Ég fór s.s í 12 vikna sónar síðasta mánudag og vá hvað það var mögnuð upplifun! Ég var þvílíkt búin að telja mér trú um að ég væri ekki ólétt, sekkurinn væri tómur, það myndi ekki finnast hjartsláttur o.s.frv, svo setti hún tækið á bumbuna á mér og fyrst sá ég ekkert og sannfærði sjálfa mig um að ég hefði haft rétt fyrir mér, svo allt í einu birtist krílið, eða "núðlan" eins og það er kallað hérna(konan á kaffihúsinu í gymminu byrjaði á því þar sem ég borða núðlur hjá henni nánast á hverjum degi! haha (en núðlurnar láta mér samt alltaf líða betur!) en já "núðlan" er sem sagt gælunafn litlu bumbubaunarinnar) já allavega, allt í einu birtist Núðlan á skjánum og þessi fíni hjartsláttur og ég byrja að tauta í hausnum á mér:"ekki fara að gráta, ekki fara að gráta" og ljósmóðirin lítur á mig og spyr:"viltu tissjú?" og ég auðvitað þáði það..! En vá þessi tilfinning er mögnuð! Og Núðlan var alveg ofvirk! Var þvílíkt á fleygiferð og sýndi sig á alla kanta! Ljósmóðirin sagði: "ú við erum með "pósara" hérna!" þá fór ég að hlæja og sagði við vinkonu mína sem kom með mér:"já það er nokkuð greinilegt hver pabbinn er" (ok þeir sem þekkja ekki pabbann finnst þetta sennilega ekki fyndið, en honum finnst allavega ekki leiðinlegt að horfa á sig í speglinum!(ekkert illa meint, þannig séð...lol) En ég fékk ótrúlega góða mynd af krílinu og vá hvað þetta er allt orðið raunverulegt núna, þessi litla vera inní bumbunni á mér (ég vil meina að ég sé komin með bumbu, er alltaf að reyna að sýna hana en einhvern veginn virðist fólk ekki sjá hana jafn greinilega og ég! o_O) og verður orðið að barni bara bráðum! Mjög skrýtin tilhugsun! En við fengum ótrúlega góða sónarmynd og ég get ekki hætt að horfa á hana! Sagði við Arnar vinkonu mínu um daginn:"finnst þér barnið mitt ekki ótrúlega sætt?" og hann svaraði:"jú þetta er sennilega fallegasta fóstur sem ég hef séð!" haha jæja, mér finnst fóstrið mitt allavega fallegasta fóstur í heimi :o)

Ég er sett 21.ágúst, er samt að vona að það láti sjá sig þann 24. þannig að ég geti gefið mömmu það í afmælisgjöf (og sparað mér þannig smá pening, þarf þá bara að splæsa í kort en ekki gjöf! haha djók, en ég vona samt að það komi 24. :o))
Humm hvað er meira í fréttum, átti afmæli í gær :o) Orðin 33 ára! Sjæt! Fór út að borða með nokkrum vinkonum mínum, var ótrúlega gaman og ég fékk ekkert smá mikið af kveðjum, gjöfum, kortum og kökum! Enn og aftur sá ég hvað ég er umkringd frábæru fólki! Einn kúnninn minn gaf mér gjafabréf í fótsnyrtingu eftir að ég hafði verið að kvarta yfir að gallinn við að vera ólétt og einhleyp væri að ég hefði engan til að nudda á mér tásurnar þegar ég verð öll bólgin og þrútin og byrjuð að vagga eins og önd! haha þannig að henni fannst ég eiga skilið smá dekur, ekkert smá almennileg :o)Æ já ég er bara eitthvað voða hamingjusöm og þakklát fyrir að vera með svona mikið af yndislegu fólki í kringum mig, mamma og pabbi búin að vera æði, systur mínar þvílíkur stuðningur og svo er brósi ljósár alltaf sama krúttið. Þannig að ég hlakka bara til að takast á við þennan nýja kafla í mínu lífi, orðin 33 ára (3 er sko happatalan mín :o)) og lítil Núðla á leiðinni, eina sem vantar núna til að líf mitt verði fullkomið er að vinna í lottóinu (note to self: kaupa miða í lottóinu), er það nokkuð til of mikils ætlast?? Mér skilst nebbla að svona börn séu ansi dýr í rekstri..! o_O


Annars er Einstein búinn að vera algjör æði síðan ég varð ólétt, þegar hann er inni þá víkur hann ekki frá mér! Sefur alveg klesstur upp við mig og þarf helst að finna fyrir mér (er í stúdíóíbúð þannig að ég get ekki lokað hann út úr svefnherberginu), algjört krútt. Er svoooo fegin að hafa allavega fengið að hafa hann hjá mér, þvílíkt sem hann heldur geðheilsunni hjá mér í standi (ekki það að ég sé eitthvað tæp) en í hvert skipti sem ég lít á hann þá byrja ég bara að brosa, mér finnst hann besta uppfinning í heimi! Hann er reyndar búinn að vera eitthvað pínu spes upp á síðkastið, er stöðugt að ráðast á skottið á sér (hann er að verða 3 ára, ætti hann ekki að vera búinn að læra að a)líkurnar á að hann nái skottinu eru litlar og b)ef hann nær því þá er það mjög sársaukafullt!) en svo það skrýtna er, er að hann er stöðugt að hvæsa á skottið á sér! Eins og hann sé geðveikt reiður út í skottið! Ég fór að velta því fyrir mér hvort skottið væri andsetið en svo fannst mér það heldur langsótt, þannig að ég pantaði tíma hjá dýralækni, mjög eðlilegt símtal sem ég átti:"já góðan daginn, ég var að velta fyrir mér, kötturinn minn er stöðugt að hvæsa á skottið á sér, heldurðu að það sé eitthvað að honum?" konan í símanum vissi greinilega ekki alveg hvaðan á sig stóð veðrið og sagði að ég yrði eiginlega bara að koma með hann inn svo hægt væri að skoða hann, þannig að ég pantaði tíma fyrir hann. Veit ekki hvort er orðið meira galið, hann fyrir að vera svona vangefinn eða ég fyrir að panta tíma hjá dýralækni af því að hann hvæsir á skottið á sér..! o_O
(myndin er tekin þegar við vorum að kúra saman og horfa á vídeó :o))

Jæja læt þetta duga í bili, þangað til næst *kossar og knús*
5 ummæli:
Sælar Skvís!
Innilega til hamingju með allt afmælið og bumbubúann! Það verður gaman að fá að heyra frá þér. Held að þú verðir að skrifa 2 blogg á mánuði víst það er svona mikið að gerast hjá þér.
kv Díana og co!
Til hamingju! ÆÐI!
Gvöð... þú verður sko örugglega heimsins besta mamma.
Njóttu lífsins!
Takk báðar tvær!
Já aldrei að vita Díana nema maður fari að splæsa í fleiri færslur, er viss um að allir séu æstir í öppdeit af óléttueinkennum o.s.frv! hahah
BB
Hahahaha... yndisleg færsla! Aftur til hamingju Bjarney mín, þú verður bókað frábær mamma :)
Soffía
Gaman hjá Þér Bjarney, þetta verður frábært og þú verður frábær, ekki spurning :)
kv. Róbert Már
Skrifa ummæli