Tímasetningin líka afar hentug, Viktor Andri, hennar Þórunnar systir er að vaxa uppúr öllu sínu dóti þannig að ég held að ég sé komin með allt sem þarf fyrir svona litla núðlu! En ætla reyndar að kaupa duddur og svona allskyns barandót hér úti því það er svo miklu ódýrara! Það er enginn VSK á barnavörum hérna úti, þannig að ég ætla að reyna að hamstra soldið áður en ég kem :o)
Eina sem ég er að bjástra við núna er hvort ég eigi að taka Einstein með mér eða ekki :-/ Það er mjög dýrt dæmi að ætla að flytja hann heim og það sem ég er búin að eyða í þennan kött! En líka af því að ég er búin að eyða svo miklu í hann þá er svo erfitt að stoppa núna! Æi meikar sennilega ekkert sense, en ég elska hann bara svo ótrúlega mikið og myndi elska að barnið mitt fengi að alast upp með honum, en það er líka erfitt að réttlæta svona mikla peninga, sérstaklega þar sem þeir vaxa ekki á trjánnum og mér skilst að svona núðlur séu ansi dýrar í rekstri! En ég þarf aðeins að melta þetta, sjá hvort ég geti reddað því einhvern veginn...

Annars er ég að fara að flytja yfir í nýtt gym næstu mánaðamót, verð þar reyndar bara í 3 mánuði, en ætla samt að flytja mig yfir, mun spara mér ansi mikla peninga í gólfgjald! Kem svo heim í lok júní, ég er s.s búin að fá já frá Sporthúsinu að ég geti fengið að þjálfa þar og næ þá vonandi að þjálfa í einn, einn og hálfan mánuð áður en ég unga út þessu barni. Býst reyndar ekkert við að fólk muni hópast til mín, en fæ vonandi nokkra af gömlum og góðum og get svo haldið þeim við með einhvers konar fjarþjálfun á meðan ég er að mjólka og eitthvað :o)
Annars er búið að vera heldur mikið líf og fjör hérna! Síðustu helgi kom Ási vinur minn til UK, að hitta vin sinn sem býr og spilar með Reading og bauð mér að koma með sér á leik á föstudagskvöldinu, fórum inn í Players lounge-ið og eitthvað voða gaman :o) Svo kom Hafrún vinkona á mánudaginn, stoppaði í einn dag, fór svo á einhverja ráðstefnu, ég fór svo og hitti hana í London í gær og við eyddum deginum þar,og ég keypti mér óléttugallabuxur! Nú þarf bumban bara að fara að poppa út!! Annars er maður alltaf alveg búinn á því eftir að hafa eytt deginum í London, alltaf voða gott að koma aftur heim til Henley! Svo dró ég hana í boxercise tíma í dag í gyminu og fórum svo til Reading, aðeins að kíkja í mollið þar (og borða Wagamamas sem ég á eftir að sakna endalaust mikið þegar ég kem heim!), svo skellti hún sér til Bath að hitta leiðbeinandann sinn í doktorsnáminu, kemur svo aftur á morgun og fer svo heim á þriðjudag. Svo á ég von á allavega 2 heimsóknum í viðbót frá íslenskum vinum áður en ég kem heim þannig að tíminn á eftir að skotfljúga!
Já kannski eitt að lokum, það sem mig langar að gera til lengri tíma litið er að detta inní kennslu aftur, þannig að ef þið heyrið af einhverju sem er að losna (verð klár í slaginn í janúar 2013 geri ég ráð fyrir, eða hvenær má maður senda börn til dagmömmu?) þá megiði hafa mig bakvið eyrað :o)
Later :o)
3 ummæli:
Sælar skvís!
Gaman að heyra allt rúllar vel og þú með svona hrikalega gott plan. líst mjög vel á að þú komir heim og nákvæmlega láta þessar systur passa fyrir þig átt þá sko inni ahahah.
kv Díana
jebb! Var einmitt að segja við Huldu, ég verð eiginlega með pabbahelgar hún skuldar mér svo mikla pössun..! ;-þ
jebb! Var einmitt að segja við Huldu, ég verð eiginlega með pabbahelgar hún skuldar mér svo mikla pössun..! ;-þ
Skrifa ummæli