laugardagur, janúar 21, 2012

janúar 2012

Eitt blogg á mánuði, var það ekki planið?? ;o)

Gleðilegt nýtt ár og allt það!

Síðan síðast þá er ég búin að fara til Íslands og tilbaka :o) Átti yndisleg jól með vinum og vandamönnum og ekkert smá notalegt að gista á Hótel Mömmu og vera dekraður hægri vinstri í 10 daga :-D


Þess á milli fór ég svo í Sporthúsið, reyndi að æfa eitthvað af viti en aðallega til að hitta fólk, ótrúlega fyndið, það er alltaf eins og maður hafi aldrei farið! Vá hvað ég sakna samt Sporthússins, besta gym í heimi!


Fékk svo Brakið í jólagjöf og kláraði hana á meðan ég var heima, tók svo með mér "ég man þig" út og kláraði hana á 2 dögum, bara gat ekki hætt að lesa! Fannst hún reyndar mun betri en Brakið (note to self: muna að senda bókina aftur tilbaka! Sorry mamma, hún fer í póst á mánudag!)

Svo er nottla alltaf hápunkturinn að hitta litlu gríslingana, sem eru samt að stækka eins og óð fluga! Þórey María vildi endilega fá að gista hjá mér eina nótt, sem var nottla meira en sjálfsagt, svo vaknaði hún kl.7:30 og hvíslaði: "Bjarney, ég vil fara fram að leika" Það var ennþá mjög dimmt þannig að ég ákvað að allavega að prófa og sagði við hana "Þórey María, það er ennþá nótt" og hún lagðist niður og svaf í klukkutíma í viðbót! haha litli snillingurinn, en þá vaknaði hún og vildi fara að leika þannig að ég klöngraðist framúr með henni til að fara í barbie...


Viktor Andri varð svo 2 ára, þvílíka krúttsprengjan! Ég dýrka þessi gerpi útaf lífinu, ef ég mun einhvern tímann íhuga að flytja aftur heim þá er það bara útaf þeim (og öðrum fjölskyldumeðlimum auðvitað), en eins og staðan er núna þá finnst mér umhverfið heima bara ekki heillandi :-/

Annars er bara allt fínt að frétta af okkur, Einstein samur við sig, mesta kúrudýr í heimi. Var reyndar soldið skrýtið um daginn, hann kemur yfirleitt hlaupandi til mín þegar ég legg bílnum eða þegar ég labba inn um hliðið. Nema að einn daginn þá kom hann ekki, það var frekar kalt úti þannig að ég var pínu áhyggjufull og fer tvisvar út og kalla á hann, og ekki kemur hann. Svo er bankað á hurðina, þá er það leigusalinn minn: "Bee ertu inni? Ég er með Einstein, ég fann hann sofandi á rúmi sonar míns!"
Hann er algjör villingur! Ég var reyndar soldið stolt af honum því það var mjög kalt úti og hann bara reddaði sér..! haha litli snillingurinn minn :o)

Jæja læt þetta duga í bili, kem vonandi með meira krassandi öppdeit næst ;o)

Later...

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Mundi allt í einu eftir blogginu og sá nokkrar færslur sem ég átti eftir að lesa ;) Nenni samt ekki að kommenta við allt en verð samt að standa við samninginn og kommenta amk hérna.
Til hamingju aftur og vertu nú dugleg að blogga ;)
Kv. Bjarney

Nafnlaus sagði...

er einmitt að fara að skella í eina færslu, hendi henni jafnvel inn í dag :o)
kv.Bjarney