laugardagur, mars 10, 2012

öppdeit

Ætli það sé ekki kominn tími á eina færslu eða svo :o)

svo sem ekkert mikið að frétta, komin 17 vikur á leið núna, fékk að heyra hjartsláttinn í síðustu viku, reyndar mjög stutt þar sem núðlan neitaði að vera kyrr! Eitthvað ofvirkt þetta barn! Ég vona að þetta sé ekki það sem framtíðin ber í skauti sér samt..! o_O Var samt mjög yndislegt að heyra hjartsláttinn, allt sem staðfestir að allt sé í lagi er svo ótrúlega mikilvægt, fer svo í 20 vikna sónar eftir tæpar 3 vikur og ætla þá að fá að vita kynið. Ef ég á að segja eins og er, þá vil ég eiginlega bara drífa þessa óléttu af! Get ekki beðið eftir að fá krakkann í hendurnar, mér finnst satt að segja 40 vikur alltof mikið! Er ótrúlega fegin að ég er ekki fíll! Þó að mér líði reyndar svolítið eins og fíl núna! Finnst mjöööög skrýtið að vera orðin svon þykk um miðjuna, og ef ég á að segja eins og er, þá er ég að verða geðveik á þessum brjóstum! Þau eru út um allt! Var reyndar að fá gefins fullt af óléttubrjóstahöldurum, vona að þeir nái að hemja þetta eitthvað..!

Svo er ég búin að vera að fara smá hamförum í að kaupa barnadót, en það er bara svo MIKLU ódýrara hérna úti, keypti meðal annars svona kengúrupoka (sjá mynd) til að hafa krakkann hangandi framan á sér, og fékk þetta sent um daginn, guð minn almáttugur hvað þetta er eitthvað lítið og krúttlegt! Furðulegt að hugsa til þess að eftir nokkra mánuði muni ég eiga eitthvað svona lítið og krúttlegt sem passar í þetta :-D

En ég er komin í verkfall núna, ætla ekki að kaupa neitt meira fyrr en ég er allavega komin 6 mánuði á leið!!

En ef einhver á barnavagn til að gefa/lána/selja mér, þarf ekki að vera nýr eða fancy, er bara til að láta núðluna sofa í út á svölum (búum á annarri hæð, svo að ég þurfi ekki alltaf að vera að dröslast með vagninn upp og niður) þá má endilega hafa samband við mig :o)

Annars er ég búin að vera að væflast með það hvort ég eigi að drösla Einstein með heim, sakna reyndar Albert ótrúlega mikið núna, en hann er kominn á gott heimili og þeir virðast betri án hvors annars, þannig að ég ætla bara að leyfa honum að vera þar áfram, hann er víst orðinn kóngurinn í götunni! haha stóri strákurinn minn! En ég var að láta kostnaðii flækjast fyri mér varðandi einstein, en svo voru nokkrir facebook vinir mínir sem vildu endilega hefja söfnun til að koma honum heim, og það voru nokkrir sem gáfu í söfnunina, ekkert smá fallegt af þeim! En það er bara svooooooo dýrt að flytja dýr heim, ógeðslega heimska einangrun!! Skil ekki, þegar búið er að fara í gegnum allar sprautur og allt, af hverju þarf þá líka að setja í einangrun?? (sem kostar 100.000 í Hrísey og 145.000 í Reykjanesbæ! Svo plús sprautur hér úti og flugfar heim). hvað er að frétta með þessi gæludýravegabréf sem var verið að spá í?? Þetta er í alvörunni ömurlegt, ég elska þennan kött meira en allt, og langar ótrúlega mikið til að núðlan fái að alast upp með þrífætt gerpinu, en get það mögulega ekki útaf ógeðslega tilgangslausu og heimskru einangrunarógeði! OK, mér varð kannski pínu heitt í hamsi, en ég ætla að reyna að taka kvikindið með heim, er að reyna að réttlæta það í hausnum á mér (og sannfæra bankabókina mína um að ég hafi VÍST efni á því! haha)

Jæja ætla að fara að sofa, vinna í fyrramálið, færi mig svo yfir í nýja gymið næstu mánaðamót, get ekki beðið! :-D En nóg í bili, later Xx

Engin ummæli: