fimmtudagur, maí 17, 2012

algjörlega tilgangslaust blogg...

Jæja get alveg eins hent í eina bloggfærslu! Er búin að vera að leita að heimili fyrir Einstein en facebook vinir mínir meikuðu ekki að ég myndi skilja hann eftir og buðust til að efla til fjáröflunar til að koma honum heim (mun kosta um 200.000 allt í allt) og ég íhugaði það, en ákvað svo að gera það ekki. Ein stelpa sem var að vinna með mér vill fá hann og hún er yndisleg, dýrka hana, og veit að Einstein fengi ótrúlega gott heimili, og þar sem ég get hvort sem er ekki haft hann hjá mér allavega fyrsta árið þá er alveg eins gott að setja hann á gott framtíðarheimili, fyrir utan það þá efast ég um að það hefði safnast upp í 200.000 með fjáröflun, þrátt fyrir góðan vilja fólks, og ég hef ekki efni á að punga út tugum, jafnvel hundruð þúsunda. Ég á eftir að sakna hans ENDALAUST mikið, og meira til, en ég held að þetta sé fyrir bestu :'( Svo sem ekki mikið annað að frétta, er byrjuð að senda dót á undan mér, bara 6 vikur í flutninga! Jú reyndar að frétta að ég er hálf klökk yfir hvað fólk er almennilegt!! Er að fá regluleg skilaboð frá fólki að bjóða mér hitt og þetta fyrir barnið, ekkert smá fallegt af þeim! Held að Bart sé orðinn ansi vel settur! Mamma nottla líka búin að vera á fullu að redda og svo er gott að eiga 2 eldri systur með börn! Það eina sem ég þarf að gera er að koma heim og eiga krakkann!! :-D
Ah jú eitt að frétta, ég elska að lifa í UK, það er svoooooo ódýrt að ferðast hérna. Hef reyndar ekki gert mjög mikið af því en ég var að tala við Ingunni vinkonu í gær og hún sagði mér að þau væru að fara til Spánar í júní, og ég spurði hvenær og hvert og sonna, og fékk þá flugu í hausinn að fara í heimsókn! Leiatði að ódýru flugi og fann eitt fyrir 15.000 íslenskar krónur (fram og tilbaka!) og ætla að kíkja á þau í 4 daga, fer 11.júní, hlakka ekkert smá mikið til! Fannst ég eiga skilið smá frí, veit ekki hvenær ég hef tök á því að fara aftur í frí, hef ekki farið til sólarlands í mörg ár, og sé fram á stressfullt næsta ár, svo ég tala nú ekki um ansi viðburðaríkt síðastliðið ár! (og ekki endilega allt á góðan hátt). Er búin að vera að vinna af mér rassgatið uppá síðkastið, nýja gymið loksins opnað og ég ákvað að taka nokkrar vaktir og svona meðfram kúnnunum mínum, og er byrjuð að kenna spinning líka, þannig að ég held að smá sól og sumarylur verði vel þegið eftir rúmar 3 vikur! Og ætli það sé ekki það sem er einna helst að frétta, bara bilað að gera í vinnu, var á vakt frá 6-9 í morgun, var með kúnna kl.9:30 og 11, kenndi spinning kl.12, svo kúnna frá 1:30-3:30 og svo vakt frá 4-6 (ég er yfirþjálfari hérna í gyminu þannig að ég sé um vaktaplanið og ég fylli inní ef það er eitthvað vesen, og svo sný ég þeim líka soldið í kringum hvað mér hentar m.t.t kúnnana minna! hehe en allt á samvinnuþýðan hátt að sjálfsögðu, t.d fannst stráknum í morgun æði að þurfa ekki að mæta kl.6, þannig að ég er bara alveg hreint fáránlega góður yfirmaður þó ég segi sjálf frá! ;o)) Uh nenni ekki meira, er að fara að hitta íslenska stelpu í kvöldmat á eftir, og skutla annarri íslenskri stelpu á flugvöllinn á morgun og hún ætlar að vera svo elskuleg að taka eina tösku fyrir mig, bara 41 dagur þar til ég kem heim! Yikes!!) Nóg í bili, later *kossar og knús*

Engin ummæli: