Hlauptu hlunkur

sunnudagur, desember 11, 2011

desemberblogg

jæja löngu kominn tími á færslu!!

Það sem er að frétta er að kellan er búin að vera á fullu! Hlakka ekkert smá til að koma heim um jólin, þarf á hvíld að halda! Ekki bara búin að vera að vinna af mér rassgatið heldur er ég bara alltaf á djamminu og eitthvað! Reyndar yfirleitt á bíl en ég er samt fáránlega stolt af sjálfri mér að vera orðin svona mikið party animal!! haha en það er ótrúlega gaman hvað ég á orðið marga vini hérna og alltaf eitthvað í gangi. Síðasta ár var ekki það gleðilegasta í lífi mínu en nún er uppskeran loksins að láta sjá sig (var t.d að koma út á sléttu peningalega þar sem gólfgjaldið er svo viðbjóðslega hátt, þannig að það var bölvað ströggl, Hugo meiddist og svo voru margir samverkandi þættir sem reyndu ansi mikið á, kannski ekki furða að þetta hafi ekki gengið upp hjá okkur, mér þykir samt ennþá endalaust vænt um hann og mun aldrei sjá eftir að hafa látið reyna á þetta hjá okkur. Hefði sennilega alltaf séð meira eftir því að flytja ekki út) en eins og þeir segja, öll él styttir upp um síðir og ég gæti ekki verið hamingjusamari, eða jú ég gæti það því gólfgjaldið er ennþá að gera mig geðveika, en ég er að fara á fund á eftir út af nýju gymi sem er vonandi að opna í febrúar og þeir hafa beðið mig um að vera sér innan handar með það. Þannig að þá mun ég sennilega vinna eitthvað fyrir þá, og fæ svo að þjálfa kúnnana mína ofan á það, þannig að í staðinn fyrir að borga 950 pund (176 þús ísl kr.) á mánuði þá fæ ég laun, og peningarnir frá kúnnunum renna beint til mín. Þannig að ef það gerist þá mun það breyta lífi mínu algjörlega, þannig að *krossa fingur*


Svo fór ég á svona boxercise námskeið um helgina og er núna qualified boxercise þjálfari, er bara svona fitness box. En það er ótrúlega gaman, og fáránlega erfitt! Verður gaman að geta bætt því inní þjálfunina. Ætla að taka hanskana og púðana með til Íslands um jólin þannig að ef einhver vill koma að boxa með mér þá um að gera að droppa línu :o)


Annars er ég að elska bílinn minn í tætlur! Vá hvað það er mikið frelsi! Er byrjuð aftur í handboltanum, og get keyrt inn til London þegar við erum að spila þar, og svo þegar íslenska kvennalandsliðið í handbolta stoppaði í London til að spila við lið GB þá skottaðist ég inn til Crystal Palace til að horfa á leikinn og hitta Jóa vin minn, og svo nottla stelpurnar sem ég þekki í landsliðinu, ekkert smá gaman að hitta þau öll. Og Jói kom með fullan poka af nammi handa mér! :-D Sem auðvitað kláraðist í fyrstu vikunni! haha

Annars bara 12 dagar í að ég komi heim, vá hvað ég hlakka til! Verður endalaust gott að koma heim og knúsa litlu frændsystkinin og hitta alla. Fara í Sporthúsið mitt og svo bara eyða tíma með vinum og vandamönnum. Ætla að stoppa í 10 daga þannig að þetta verður gott frí :-D

Ætla að láta þetta duga, þarf að gera mig klára fyrir fundinn með eigendum nýja gymsins, later...

3 Comments:

  • Allt í góðu að vera virk í djamminu þegar þú ert ofvirk í ræktinni :)

    Skemmtu þér hrrrikalega vel heima á Íslandi og svo tökum við Sumarchallenge eftir jól og þá SKAL ég standa mig betur í mataræðinu. :)

    By Blogger Inga Lilý, at 12/12/11 02:05  

  • Sk-lana K-lova!
    Gaman að lesa um líf þitt í GB. Vantar bara fréttir af gengi þínu í sokka-handboltanum. Bestu kveðjur, EH.

    By Anonymous Nafnlaus, at 15/12/11 09:39  

  • hahah ekki bjóst ég við að þú myndir lesa bloggið mitt! Ertu ekki enn búinn að jafna þig eftir taphrinuna hérna um árið?? ;o) hahah

    BB

    By Anonymous Nafnlaus, at 15/12/11 17:46  

Sendu inn athugasemd

<< Home