frábær heimsókn að baki
Jæja ætla að nýta þetta laugardagskvöld í að blogga, alltaf jafn spennandi lífernið á mér! haha (þið verðið að fyrirgefa að myndirnar eru allar í belg og biðu)

En ég get samt ekki beðið með að blogga af því að síðustu dagar eru búnir að vera svo mikil snilld! Þórunn systir kom með Sindra og Óskar Dag í heimsókn og það var algjört æði! Hugo fór daginn eftir að þau komu til Las Vegas í steggjapartý og svo til San Francisco í brúðkaup þannig að hann gat ekki verið með okkur. En það var algjört æði að hafa þau hérna.
Við byrjuðum á að fara til Reading á laugardeginum, að versla en prófuðum líka svona fiskafótsnyrtingu! Þar sem maður dýfir fótunum í kar og litlir fiskar narta af manni siggið!! Frekar ógeðfelld tilhugsun en ekkert svo slæmt, kitlaði töluvert en ég er ekki frá því að ég hafi vaknað með aðeins mýkri fætur daginn eftir..!
Svo voru svona loftkúlur sem fljóta á vatni og maður hleypur inní kúlunni svona eins og hamstrar. Óskari Degi langaði að fara en Sindri vildi ekki vera sá stærsti í kúlunum þannig að ég spurði hvort hann myndi vilja fara ef ég færi líka og þá var hann til í það, þannig að þroskaða frænkan ákvað að skella sér með þeim. Og þetta var ansi gaman, Þórunn náði einni priceless mynd af mér! Með einhvern fáránlegan svip á leiðinni að fljúga á hausinn! En þetta var ótrúlega gaman :o)
Vorum svo eitthvað að spá í að fara í Legoland, en það var alveg fáránlega dýrt og svo skilst mér að þeir séu full gamlir fyrir það, en við ákváðum að fara í bíltúr til Windsor. Þegar við komum þangað þá ákváðum við að kíkja aðeins inní Windsor kastala, og það var mjög áhugavert, og gott veður þannig að það var ótrúlega góður dagur.

Fórum svo í tívolí á mánudeginum, það var algjör snilld!! Ég og Sindri fórum í öll stærstu tækin og Óskar Dagur næstum því öll en Þórunn var mjög dugleg með myndavélina á jörðu niðri :o) Hún fór reyndar í eitt tæki, biðum ekki nema í 75 mínútur í röðinni! En það var þess virði fyrst að við náðum að draga hana með :-D Veðrið var líka mjög gott þann daginn þannig að hann var ótrúlega vel heppnaður, algjör æði.

Á þriðjudeginum fórum við svo til London, og ég held ég sé komin með tímabundið ofnæmi fyrir London!! En það var samt gaman hjá okkur, við fórum í London eye og svo í London Dungeon, sem fer með mann í gegnum myrkustu sögu London, hvernig fólk var pyntað í gamla o.fl. það var áhugavert en það er bara úr svo ótrúlega mörgu að velja! Hefði t.d viljað fara líka á Madame Tussaud, Sjávarsafn, náttúrusafn og margt, margt fleira! Við komum ekki heim fyrr en kl.23:15 og vorum algjörlega búin á því! Ég þoli ekki samgöngurnar í London, neðanjarðarlestarnar og allt fólkið!! Skil ekki fólk sem gerir þetta á hverjum degi! o_O Ég er alltaf jafn þakklát þegar ég kem aftur heim í litla yndislega bæinn minn..!

Við fórum reyndar tvisvar á hverfisbarinn minn, hann er bara hérna uppi á horninu og krakkar mega vera með. Eftir að hafa farið í fyrra skiptið þá voru strákarnir alveg æstir í að fara aftur af því að þeir gátu spilað snóker og pílu og svo fengur þeir víst besta sprite sem þeir hafa á ævinni smakkað!! Mjög eðlilegt þegar 11 ára frændi manns er að suða um að fara á pöbbinn, get ekki sagt að mér hafi liðið eins og bestu fyrirmynd í heimi!!

Við vorum ótrúlega heppin með veður allan tímann nema síðasta daginn! Þá var svo mikil rigning að það var ekki hægt að fara út! Þannig að strákarnir fengu að horfa á vídeó og panta pizzu, vildu endilega prófa enska Dominos pizzu og komust að þeirri niðurstöðu að íslenskar Dominos eru betri :o) En þessi rigning var ekkert grín! Það var byrjað að flæða á götunum, holræsin höfðu ekki undan! En ég held að það hafi samt alveg verið pínu notalegt, Sindri týndi sér í nýja ipadinum og svo voru þeir að knúsast með kettina :o)
Það var algjört æði að hafa þau hérna, og ég held að þau hafi skemmt sér mjög vel líka. Allavega var ég að tala við Óskar Dag í gær á facebook og hann spurði hvort hann mætti koma aftur á næsta ári ef hann nógan pening, algjört krútt! Hérna eru fleiri myndir ef ykkur langar að skoða:
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10150361964625041.399083.579915040
Ananrs er allt við það sama hjá mér, reyndar búið að vera frekar rólegt uppá síðkastið en næsta vika verður crazy!! Sem er gott, er að stefna á að koma heim eina helgi í október en það kostar víst pening þannig að það er vonandi að vinnubrjálæðið sé komið til að vera...

Var að tala við Höbbuna áðan og vorum að tala um Reykjavíkurmaraþonið og Habban sagði að hún ætlaði að gera það næst, þannig að ég stakk uppá að við myndum æfa "saman" gegnum internið og stefna á hálft maraþon. Ég varð svo rosalega mótiveruð við hugmyndina að ég skellti mér út að hlaupa, og ég verð að viðurkenna að ég er mjöööööög fegin að ég hef heilt ár til stefnu!! haha en það er ágætt að ég sé búin að segja þetta upphátt, þá eru meiri líkur á að maður standi við það! :-D
Jæja læt þetta duga í bili, later...

0 Comments:
Sendu inn athugasemd
<< Home