"Strength doesn't come from what you can do. It comes from overcoming the things you once thought you couldn't."
sunnudagur, ágúst 19, 2012
Guttinn mættur...
Jæja þetta gerðist fyrr en ég bjóst við! Var s.s sett í deg en guttinn lét sjá sig síðasta miðvikudag, þann 15.08. Þetta var svolítið fyndið, hafði verið í ræktinni daginn áður og var e-ð að tala um hvað væri neyðarlegt ef vatnið færi í ræktinni. Fór svo í matarboð um kvöldið þar sem það sama barst í tal og þá var sagt: "Æ það er nú bara í einhverjum Hollywood myndum þar sem vatnið bara fer allt í einu, yfirleitt gerist það ekki fyrr en upp á spítala". Allavega, kl.1:30 þá nótt þá vakna ég við það að vatnið fór, ok ekki beint Hollywood style en samt fyndin tilviljun eftir samtalið, var ekki mjög glamorous get ég sagt ykkur! Var í smá sjokki, ekkert smá magn og ég vissi ekkert hvað ég átti að gera og greyið mamma á eftir mér með moppuna! o_O (too much info?? haha)
En þær vildu ekki fá mig uppá deild því ég var ekki með samdrætti. Hún sagði mér að reyna að slaka á og jafnvel leggja mig aðeins og hringja svo aftur kl.8 til að athuga hvort þær vilji fá mig í tékk. Klukkan 2:30 byrja ég að fá hríðar sem svo stigmagnast eftir því sem líður á nóttina og einmitt að ég hefði getað lagt mig eitthvað! Klukkan 8 hringi ég upp eftir og hún segir mér að koma í tékk, ég var svoooo hrædd um að þær myndu senda mig aftur heim en þegar hún sá hvað ég var komin með "harðar" hríðar þá fór hún með mig inná fæðingaherbergi í staðinn fyrir skoðunarherbergið. Þá var ég komin með 5 í útvíkkun þannig að ég var lögð inn. Ljósan segir mér að böðin séu upptekin en spyr hvort ég vilji prófa þegar losnar. Þá sagði ég við hana að ég væri eiginlega bara búin að taka ákvörðum um mænurótardeyfingu (greinilega enginn nagli eftir allt saman!) þannig að hún hringdi á lækni sem kom stuttu síðar. Vá þvílíkur léttir! Mér er alveg sama þó það séu einhverjar þarna úti sem finnst það aumingjaskapur að fá sér mænurótardeyfinguna, en mér fannst hríðarnar bara ÓGEÐSLEGA vondar og sá enga ástæðu til að leggja á mig þessar kvalir ef ég þurfti þess ekki!
Allavega eftir það þá sat ég bara og spjallaði við múttu sem ætlaði að vera viðstödd og ég ákvað svo að senda sms á Hafrúnu og athuga hvort hún væri laus til að kíkja í einn kaffibolla eða svo, fyrst ég væri þarna í nágrenninu. Það endaði svo reyndar þannig að hún var viðstödd líka sem og Þórunn, elsta systir mín. kl.14.00 var ég komin með 10 í útvíkkun og hann kom svo í heiminn kl.15:07. Vá hvað það var dásamleg stund að fá litla slímböggulinn í hendurnar eftir alla áreynsluna, eftir að vera búin að rembast af öllum lífs og sálar kröftum og jafnvel fyllast vonleysi, finnast hann bara ekkert vera að koma út, svo allt í einu kemur loka hnykkurinn og hann bara rennur út! Besta tilfinning í heimi!!
Ég nefndi hann svo uppá spítala og fékk hann nafnið Bjarni Lár, í höfuðið á mömmu og pabba (Bjarni og Lára, svona ef einhver vissi það ekki hehe) og verður hann að sjálfsögðu Bjarneyjarson :o) En ég held að gamla settið hafi bara verið nokkuð ánægt með nafngiftina og svei mér ef þau hafa ekki yngst um nokkur ár ;o)
Ég fór svo yfir í Hreiðrið þar sem Hulda systir eyddi svo nóttinni með mér, mér til halds og trausts, sem var voða gott. Allt gekk að óskum og hefur gengið ótrúlega vel síðan við komum heim, hann er alveg hreint yndislegur. Rosa vær og góður og brjóstagjöfin gengið mjög vel, auðvitað erfitt til að byrja með, ég var soldið klaufaleg en náði svo tökum á þessu og hann voða duglegur, tók vel alveg frá byrjun þannig að þetta gengur betur með hverjum deginum. Annars sefur hann bara og nærist þess á milli, á reyndar sínar vökustundir sem eru yndislegar, elska þegar hann liggur bara með opin augun að virða heiminn fyrir sér. Mér finnst hann nottla fallegasta barn sem uppi hefur verið og trúi því ekki ennþá að ég eigi hann í alvörunni!
Jæja læt þetta duga í bili, veit ekki hvort ég komi með aðra færslu á næstunni, hef ekki mikið að gera í fæðingarorlofinu, nema ég skelli í færslu bara til að tala um hvað ég á frábært barn!! Ég á eftir að verða meira óþolandi núna heldur en nokkurn tímann með kettina sko!! haha allavega, later...
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
9 ummæli:
Bara snilld :D
Kv.
Olina
Sælar
Hann er ekkert smá flottur og myndalegur. Væri til í að kíkja á þig við tækifæri.
Gangi ykkur vel.
kv Díana
æji hvað maður er sætur og yndislegur :)
Innilega til hamingju með molann þinn - og þrefalt húrra fyrir deyfingunni..ætlaði einmitt að prófa eina án deyfingar núna í apríl...eeeimmiitt! var ekki komin úr inniskónum þegar ég bað um sprautu í mænuna ekki seinna en strax!!
Hafðu það gott með lillanum þínum :)
Kær kveðja
Rakel Viggós :)
Díana, þú ert velkomin anytime! Við erum bara alltaf að chilla heima :o)
hahaha já Rakel, ég sé bara ekki tilgang með að leggja á sig allan þennan sársauka ef maður þarf þess ekki! Ekki fer ég til tannsa og bið hann um að bora án deyfingar!! (fyrir utan það að ég er viss um að fæðing er verri en að láta bora í tönn ódeyfður!)
BB
hann er ekkert smá sætur :o)
kv. gunna dóra
Til hamingju :-) ástarengillinn minn.
Hvaðan kom þessi hnébeyju moli?
Er hann kominn í fjarþjálfun hjá Gillz?
Kveðjur, Gullpungurinn.
ps. Hvenær verður hægt að koma til þín í froskahopp?
"hnébeygja" smá villa hjá mér. uss uss.
haha..helvíti líklegt að konur væru að ræða það e-ð sérstaklega hvort þær fengu deyfingu eða ekki þegar endajaxlinn var rifinn...!!
Fór í smá baklás þegar svæfingalæknirinn mætti og aaauuðvitað var það fyrrverandi nágranni minn, 2 árum yngri en ég og síðast þegar ég sá hann vorum við úti í Einni-krónu...
"..ertu ekki örugglega alveg orðinn 100% læknir?!??" ..smá panik...en hann hitti fínt og mig langaði helst til að knúsa hann þegar deyfingin fór að virka.
En þetta er snilld og yndislegt frá a-ö :)
Rakel
Haha já mér fannst læknirinn minn líka ansi ungu! (ellimerki??)
En ég er sammála, þetta er best í heimi :o)
-BB
Skrifa ummæli