
Annars er ég orðin voða spennt yfir að koma heim, og merkilegt nokk að miðað við alla dramatíkina sem hefur fylgt því að vera allt í einu tilvonandi einstæð móðir sem þurfti að breyta framtíðarplönum sínum á einni helgi, þá er mesti hausverkurinn sá hvort ég eigi að taka fjandans köttinn með mér heim! Það mun kosta ótrúlega mikinn pening og ég er búin að eyða ótrúlega miklum pening í hann nú þegar! Og af því að ég er búin að eyða svo miklum pening í hann þá finnst mér erfitt að réttlæta að eyða meiri pening í hann, en af því að ég er búin að eyða svo miklum pening í hann þá finnst mér erfitt að réttlæta að skilja hann eftir! KRÍSA!! Ég var eiginlega búin að ákveða að skilja hann eftir, finna gott heimili fyrir hann hér, en þá datt ég í að skoða myndir síðan eftir aðgerðina hans (hendi nokkrum hérna inn með færslunni) og þá rifjaðist upp fyrir mér hversu mikið ég er búin að ganga í gegnum með litla gerpinu og ég varð öll ringluð aftur..! o_O

En talandi um litla kvikindið, ég elska hann nottla útaf lífinu en ég var sko ekki sátt við hann um daginn! Ok to be fair, þá kemur hann aldrei með neitt inn, nema einstaka laufblöð og kannski ánamaðka ef vel ber í veiði, og reyndar einu sinni dauðan fugl, sem ég svo reyndar frétti síðar að hann hefði stolið (dauðum) frá öðrum ketti! En um daginn þá kom hann inn með mús, sem var ekki einu sinni dauð! heldur bara lömuð á neðri helmingnum! Hann lagði hana á gólfið, pottþétt rosa stoltur af sjálfum sér og skildi ekkert í mér að vera að öskra á hann að fara með músina út! Músin lá á gólfinu, greinilega skíthrædd og illa slösuð og horfði á mig með ótrúlega sorgmæddum augum. Ég vissi að ég þyrfti að drepa músina, músarinnar vegna, en ég bara gat það ekki! Þannig að ég sótti tissjú og setti músina út fyrir og henti Einstein á eftir henni og skipaði honum að klára það sem hann hafði byrjað á! Lagðist svo upp í rúm og grenjaði úr mér augun í 10 mínútur því ég vorkenndi svo músinni! Var líka frekar svekkt útí sjálfa mig fyrir að hafa ekki linað þjáningar hennar :-/ Þannig að ég ákvað að manna mig upp og fór út og ætlaði að gera það, en þá var músin farin, vona að Einsten hafi klárað hana :-/ Svo eftir að ég var hætt að grenja þá byrjaði ég að hlæja að sjálfri mér fyrir að hafa staðið yfir kettinum og skipað honum að fara út með músina, eins og hann hefði einhverja hugmynd um hvað ég var að fárast yfir þessu, hann var bara að færa með gjöf! Ég ætlaði að reyna að leyfa honum ekki að sofa uppí hjá mér en um leið og hann hoppaði uppí og horfði á mig með þessum augum, sem eru stærri en heilinn í honum, þá leyfði ég honum að sofa til fóta...
Svo er ég að fara til Skotlands eftir 2 vikur, þarf að nýta tímann sem ég á eftir hér í UK sem allra best! Það er nebbla dýragarður þar með PÖNDUM! Og ég elska pöndur, þannig að ég ætla að fara og skoða þær og fara svo í skoðunarferð um Edinborg og sennilega Glasgow, hlakka mjööööög mikið til :-D

Enn stærri fréttir er að 20 vikna sónarinn er eftir 10 daga! Ótrúlegt hvað tíminn hefur flogið, en líður samt alltof hægt! Er svo geðveikislega óþolinmóð að ég var næstum því búin að fara privately í sónar til að finna út kynið fyrr! En svo náði skynsama hliðin tökum á mér og ég hugsaði með mér að það væri fáránlegt að eyða 100 pundum í sónar sem ég fengi frítt eftir 2 vikur hvort sem er, þannig að ég keypti mér myndavél í staðinn :o)

Læt þetta duga í bili, later...
2 ummæli:
Haha læk á skynsemina og myndavélakaupin :D
Ég meika ekki mýs sem eru lamaðar fyrir neðan mitti :)
Skrifa ummæli