og labba svo í burtu frá því núna þegar það er loksins farið að ganga vel. Einnig finnst mér jafnvægið hérna henta mér betur, t.d veðrið er mildara, þó að það rigni töluvert þá rignir beint niður og maður getur haft regnhlíf! Það kemur nótt á sumrin og dagur á veturna, og að lokum þá elska ég breskan húmor og finnst fólkið hérna ótrúlega almennilegt. Svo á ég orðið meiri frítíma og fæ nægan svefn o.s.frv. Þannig að mér finnst lífsgæðin meiri hér en ég hafði heima.

Talandi um vinnuna, ég var s.s í gymminu síðasta föstudag og einhver hringir í gymið og spyr hvort það sé laus þjálfari kl.10. Strákurinn kemur til mín og spyr hvort ég sé laus. Ég var laus en þurfti að fara heim og sækja spinningdótið og eitthvað þannig að ég sagði að ég gæti það því miður ekki. Kom svo tilbaka kl.11, þá var mér tilkynnt það sá sem hafði hringt, og hafði sagt nei við, var ORLANDO BLOOM! og hann var inní gymminu með öðrum þjálfara..! Hversu svekkjandi er það??? Og til að bæta gráu ofan á svart, þá fékk ég tvær afboðanir þannig að ég hefði vel getað farið heim og sótt spinningdótið mitt á öðrum tíma! En svo reyndar sagði vinkona hans mér að hann hefði ekkert verið neitt sérstaklega ánægður með þjálfarann sem hann fékk þannig að hún mælti með mér og hann sagðist myndi hringja í mig næst þegar hann væri í bænum og vantaði þjálfara, þannig að nú er bara að krossa fingur og vona að ég verði næsti (alvöru) celeb þjálfari! haha væri snilld :o) Hann er búinn að koma nokkrum sinnum í gymið uppá síðkastið, ótrúlega almennilegur, gerði reyndar grín að jakkanum mínum um daginn, en það er alveg skiljanlegt, hann er SKÆRGULUR! Af því að ég þarf að hjóla á götunni og á kvöldin þegar það er dimmt þá vil ég sjást! (engir götulampar), þannig að ég er með hjálm, ljós á hjólinu og í SKÆRGULUM jakka! Kellan spilar þetta safe!! :-þ

Annars kom ég til Íslands fyrir 2 helgum síðan, til að fara í brúðkaup hjá Lilju vinkonu. Skemmti mér þvílíkt vel, og sennilega aðeins of vel! Eins og kellunni hættir til!! jæja ætla svo sem ekkert í smáatriði, en eins og venjulega finnst mér eitthvað þrælfyndið meðan á því stendur, en finnst það svo kannski ekki aaaaaalveg jafn fyndið þegar ég vakna daginn eftir!! haha en svo gerði ég reyndar stóóóór mistök að panta flug heim daginn eftir! Úff ég var svoooooo þunn, af því að ég drekk svo ótrúlega sjaldan þá verð ég alveg hryllilega veik :-/ Varð svona frekar mikið óglatt í bílnum á leiðinni á flugvöllinn en hélt þetta myndi sleppa, kom svo inní flugstöðina og finn að gusan er að koma og hleyp beint aftur út og rakleiðis að næstu ruslatunnu! Er ekki helv.... opið á hliðinni þannig að ég gat ekki beint stungið hausnum þar inn þannig að ég varð bara að láta gossa á jörðina :-/ Var samt mjög gott að losna við þetta úr mallanum, en oj þetta kenndi mér dýrmæta lexíu! Aldrei bóka flug daginn eftir djamm!!

En þetta var bara stutt stopp, 3 dagar, en ætla að koma í langt stopp um jólin, 10 daga. Hlakka ekkert smá til :-D Og næ þá vonandi að hitta alla sem ég náði ekki að hitta núna!

Ætla að láta þetta duga að sinni, nóg svona til að byrja með eftir endurkomuna. Later Xx

2 Comments:

  • Oh, fúlt :( Hélt raunverulega að þú hafðir fundið þann eina sanna ...

    En það er ekki heimsendir, ég hef fulla trú á þér og held það sé rétt metið hjá þér að þú hafir það betra þarna.

    Kemstu með Albert til Svíþjóðar ... þá get ég tekið hann að mér.

    Knús á þig Bjarney... óska þér alls hins besta!

    By Blogger Disa, at 16/10/11 01:12  

  • Úff - gott að þú ert "komin aftur"!

    Gút lökk í áframhaldandi Englandslífi!

    Kveðja frá Fróni

    By Anonymous Nafnlaus, at 16/10/11 23:12  

Sendu inn athugasemd

<< Home